Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2013, Qupperneq 61
með 15 mörk eins og Frank Lampard. Theo Walcott kom
næstur og svo Wayne nokkur Rooney.
Lét drauminn rætast
Þegar Lambert var að festa lok á sultukrukkurnar fyrir
nokkrum árum hefur hann ábyggilega dreymt um að spila
með enska landsliðinu. Labba inn á troðfullan Wembley og
skora sigurmark. Í stað þess að gefast upp lét hann draum-
inn rætast með mikilli vinnu. Með því að skora í sínum
fyrsta leik bættist hann í hóp góðra manna eins og Stanley
Matthews, Tom Finneys, Bobby Charltons, Jimmy Greaves
og Alans Shearers sem allir hafa afrekað að skora í sínum
fyrsta landsleik. Saga Lamberts er skemmtileg og falleg og
öðruvísi. Hann er fjölskyldumaður sem er alveg sama hvort
hann kemst inn á skemmtistað í gegnum VIP-röðina. Hann á
ekki flottasta bíl í heimi og er ekki með milljónir fylgjenda á
Twitter. Honum var líka ekki sama um þennan landsleik og
ætlaði sér að skora í stað þess að passa sig að meiðast ekki.
Góði og vondi í framlínunni
Lambert er 31 árs en er í fullu fjöri. Trúlega á hann bestu
ár sín eftir og hver veit nema hann muni verða fyrsti maður
á blað komist Englendingar á HM í Brasilíu. Roy Hodgson
landsliðsþjálfari fagnar fleiri Englendingum í deildinni en
hann hefur ekki um auðugan garð að gresja. Aðeins 75 leik-
manna í opnunarumferðinni voru enskir. 61 félagaskipti voru
gerð fyrir tímabilið en þar af voru aðeins 12 Bretar sem
skiptu um lið. Ekkert átta efstu liðanna á síðasta tímabili
hefur keypt Englending fyrir þetta tímabil.
Southampton hefur eytt gífurlega í leikmenn fyrir þetta
tímabil og aukið samkeppnina í framlínunni. Pablo Osvaldo
kom nýverið frá Roma en sá á að veita Lambert samkeppni.
Sá er Ítali með mikið skap. Hefur tvisvar lamið samherja og
minnir saga hans á Joey nokkurn Barton, nema hann er
framherji. Framlína Southampton er því nú skipuð þeim
góða og þeim illa.
Leikskrá enska landsliðsins fyrir leikinn gegn Skotum. Lambert skar sig svo
sannarlega úr. Allir í enska búningnum nema hann.
Í leik með Bristol Rovers gegn WBA 2008 í enska bikarnum.
Lambert þrumar yfir hausinn á Wayne Rooney.
25.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 61
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011 DUKA.IS
Litríkar, hagnýtar,
fíngerðar, óbrjótandi,
fallegar, spennandi,
endingargóðar, mjúkar,
skemmtilegar...
Alls konar gjafir á
óskalistann ykkar. Kláraðu listann
Brúðhjón sem gera
óskalista fá
10% afslátt
af öllum vörum
hjá okkur
í 6 mánuði
eftir brúðkaupið.