Monitor - 05.09.2013, Page 12
J
ökull Júlíusson segist alla tíð hafa verið
alæta á tónlist og fór hann snemma að
hlusta á klassískt rokk og ról. Hann
byrjaði að spila cover-lög ásamt grunn-
skólavinum úr Mosfellsbænum en það var
aðeins fyrir tæpu ári síðan sem hljóm-
sveitin Kaleo varð til í núverandi mynd.
Nú er tiltölulega stutt síðan þið komuð fram á sjón-
arsviðið, getur þú farið aðeins yfir ferilinn ykkar og
hvernig þetta byrjaði allt saman?
Þetta á sér í rauninni nokkuð langa sögu. Ég, Davíð
og Daníel höfum spilað saman alveg frá því við
vorum saman í bekk í grunnskóla. Við byrjuðum á
að stofna hljómsveit sem hét „St Peter the Leader“
og vorum þá að semja okkar eigið efni. Við tókum
síðan þátt í Músíktilraunum árið 2009, það gekk
ekkert frábærlega en það var samt fín reynsla að fá
að spila í Gamla bíó og svona. Eftir þetta fórum svo
frekar fljótt út í það að taka cover-gigg, það var meiri
peningur í því og auðvitað snilld að fá auka vasapen-
ing á þessum árum. Við gerðum þetta í þónokkur ár,
spiluðum hér og þar og tókum að okkur alls konar
merkileg gigg.
Hvernig tónlist voruð þið þá að spila sem cover-
hljómsveit?
Það var bara allur skalinn, við tókum alla flóruna.
Gamalt efni í bland við nýtt, allt frá Bítlunum og
upp í Rihönnu. Þannig náðum við að höfða til breiðs
aldurshóps sama hvort við vorum að spila á pöbbum
eða árshátíðum. Það kom samt að því að við fengum
nóg af þessu og langaði að gera eitthvað frumsamið,
okkar eigið. Fyrir rúmu ári síðan fórum við svo á fullt
í að finna okkur aðra til að spila með. Það fór svo
þannig að við vorum þrír, grunnurinn, og fengum
Rubin Pollock á gítar.
Hvernig varð það úr að hann slóst í hópinn?
Við kynntumst honum bara í gegnum vinafólk
okkar. Reyndar komst ég seinna að því að hann bjó
á sama tíma og ég í Árósum í Danmörku og var með
mér í árgangi í MS í 3 ár án þess að við nokkurn
tímann þekktumst eða bonduðum neitt, sem er
frekar fyndin tilviljun.
Hver voru svo næstu skref?
Við stofnum þarna hljómsveit, Kaleo, en vorum
reyndar fleiri til að byrja með. Við vorum bæði með
saxófónleikara og selló og vorum svolítið villtir
varðandi það hvað við vildum spila. Við Rubin
keyptum okkur síðan báðir okkar fyrsta rafmagnsgít-
ar og magnara og þá fór þetta svolítið að rúlla og við
fórum að spila meira rokk og ról.
Nafnið Kaleo, hvernig kemur það til?
Það var mikið rætt um nýtt nafn á hljómsveitina
fyrir Airwaves í fyrra og Dabbi endaði með því að
stinga upp á nafninu Kaleo. Við gerum mikið grín
að honum vegna þess að hann er getinn á Hawaii
og orðið Kaleo þýðir „the sound“ á hawaii-ísku. Það
spilar líklega eitthvað inn í hans hugmyndaflug að
hann er getinn þar.
Hver voru síðan fyrstu skrefin hjá nýju bandi?
Við spiluðum þarna „off venue“ á Airwaves í fyrra.
Við vorum upphaflega beðnir að spila cover, en
tókum drastíska ákvörðum um að það væri bara
komið nóg af því og tími til að spila frumsamið. Við
vorum með 30 til 40 mínútna prógramm og spiluð-
um einhver fjögur off venue-gigg. Það var síðan bara
skyndiákvörðun að taka þátt í Músíktilraunum, ég
hafði ekki mikinn áhuga á því til að byrja með en svo
sáum við ekki hvernig við gætum tapað neitt á því.
