Monitor - 05.09.2013, Qupperneq 3
FYRIR HLÁTURMILDA
Hinn umdeildi grínisti Pablo
Fransisco kemur fram í Hörpu í lok
október en umdeildir brandarar
hans hafa
gert hann
að einum
vinsælasta
grínista
heims.
Miðasala á
uppistand
kappans „Live
and Kickin“ er þegar hafin á midi.is
og nú fer hver að verða síðastur að
krækja sér í miða á þessa drep-
fyndnu kvöldstund.
FYRIR TAKTFASTA
Nýsjálenska söngkonan Lorde var
uppgötvuð af Sony aðeins 12 ára
gömul og nú
fimm árum
síðar er hún
tekin til
við að töfra
heimsbyggð-
ina upp úr
skónum.
Monitor
mælir sérstaklega með lögunum
„Royals“ og „Tennis Court“.
FYRIR GJAFMILDA
„Klárum málið“ er yfirskrift átaks
UNICEF og Te
& Kaffis sem
hefst form-
lega í dag.
Af hverjum
seldum drykk
í september
gefur Te &
Kaffi andvirði
einnar bólusetningar gegn mænu-
sótt en einnig er hægt að styrkja
málstaðinn með því að senda sms-
ið „stopp“ í númerið 1900.
Monitor óskar Agnesi til hamingju með
giftinguna en samt bara í litla letrinu.
fyrst&fremst
3FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 MONITOR
www.facebook.com/monitorbladid
B
L
A
Ð
IÐ
Í
T
Ö
L
U
M vikur var Emiliana Torrini á toppi þýska
vinsældarlistans
9
4
Mosfellingar
skipa hljóm-
sveitina Kaleo
þúsund krónur
kostar eitt gramm
af MDMA.
létust á
Electric Zoo
hátíðinni.
„Hátíðin er í rauninni opin fyrir hvern sem er
svo það er alveg slatti af „drasl“-leikhúsi þarna
en einnig mikið af frábærum uppsetningum,“
segir Agnes Wild sem vann til NSDF-verð-
launanna á Edinburgh Fringe Festival ásamt
skólasystkinum sínum úr leiklistarskólanum
East 15. NSDF stendur fyrir National Student
Drama Festival en það eru samtök nýútskrif-
aðra leikara og leikhópa í Bretlandi og í ár sóttu
alls 80 leikhópar um verðlaunin. „Við komumst
í lokaúrtak 15 leikhópa og vorum boðin á
verðlaunaathöfn á næstsíðasta kvöldi hátíðar-
innar,“ segir Agnes. „Ég bjóst alls ekki við því
að vinna og var búin að vera að draga rosalega
mikið úr stelpunum þegar það var tilkynnt að
í ár yrðu tveir sigurvegarar. Þau gátu bara ekki
gert upp á milli okkar og annars hóps úr sama
skóla,“ segir Agnes og hlær. „Við vorum verstu
vinningshafar sem til eru af því að við vorum
svo glöð að deila þessu með vinum okkar. Þau
byrjuðu að öskra og við byrjuðum að öskra og
svo hugsaði maður ekkert fyrr en eftir á út í
hina sem unnu ekki.“ Agnes segir viðurkenn-
inguna skipta mestu máli auk þess sem nú hafi
þeim boðist að setja sýninguna upp í London
en hún vonast jafnframt til þess að geta sett
hana upp á Íslandi í framtíðinni.
Munur á leikriti og alvöru
„Í fyrstu var mjög erfitt að fá fólk til að koma
að sjá sýninguna af því að það eru auðvitað
3000 sýningar í boði á hátíðinni,“ segir Agnes
en hún dreifði auglýsingum fyrir sýninguna
ásamt vinkonum sínum á götum úti. „Eftir
svona tvær vikur vorum við farin að vekja
meira umtal og þegar Lyn Gardner, leikhús-
gagnrýnandi fyrir The Guardian, skrifaði um
okkur á blogginu sínu og Twitter þá fór allt á
fulla ferð,“ segir Agnes glöð í bragði en hún
segir efni leikritsins eiga mjög vel við í dag.
„Leikritið er byggt á reynslu handritshöfund-
arins af því þegar besta vinkona hennar byrjaði
með enskukennaranum þeirra, slíkt hefur verið
mikið í umræðunni í Bretlandi undanfarið eftir
að ung stúlka fór með kennaranum sínum til
Frakklands.Við reyndum að láta kennarann
ekki líta út fyrir að vera skrímsli heldur bara
venjulegan mann enda væri það of ódýr lausn
að gera hann að einföldum dónakalli,“ segir
Agnes sem kveður þá nálgun hafa vakið mikla
athygli. „Stúlkan sem skrifaði handritið fór fyrir
rétt fyrir nokkrum mánuðum til að bera vitni
gegn honum. Þetta er auðvitað rosalega tilfinn-
ingaþrungið en maður verður að muna að verkið
okkar er leikrit og hitt er alvaran,“ segir Agnes
ákveðin. Agnes er með ýmislegt á prjónunum
áður en hún heldur aftur til London en í vikunni
gengur hún að eiga unnusta sinn og í september
kemur út barnaljóðabók eftir hana sem ber
titilinn Súrsæt skrímsli. „Þó við ætlum að búa
úti er ég alltaf með annan fótinn hérna heima,“
segir Agnes. „En við ætlum að gefa leikhópnum
séns í eitt tvö ár og sjá hvað gerist.“
25
Hugleikur
Dagsson Al-
gengt komment
á DV.is: “er
þetta frétt?”.
