Akureyri


Akureyri - 17.10.2013, Side 10

Akureyri - 17.10.2013, Side 10
17. október 201310 www.bbkeflavik.com Aðeins 8.500 kr. fyrir tveggja manna herbergi! Gistihús Keflavíkur · Keflavíkurflugvelli · Valhallarbraut 761 · 235 Reykjanesbæ Sími 426 5000 · gistihus@internet.is Láttu fara vel um þig nóttina fyrir eða eftir flug og gistu hjá okkur. Þú geymir bílinn þinn hjá okkur, við keyrum þig upp á á flugvöll og sækjum þig aftur þér að kostnaðarlausu.. Ertu á leiðinni til eða frá landinu? Morgunverður er innifalinn Þráðlaus nettenging Rúmgóð herbergi með gervihnatta- sjónvarpi og baði Því ekki að byrja eða enda fríið í Bláa Lóninu, aðeins um 15 mín. akstur frá okkur, eða skoða Víkingasafnið, gamla hervöllinn og Reykjanesið? Við erum vel staðsett til að njóta alls þess sem Reykjanesið hefur upp á að bjóða. Tilvalið fyrir hvataferðir, fundi eða rómantískar stundir. Gott verð! Gildir til 1. maí 2014. Leikinn við limruformið Út er komin bókin Limrurokk eftir Magnús Geir Guðmundsson. Bókin byggir að nokkru á fyrri bók höf- undar, Geiravísum, (2004) en mikið úrval af óbirtum limrum eftir Magn- ús kemur hér á prent í fyrsta skipti. Í aðfararorðum lýsir höfundur því að limruformið hafi lengi verið hon- um hugleikið og kært. Skáldskap- artíð höfundar í nálgun við formið spanni í tvo áratugi og víst er að á þeim æfingartíma hefur Magnús Geir náð færni í að beisla hnyttna hugsun. Hann er leikinn í formi lim- runnar. Stundum svo rís langt upp fyrir meðalmennsku. Umfjöllunarefnin eru af ýmsum toga en hálfkæringur, húmor og kaldhæðni eru oft áberandi eins og hentar limruforminu ágætlega. Limran gengur ekki síst upp þegar síðasta vísuorðið hittir lesandann óvænt fyrir eða setur það sem á und- an er gengið í nýtt samhengi. Það tekst oft allvel. Samt er það svo að þegar fer saman mennska, einlægni og húmor finnst mér höfundi takast hvað best upp eins og t.d. hér: Tilvistarkreppa Heimur hnignandi fer, helst það bitnar á mér, þegar þunglyndisfjandinn, þrífur upp brandinn og brjóst mitt brennir og sker. Nístir og nagar mig efinn, hver næst verða framtíðarskrefin? Er ég leiddur á leið, um lífssundin breið, eða týndur og tröllum gefinn? (bls. 20) Margir kynnu að hafa gaman af limrum höfundar um þjóðþekkt fólk. Þá fá fréttamál og þjóðþekkt deilumál á sig listrænt yfirbragð á köflum – sumt höfðar sérstaklega til Norðlendinga eins og t.d. deilan innan Akureyrarslökkviliðsins: Þótt búi hér flestir í friði finnst „hiti“ á ákveðnu sviði. Erfiðismál, já, ófriðarbál, þarf að slökkva hjá slökkviliði! (bls. 39) Bókin er 112 bls. að lengd og er vert að geta frábærrar bókarkápu sem Jakob Jóhannsson hannaði. Mér fannst bókin skemmtileg afþreying og stundum náði Magnús Geir að setja ýmis mál, staðbundin við Norð- urland eða ekki, í nýtt og frumlegt ljós. Oft hefur verið lagt upp fyrir minna. a rItDóMUr Björn Þorláksson

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.