Það reyndist nokkuð vel fyrir okkur og við fengum
fína athygli, þó svo að Vor í Vaglaskógi hafi tvímæla-
laust haft mest að segja.
Nú hefur Vor í Vaglaskóli einmitt fengið frábærar
viðtökur í sumar, hvernig kom það til að þið
stílfærðuð þessa gömlu perlu?
Pabbi hafði alltaf haldið upp á þetta lag, sýnt mér
það þegar ég var lítill. Ég þróaði síðan þessa útgáfu
fyrir einu og hálfu ári síðan á kassagítar í svona
„fingerpicking“-stíl. Ég lék mér með melód-
íuna þannig hún sveiflaðist aðeins til
og lagið varð svolítið dramatískara
þegar það var hægt niður í tempói.
Upphaflega spilaði ég þetta og söng
bara á kassagítarinn, ég gerði það
meðal annars í stúdentsveislunni
minni og fólk var að taka mjög vel í
þetta. Við tókum þetta svo skrefinu
lengra og útsettum, fengum sellóið
inn, bassann og bakrödd. Síðan
spilum við það fyrst þarna á Rás 2.
Þannig að lagið ykkar var í sjálfu sér uppgötvað á
Rás 2?
Já, í rauninni, við fórum í Skúrinn á Rás 2 eftir
músíktilraunir. Þeir höfðu séð okkur þar og vildu
fá okkur í þáttinn. Við byrjuðum á að taka erfiðasta
lagið okkar sem er frekar rokkað og þurftum að spila
það sex sinnum í gegn þannig að ég var bara orðinn
nokkuð hás eftir það. Við ákváðum að við þyrftum að
taka eitt rólegt lag til að halda röddinni í lagi, þannig
að við prófuðum bara Vor í Vaglaskógi. Þetta var
þannig séð allt saman hálfgerð tilviljun.
Þú talaðir um að pabbi þinn hefði sýnt þér lagið
þegar þú varst yngri, hvenær byrjaðir þú að pæla í
tónlist að einhverju viti?
Ég æfði í tvö ár á píanó þegar ég var lítill. Ég var
ekkert rosalega duglegur að æfa mig en ég var meira
fyrir það að læra bara grunninn, geta pikkað upp lög
sem mér fannst skemmtileg. Síðan þegar ég flutti
heim til Íslands frá Danmörku, 14 ára gamall, byrjaði
ég aftur að spila á píanó og fékk fyrsta gítarinn minn.
Þá svona byrjaði þetta af alvöru. Ég fíla annars bara
tónlist yfir höfuð, ég hlusta t.d. mikið á klassíska
tónlist og alveg yfir í rokk og ról og svona.
Þið hafið einmitt gefið út lag sem ber heitið Rock n’
Roller, er sá titill lýsandi fyrir það sem þið eruð að
gera í tónlistinni?
Ég myndi segja það, en auðvitað er leiðinlegt að
vera fastur í einhverjum einum stíl. Tónlist býður
upp á svo marga möguleika að það er leiðinlegt
að vera einhæfur. Við förum út um allar trissur, en
stefnan er klárlega rokk og ról þó svo við tökum
alveg ballöður inn á milli.
Eru einhverjar áhugaverðar uppákomur sem þið
hafið lent í á ferlinum?
Já, við höfum spilað á mörgum mjög grilluðum
giggum, sérstaklega áður en Kaleo varð til. Við
spiluðum t.d. í fermingu þar sem var alltaf verið
að biðja okkur að lækka. Við heyrðum varla í okkur
sjálfum í lokin og vorum eiginlega orðnir hálfgert
skraut þarna.
