Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2013, Blaðsíða 57
25.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Fórnargjöf Móloks er afar
spennandi og grípandi glæpa-
saga eftir Åsa Larsson. Óvenju-
margir einstaklingar í sömu
fjölskyldu deyja á sviplegan hátt
og Rebecka Martinsson rann-
sakar þessa dularfullu atburði.
Flakkað er fram og aftur í tíma
og gömul örlagasaga kennslu-
konu sem sögð er í bókinni er
minnisstæð og heldur lesand-
anum rækilega við efnið. Lítill
drengur sem þarf að vernda, er
önnur sérlega minnisstæð og
samúðarfull persóna. Þetta er
örugglega besta bók Åsa Lars-
son en hún fékk sænsku glæpa-
sagnaverðlaunin fyrir hana. Bók
sem sannarlega er hægt að
mæla með fyrir aðdáendur
spennusagna.
Grípandi
glæpasaga
Eins og áður hefur komið fram á þessum síð-
um verður fyrsta íslenska glæpasagnahátíðin,
Iceland Noir, haldin hér á landi í nóvember
og hefst formlega klukkan 10 að morgni 23.
nóvember í Norræna húsinu með pallborðs-
umræðum og viðtölum við höfundana.
Arnaldur Indriðason verður heiðurs-
gestur á hátíðinni, en alls taka um 25 höf-
undar þátt í henni, þar af um helmingur frá
útlöndum. Stærstu nöfnin í þeim hópi eru
sennilega Ann Cleeves, höfundur bókanna
um Veru lögreglukonu, John Curran,
fremsti sérfræðingur heims í verkum
Agöthu Christie, og Jorn Lier Horst,
handhafi Glerlykilsins 2013. Hátíðin hefur
þegar vakið mikla athygli erlendis, en
Guardian valdi hana eina af bestu
glæpasagnahátíðum í heimi, og því er von á
mörgum erlendum gestum, auk höfundanna
sjálfra. Búist er við því að loka fyrir skrán-
ingar síðar í þessum mánuði þar sem sæta-
pláss í Norræna húsinu er takmarkað. Vefur
hátíðarinnar er www.icelandnoir.com.
Arnaldur Indriðason verður heiðursgestur á
Iceland Noir og er það vel við hæfi.
Morgunblaðið/Einar Falur
ARNALDUR
HEIÐURSGESTUR
Bókmenntahátíð verður haldin í
Reykjavík í næsta mánuði, nánar til-
tekið 11.-15. september. Fjöldi er-
lendra rithöfunda mun mæta á hátíð-
ina og má þar nefna hollenska
rithöfundinn Herman Koch sem
þekktur er hér á landi eftir að þýð-
ingar komu út á skáldsögum hans
Kvöldverðinum og Sumarhúsi
með sundlaug. Rachel Joyce
mætir einnig en bók hennar Hin
ótrúlega pílagrímsganga Ha-
rolds Fry seldist vel hér á landi.
Daninn Kim Leine verður meðal
gesta og einnig kanadíski rithöfund-
urinn Douglas Coupland, sænska
ljóðskáldið Kjell Espmark, Antonio Skármeta, rithöfundur frá Síle, og þýski rithöfund-
urinn Jenny Erpenbeck – svo nokkur nöfn séu nefnd.
Suðurafríski rithöfundurinn Margie Orford, sem kölluð hefur verið glæpasagnadrottning
S-Afríku,verður stödd á landinu á þessum tíma til að taka þátt í ráðstefnu PEN-samtakanna,
sem eru alþjóðasamtök rithöfunda. Ráðstefnan verður hér á landi 9.-15. september, en Or-
ford er varformaður Suður-Afríkudeildar samtakanna. Einnig ætlar hún að reyna að sækja
einhverja atburði á vegum Bókmenntahátíðarinnar. Bók hennar Daddy’s Girl mun koma út
hér á landi næsta vor hjá bókaforlaginu Draumsýn.
