Monitor - 05.09.2013, Qupperneq 22
Það hefur lengi vel
þótt móðins að gera
kvikmyndir sem eiga sér
stað í fjarlægri framtíð og
hafa margir hverjir reynt
það með misgóðum
árangri. Nýjasta spilið
úr þessum bunka er
Elysium sem segir frá
útvöldum hópi fólks sem
býr á hálfgerðri útópíu fyrir utan
jörðina. Þar geta milljarðamær-
ingar notið lífsins í vellystingum
á meðan allir aðrir þurfa að búa
á jörðinni sem er að rústum
komin. Elysium segir frá afbrota-
manninum Max (Matt Damon)
sem slasast í vinnuslysi og er
tilbúinn að gera allt til að komast
á Elysium í leit að lækningu. Það
reynist honum erfitt þar sem
varnarmálaráðherra útópíunnar,
Delacourt (Jodie Foster), gerir allt
sem í hennar valdi stendur
til að stöðva flóttafólk í
leit að betra lífi.
Þessi hugmynd
að kvikmynd er
ekkert endi-
lega ný af
nálinni en
hún er
útfærð á mjög skemmti-
legan máta. Á bakvið
stýrið er leikstjórinn
Neil Blomkamp sem
þreytti frumraun sína á
hvíta tjaldinu með hinni
stórkostlegu District 9.
Þó svo að þessi nýjasta
kvikmynd hans sé ekki
alveg í sama klassa þá
er hún engu að síður reglulega
skemmtileg og ber sterkan keim
af handbragði hans sem virðist
einkennast af mögnuðum tækni-
brellum og reglulega illskeyttum
,,vonda kalli”.
Leikararnir skila allir sínu vel
en má þar nefna ofangreinda
Matt Damon, Jodie Foster og Di-
ego Luna. Lang, langbestur er þó
Suður-Afríkubúinn Sharlto Cop-
ley. Hér endurnýjar hann kynni
sín við leikstjórann, en í staðinn
fyrir að leika söguhetjuna eins
og í District 9 er hann illmennið
í þetta skiptið. Geðveikin og
illskan skín gjörsamlega úr
augunum hans og hugsaði ég
oft á meðan kvikmyndinni stóð
hversu ömurlegt það væri að
lenda í sama herbergi og þessi
maður.
Elysium er kannski
ekki að finna upp
hjólið en hún er að
betrumbæta það.
Leitin að betra lífi
K V I K M Y N D
ELYSIUM
HJÁLMAR
KARLSSON
Aðdáendur hljómsveitarinnar One
Direction hafa ærið tilefni til að gleðjast því
tónleika- og heimildarmynd um sveitina
verður frumsýnd á föstudaginn.
One Direction: This is Us er vönduð heim-
ildarmynd í 3D eftir Íslandsvininn Morgan
Spurlock um eina vinsælustu hljómsveit
heims. Áhorfendur fá að njóta stórbrotinna
upptaka af tónleikum ásamt því að saga
sveitarinnar er rakin allt frá því að Simon
Cowell spyrti saman þá Niall, Zayn, Liam, Harry og Louis
í X-Factor sjónvarpsþáttunum þar sem þeir slógu í gegn.
Morgan Spurlock fékk óheftan
aðgang að hljómsveitinni og er
óhætt að lofa því að aðdáendur
fá hér að komast nær meðlim-
um hennar en nokkru sinni
áður.
Miklu færri komust að en
vildu þegar myndin var sýnd
á sérstakri heimsforsýningu
hérlendis fyrir skömmu síðan,
í beinni frá London, því smekkfullt var á sýninguna í
tveimur sölum og stemningin í Smárabíói engri lík.
skjámenning
FRUMSÝNING HELGARINNAR
One Direction: This is Us
Leikstjóri: Morgan Spurlock
Aðalhlutverk: Meðlimir One
Direction
Hvar: Smárabíói, Háskólabíói og
Borgarbíói Akureyri.
Aldurstakmark: Öllum leyfð
Lengd: 92 mínútur.