Svo var líklega það fyndnasta, síðasta vetur, þá
spiluðum við fyrir Rússa sem komu hérna í heim-
sókn. Þeir komu á einkaþotu sem var svo stór að hún
fékk ekki leyfi til að lenda á Reykjavíkurflugvelli. Við
vorum keyrðir langt út á land á hvítum Range Rover-
jeppum og máttum alls ekki vita hvert við vorum
að fara, þetta var bara á leynistað. Við enduðum
svo á að spila þar eitthvað pínulítið sett fyrir mjög
góðan pening. Það var hins vegar frekar óþægilegt
andrúmsloft þarna. Við vorum að spila bara það
sem við héldum að þeir myndu vilja heyra en svo
stóð „aðal-Rússinn“ reglulega upp til þess að halda
ræður og þá áttum við að hætta eins og skot. Hann
gaf okkur ákveðið lúkk og þá átti maður að setja allt
strax á pásu. Það voru þarna DJ-ar líka sem áttu að
spila á eftir okkur en þeir spiluðu á endanum ekki
neitt en fengu samt helling af pening.
Hvað er það skemmtilegasta sem þið hafið verið að
gera hingað til?
Við höfum farið svolítið út á land, við spiluðum
meðal annars á nýrri hátíð á Ólafsfirði sem ber heitið
„Ólæti“. Síðan spiluðum á Akureyri um verslun-
armannahelgina, og erum einmitt að fara þangað
aftur að spila á Græna hattinum núna 13. september.
Það er alltaf gaman að spila úti á landi en það sem
stendur upp úr hingað til er klárlega Menningarnótt,
það var mjög súrrealískt og skemmtilegt að spila
fyrir svona marga í einu.
Nú eruð þið fjórir greinilega búnir að vinna
mjög náið saman upp á síðkastið, hvernig hefur
samstarfið gengið?
Ég, Danni og Dabbi erum náttúrulega allir úr Mosó
og höfum verið bestu vinir mjög lengi. Það er mjög
þægilegt að vera með vinum sínum í hljómsveit því
þá er enginn viðkvæmur fyrir því að ræða opinskátt
það sem þarf að ræða. Það eru auðvitað oft skiptar
skoðanir á ýmsu en við náum almennt mjög vel
saman.
Þið komið úr Mosó segirðu, er mikil tónlistar-
menning þarna í Pizzabæ?
Já, það er hellings tónlistarmenning þar, við
höfum spilað mikið t.d. hjá Jóa á
Hvíta riddaranum sem var einmitt
Jói í Pizzabæ í gamla daga. Það er
nóg að gerast í Mosfellsbæ, Sigurrós
eru einhverjir þaðan og síðan
auðvitað Gildran í gamla daga.
Hvað er annars málið með þennan
Pizzabæ?
Pizzabær var bara pizzastaður og
líka eins konar samkomustaður
unglinganna í gamla daga. Þetta er Hrói Höttur í dag
samt. Þetta er þarna í kjarnanum og þegar ég var í
gaggó þá var alltaf farið í hádeginu upp í Pizzabæ
og fengið sér brauðstangir eða kryddbrauð. Jói á
Hvíta riddaranum var á þessum tíma kallaður Jói
Kryddbrauð.
Hefur þú búið alla tíð í Kryddbrauðsþorpinu eða
voru einhverjir flutningar inni á milli?
Ég bjó í Danmörku í tvö ár en þar á undan bjó
ég á Hornafirði í sex ár. Á Hornafirði gerði ég ekki
annað en að spila fótbolta enda kannski ekki mikið
annað að gera. Það er reyndar gaman að segja frá
því að síðasta laugardag vorum við heiðursgestir á
bæjarhátíðinni í Mosfellsbæ á leik Aftureldingar og
Sindra. Sindri er einmitt frá Hornafirði þannig að
maður kannaðist við marga í báðum liðum, en ég
spilaði með Aftureldingu þegar ég flutti heim í Mosó.
Félagar þínir í Kaleo sögðu mér frá skemmtilegu
atviki sem þú lentir í með Jónasi Sig og ritvélunum,
þú minntist ekkert á það hérna áðan.
Já úff, ég lenti í hræðilegu atviki þegar við vorum
að spila á Hressó einhverntímann, ætli það hafi ekki
bara verið á Airwaves í fyrra. Staðurinn var alveg
pakkaður, en við vorum búnir að spila og ég sat á
borði við hliðina á sviðinu. Ég ætlaði síðan að klifra
einhvernveginn yfir borðið en gerði hins vegar þau
mistök að ýta í loftið þannig að borðið hvolfdist og ég
steyptist á hljómborðsleikarann, nánast bara jarðaði
hann þarna á sviðinu. Þeir hættu að spila í smástund
og allur salurinn tók eftir þessu. Ég er síðan þarna
eins og fábjáni allt kvöldið að biðja hann afsökunar.