GLÆPASAGNADROTTNING TIL ÍSLANDS
Bók Margie Orford, Daddy’s Girl, kemur út næsta vor,
en höfundurinn er væntanlegur til landsins.
Hin vinsæla skáldsaga Hanne-
Vibeke Holst, Krónprinsessan,
hefur verið endurútgefin í kilju
en bókin kom fyrst út í ís-
lenskri þýðingu árið 2005. Að-
alpersóna bókarinnar er Char-
lotte Damgaard, tveggja barna
móðir á fertugsaldri, sem
óvænt er boðið að verða um-
hverfisráðherra. En það er
enginn leikur að vera ung og
valdamikil kona í stjórnmálum
og ætla sér að sameina frama
og hjónaband.
Barátta ungrar
konu í stjórn-
málum
Ljósmyndir,
pólitík og
glæpir
NÝJAR BÆKUR
ÞAÐ ER MIKILL METNAÐUR SEM LIGGUR AÐ BAKI
LJÓSMYNDABÓK MEÐ MYNDUM RAGNARS AX-
ELSSONAR. HIN VINSÆLA KRÓNPRINSESSA SNÝR
AFTUR OG FJALLAÐ ER UM VIÐSKIPTABLOKKIR
OG FLEIRA SEM TENGIST ÍSLENSKU EFNAHAGSLÍFI
Í NÝRRI BÓK. ÓHÆTT ER SVO AÐ MÆLA MEÐ
NÝRRI SÆNSKRI GLÆPASÖGU.
Magnús Halldórsson og Þórður
Snær Júlíusson eru þekktir fyrir
snarpa blaðamennsku og áhugaverð
skrif um viðskiptalífið. Þeir eru höf-
undar bókarinnar Ísland ehf. – Auð-
menn og áhrif eftir hrun. Þar svara
þeir spurningum eins og: Hvaðan
koma fjármunirnir sem notaðir eru
til að kaupa eignir þrotabúanna? Og
hverjir verða eigendur Íslands þegar
gjörningaveðrinu slotar?
Hverjir eignast
Ísland?
Fjallaland eftir Ragnar Axelsson er stórglæsileg ljós-
myndabók eftir einn færasta ljósmyndara landsins.
Myndirnar í þessari bók eru úr Landmannaafrétt þar
sem bændur leita að fé sínu hvert haust. Ragnar hefur
í rúman aldarfjórðung slegist í för með þeim og mynd-
að leitirnar. Hér er að finna magnaðar myndir af
mönnum, skepnum og ægifagurri náttúru. Þetta er
einkar eiguleg bók og vel að henni staðið á allan hátt.
Glæsileg og mögnuð
ljósmyndabók
*Meginþáttur allra gáfna er viss tegund viðkvæmni. Sigurður Nordal BÓKSALA 14.-20. ÁGÚST
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Eymundsson
1 Nýir heilsuréttir fjölskyldunnarBerglind Sigmarsdóttir
2 Leðurblakan - kiljaJo Nesbo
3 Iceland Small World- small ed.Sigurgeir Sigurjónsson
4 Maður sem heitir Ove - kiljaFrederik Backman
5 Fórnargjöf Móloks - kiljaAsa Larsson
6 InfernoDan Brown
7 Týnda dóttirinn - kiljaShilpi Somaya Gowda
8 Ísl/ensk-ensk/ísl vasaorðabókLaufey Leifsdóttir
9 Úlfshjarta - kiljaStefán Máni
10 Þegar öllu er á botnin hvolft - kiljaAlan Bradley
Kiljur
1 LeðurblakanJo Nesbo
2 Maður sem heitir OveFrederik Backman
3 Fórnargjöf MóloksAsa Larsson
4 InfernoDan Brown
5 Týnda dóttirinnShilpi Somaya Gowda
6 ÚlfshjartaStefán Máni
7 Þegar öllu er á botnin hvolftAlan Bradley
8 SjóræninginnJón Gnarr
9 Áður en ég sofnaS.J.Watson
10 Þerraðu aldrei tár án hanskaJonas Gardell
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Víða er pottur brotinn.