Svar: Já. Þú
gerðir það að frétt. Þú smelltir
á fréttina og kommentaðir. Þú
gerðir fréttina meira lesna. Þú ert
vandamálið. 2.september kl. 14:17
2
Agnes Wild er nýútskrifuð úr leiklistarskóla og hefur þegar unnið til
verðlauna fyrir leikritið Play For September á Edinburgh Fringe Festival.
Bjóst alls ekki
við því að vinna
Mér hefur aldrei verið boðið að kaupa fíkniefni. Kannski er það útlitið, kannski
er það fasið eða kannski er það bara hrein og
bein heppni.
Ég vil auðvitað trúa því að ég hefði neitað fíkniefnum harðlega
hefðu mér verið boðin þau
þegar ég var óharðnaður
unglingur en ég er bara alls
ekki viss.
Ífyrsta skipti sem mér var boðið áfengi sagði ég
„Nei,“ strangri röddu með
svip á andlitinu sem gaf til
kynna að spurningin misbyði
mér stórlega. Þá sagði einhver
„kommooon“ svo ég yppti öxlum og
tók sopa. Það var þá allur viljastyrkurinn.
Íblaðinu í dag má finna umfjöllun um fíkniefnið MDMA sem í daglegu tali er nefnt
Mollý. Mollý er ekki sómastúlka þó svo að áhrif
hennar kunni að virðast heillandi en eins og
segir í umfjölluninni er ástæða fyrir því að
fíkniefni nefnast einnig eiturlyf.
Svo afhverju erum við að einu sinni að ræða þessa Mollý? Ættum við ekki
bara að leyfa lögreglunni að eiga við
dópistana sem selja og neyta
slíkra lyfja?
Við eigum ekki að stinga
höfðinu í sandinn.
Margir, ef ekki flestir,
neytendur Mollý eru
ekki auðnuleysingjar
og aumingjar heldur
afar eðlilegt fólk eins
og ég og þú. Eiturlyf
þarf að ræða til þess að gera
okkur auðveldara að hafna þeim
þegar á hólminn er komið. Fyrstu
atlögu Monitor að þeirri umræðu
finnur þú á síðum 20 og 21.
Anna Marsý
MONITOR@MONITOR.IS Ritstjórn:
Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@
monitor.is), Anna Marsibil Clausen
(annamarsy@monitor.is) Framleiðslu-
stjóri: Hilmar Gunnarsson (hilmar@
monitor.is) Blaðamenn: Einar Lövdahl
Gunnlaugsson (einar@monitor.is), Lísa
Hafliðadóttir (lisa@monitor.is), Hersir
Aron Ólafsson (hersir@monitor.is)
Umbrot: Monitorstaðir Auglýsingar:
Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.
is) Forsíða: Styrmir Kári (styrmirkari
@mbl.is) Myndvinnsla: Ingólfur
Guðmundsson Útgefandi: Árvakur
Prentun: Landsprent Sími: 569 1136
GA MONITOR EFST Í HUGA MONITOR EFST Í HUGA MONITOR EFS
Ekki vera strútur
M
yn
d/
St
yr
m
ir
Ká
ri
AGNES WILD
Fyrstu sex: 101089
Í morgunmat borðaði
ég: Kímköku með
skinku og osti.
Draumahlutverkið
mitt er: Tracy
Turnblad í Hairspray.
Lag sem er lýsandi
fyrir líf mitt þessa
stundina er: „Love
and Marriage“ með
Frank Sinatra af því
ég er að fara að gifta
mig og það er það
sem allt snýst um í
augnablikinu.
VIKAN
Á FACEBOOK
MÆLIR MEÐ...
Marta María
Jónasdóttir
Mín andlega
fjarvera
hefur náð
nýjum hæðum.
Nú er ég komin með Appið My
Fitness Pal, sem gengur út á að
skrá niður hreyfingu og át. Með
Appinu getur maður eignast nýja
vini og nú var ein að “adda” mér
sem er búin að léttast um 1 kíló
síðan hún hlóð Appinu niður.
Þetta er náttúrlega eitthvað sem
kona eins og ég verður að vita
um fólk ... Mér er skapi næst að
segja það sama og Benedikt
Erlingsson sagði í gær í viðtali
við Smartland: “Ég er fáviti”.
4.september kl. 15:17
Finnur
Kolbeinsson
Karlmennska
glataðist á 12.
tímanum í kvöld
í sal 1 í kringlu-
bíó á sýningunni The Conjuring.
Látið vita í afgreiðslu ef þið finnið
hana. 3. september kl. 02:00