Þegar tónleikarnir eru búnir þá fer ég aftur að biðja
hann afsökunar og sé að hann er bara með staf.
Ég veit ekki hvort hann var að glíma við meiðsli
eða eitthvað svoleiðis, en þetta var allavega ekki
ákjósanlegasti meðlimurinn til þess að ýta um koll.
Hann hefur ekkert erft þetta við þig?
Ég vona ekki, ég allavega margbað hann afsökunar.
Hann var hins vegar ekki sáttur, skiljanlega.
Annað sem mér fannst áhugavert er að þú ert ekki
á facebook, hvernig stendur á því?
Bara eftir allt þetta Snowden-mál þá bara ... nei,
nei, ég hef bara einhvernveginn aldrei verið hluti
af þessari netmenningu. Hljómsveitin er auðvitað
með Facebook og við erum virkir þar, enda frábær
leið til að koma ýmsu á framfæri og auglýsa viðburði
og þess háttar. Þetta hefur bara ekki höfðað til mín.
Þetta hefur klárlega marga kosti en einnig einhverja
galla. Það er ótrúlegt hvað sumir sjá sig knúna til að
deila með öðrum á netinu, eins og t.d. hvað fólk fær
sér í matinn! Þetta virðist á vissan hátt ýta undir
hégóma og athyglisþörf. Einhverjir lifa ákveðnu lífi á
Facebook en síðan allt öðru lífi í raunveruleikanum.
Síðan er auðvitað gífurlegur tími sem fer í þetta og
það er gott að nota tímann í annað. Ég spila heldur
ekki mikið tölvuleiki nema þá að sjálfsögðu FIFA
með félögunum!
Átt þú einhverjar fyrirmyndir í tónlist?
Íslensk tónlist í dag er auðvitað ótrúlega fram-
arlega, en ég persónulega hlusta mjög mikið á
tónlist svona frá 50‘s og upp í 70‘s og sæki mikinn
innblástur þaðan. Ég hlusta nánast bara á Gullbylgj-
una þegar ég er heima og í bílnum. Fyrirmyndirnar
eru óteljandi en algjörir uppáhaldslistamenn eru
m.a. Ray Charles, Otis Redding, Bítlarnir, síðan Led
Zeppelin, The Who og allt þetta þar aðeins á eftir. Í
rauninni bara tónlist áður en hún varð commercial-
fyrirbæri, eins og hún er svolítið í dag.
Í hvað fer svo veturinn hjá ykkur?
Hann fer bara alfarið í tónlistina, við stefnum á að
gefa út plötu fyrir jól og verðum bara að vinna á fullu
í henni. Við erum með gott efni og við viljum skila
því frá okkur eins vel og það á skilið. Svo er auðvitað
Airwaves, við erum ON venue í ár þannig að við
erum komnir aðeins lengra en í fyrra. Síðan langar
okkur bara að koma sem mest fram, við teljum að
góðir tónlistarmenn verði bara betri með æfingunni.
Við erum svolítið Live band og hvetjum alla sem
hafa heyrt í okkur til þess að koma á tónleika og vera
hluti af þessu með okkur. Fá þetta beint í æð!
Kemur þessi nýja plata til með að vera meira á
ensku eða íslensku?
Hún verður að miklu leyti á ensku, en ég hef
12 MONITOR FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013
Texti: Hersir Aron hersir@monitor.is
Myndir: Golli golli@mbl.is
Hann er getinn á
Hawaii og orðið
Kaleo þýðir „the sound“
á hawaii-ísku.
JÖKULL
Á 30 SEKÚNDUM
Fyrstu sex: 200390.
Fyrirmynd: Jesú.
Það leiðinlegasta sem ég
geri: Að taka til eða raða
hlutum.
Það skemmtilegasta sem ég
geri: Að spila tónlist.
Það sem ég geri til þess að
slaka á: Ég geri vel við mig,
læt kannski renna í heitt bað.