20 MONITOR FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013
VILTU
VINNA
MIÐA?
facebook.com/monitorbladid
„This one time, at band camp..“
American Pie
Nú hefur heldur betur
hlaupið á snærið hjá
eigendum leikjatölva
því sjálfur Diablo III er
mættur í öllu sínu veldi,
en þessi leikur er einn sá
söluhæsti á PC-tölvurnar
og því magnað að þetta
dýr skuli detta núna inn af fullum
krafti á PlayStation 3 og Xbox 360.
Söguþráður leiksins er svo sem
ekkert magnað ritverk sem á eftir
að lifa af fleiri kynslóðir, en hann
þjónar leiknum vel, en hann
gengur í raun út á að drepa
allt sem fyrir er og
hreinsa svæðið
af djöflum og
alls kyns
kvikindum.
Spilun
Diablo III
er svoköll-
uð „hack
n slash“
spilun, en í
stuttu máli er
hún þannig að
leikmenn hamast
á stýripinnanum og
berja á allskyns dýrum. Við
þessa iðju nota leikmenn hin
ýmsu vopn, hluti og galdra. Þetta
er kannski ekki flóknasta spilun
í heimi, en hún er mjög ávana-
bindandi og er maður nánast
eins og í leiðslu þegar hamrað
er á takkana á stýripinnanum.
Eftir því sem á leikinn líður
verða óvinirnir öflugri, stærri og
sterkari og þurfa leikmenn þá
að beita nýjum brögðum til að
ganga frá þeim. Á milli
bardaga geta leikmenn
svo djúsað upp persón-
una sem þeir stýra og
ákveðið hvernig vopnum
hún skal vera búin.
Leikmenn geta spilað
Diablo III einir og sér, en aðalfjör-
ið liggur í að spila leikinn í co-op,
en þar geta allt að fjórir leikmenn
barist saman hlið við hlið á ein-
um og sama skjánum. Þannig að
Diablo III er sannkallaður „kaldur
á kantinum“-leikur sem er
frábært að spila í hóp.
Grafíkin í
leiknum er
stórgóð og ljóst
að yfirfærslan
frá PC hefur
tekist mjög vel
og leikurinn
aðlagaður
leikjavélunum
af mikilli
nákvæmni. Það
er því óhætt að
mæla sterklega með
Diablo III, en
leikurinn stenst
allar væntingar og
er einhver hrein-
asta skemmtun
sem undirritaður
hefur dottið í
og hefur hann
þó dansað
við djöfulinn í
fjölmörg ár.
Tegund: Hasar- og
hlutverkaleikur
PEGI merking: 16+
Útgefandi: Actisision
Dómar:
9 af 10 – Gametíví
9,3 af 10 – Game Informer
9 af 10 – Eurogamer.net
Diablo III
ÓLAFUR ÞÓR
JÓELSSON
TÖ LV U L E I K U R
Djöfullinn sjálfur
Þann 23. september hefst ný
þáttaröð sem ætlað er að vera
lokahnykkur í sögunni af hvernig
því hvernig sögumaðurinn Ted
kynntist barnsmóður sinni í How I
Met Your Mother. Við þurfum enn að
bíða eftir að fá að kynnast barns-
móðurinni en vert er að fræðast
um leikkonuna Cristin Milioti strax
í dag.
• Á síðasta ári var hún tilnefnd til
Tony verðlaunanna fyrir leik sinn í
söngleiknum Once.
• Hún hefur einnig komið fram í
gamanþáttunum 30 Rock sem „Sexy
baby“
• Hún var næstum handtekin fyrir
ölvun við akstur við tökur á HIMYM.
• Hún hóf leiklistarnám við New
York Háskóla en hætti fljótlega.
• Fyrsta launaða rullan hennar var í
The Sopranos.
• Hún er ekki á Facebook eða Twitter
og heldur sig í raun eins langt frá
Internetinu og hún kemst.
• Hún var fastakúnni á barnum sem
uppáhaldsbar aðalpersónanna í
HIMYM er byggður á.
Hver er mamman?