Akureyri - 17.10.2013, Side 8
8 17. október 2013
VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA?
Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem
sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í
blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu-
póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856.
LOF OG LAST VIKUNNAR
LAST fá kúabændur fyrir að fylla Eyjafjörðinn
af skítalytk vetur, sumar, vor og haust. Svo skrifar
íbúi á Akureyri í tölvupósti til blaðsins.
Með sama hætti og lofi hefur rignt yfir Leikfélag
Akureyrar vegna frumsýningar á SEK fær
Freyvangsleikhúsið LOF fyrir metnaðarfulla
uppfærslu á Emil í Kattholti en frumsýning fer
fram annað kvöld. Þetta segir leiklistaráhugamaður
í Eyjafirði í bréfi til blaðsins. Um ræðir leikgerð sem
ekki hefur verið sýnd áður hér á landi eftir Sören
Dahl og Anders Baggesen. Svo skemmtilega vill
til að 50 ár eru síðan fyrsta bókin kom út um Emil
og strákapör hans...
LOF fá myndlistarmenn um heim allan en
fjórar sýningar voru opnaðar sl. laugardag í
Gilinu á Akureyri og þóttu takast vel. „Ekki er til
neitt skemmtilegra en að rölta milli sýninga, hitta
mann og annan, samgleðjast listamönnunum og
njóta líðandi stundar, segir áhugamanneskja um
list og fólk í bréfi til blaðsins...
LOF fær Kristján Þór Júlíusson fyrir að koma í
settið í Kastljósi ekki alls fyrir löngu og taka umræðu
um heilbrigðismál, í félagi við aðra viðmælendur.
Þetta skrifar glöggur áhugamaður um stjórnmál
og fjölmiðla. Bendir hann á að margir ráðherrar
hafi reynst tregir til að ræða viðkvæm mál nema
fá að mæta einir í viðtöl. Alþýðleiki Dalvíkingsins
Kristjáns Þórs er sagður hjálpa honum, enda veiti
ekki af þar sem flest spjót standa á ráðherranum...
LOF fá smiðir við Húsmæðraskólann við
Þórunnarstræti en þar stefnir í „mjög gott
starf“, skrifar karl sem segist hafa „vit á málinu“.
Umdeilt var þegar meirihlutinn í bæjarstjórn
Akureyrar ákvað að breyta húsinu sem er ein af
perlum Guðjóns Samúelssonar. Minna fer fyrir
efasemdaröddum í seinni tíð. E.t.v. vegna þess
að horfir í vel heppnaða framkvæmd...
LAST fá eigendur hunda sem ekki þrífa upp
eftir þá. Svo segir kona í bréfi til blaðsins. Á
sunnudagsmorgun gekk hún úr eigin húsi en
varð fyrir henni úrgangur á gangstétt fyrir framan
húsið þannig að konunni skrikaði fótur. Úff...
NORÐURLJÓSIN GLÖDDU ÍSLENDINGA í vikunni sem er að líða og annað kvöld klukkan 18 opnar sýning á norðurljósamyndum í Listhúsinu
í Fjallabyggð. Þar verður einnig fagnað útgáfu nýrrar bókar með ljósmyndum og sögum af norðurljósunum sem lýsa okkur stundum leið um
náttmyrkrið. Þessa kraftmiklu mynd tók Lára Stefánsdóttir í Héðinsfirði síðastliðið miðvikudagskvöld.
AKUREYRI VIKUBLAÐ 39. TÖLUBLAÐ, 3. ÁRGANGUR 2012
ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is.
AUGLÝSINGASTJÓRI Ruth Bergsdóttir, ruth @ fotspor.is 578-1193 og 694-4103.
RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri.
UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING
13.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND
Köttur í
jakkafötum
Akureyri vikublað vex og dafnar, þökk starfsfólki, lesendum og auglýsendum. Blaðið í dag er 24 síður
í stað 16 áður og munar um minna en 50% stækkun.
Stefnt er að útgáfu blaðsins í 24 blaðsíðna formi fram
að áramótum að minnsta kosti. Viðtökur auglýsenda
ráða að miklu leyti framhaldinu.
Blaðinu er dreift í 13.500 eintökum á Norðurlandi
og þýðir stækkunin töluverða þjónustubót fyrir lesend-
ur. Sú nýjung hefur verið tekin upp að kynna til leiks
nýja pistlahöfunda á baksíðu. Þá verður meira lagt
upp úr daglegu lífi en verið hefur. Til merkis um það
er nýtt þema, vikuleg opna, sem hverfist sérstaklega
um leik og störf íbúa á Norðurlandi. Í blaði dagsins
eru málefni barna tekin sérstaklega fyrir. Spurninga
spurt um tómstundir og lífsgæði. Ætlunin er að leggja
áherslu á mannlega þáttinn í innblaðsefnishlutanum
næstu mánuði. Stækkunin þýðir jafnframt að tveir
blaðamenn hafa nú atvinnu af því að skrifa blaðið í stað
eins blaðamanns áður. Í hlutastarfi er umbrotsmaður
og ljósmyndari. Þegar Akureyri vikublað hóf göngu
sína fór vinnsla önnur en ritun og efnisöflun fram í
Reykjavík. Blaðið hefur vaxið sem atvinnuskapandi
framtak í norðlensku héraði.
Á þessum tímamótum fer vel á því að þakka lesend-
um og heimildarmönnum fyrir gott samband milli
ritstjórnar og almennings á rúmlega tveggja ára út-
gáfutíma. Trúnaður við lesendur er mikilvæg auðlegð
þegar rekstur fréttamiðils er annars vegar. Kannski
er sá trúnaður og sjálfstæðar rannsóknir ritstjórnar
á fréttaskotum sem oft verða að hvössum fréttum ein
orsök þess að vísbending er um að mörkin hafa færst
til um það sem má skrifa um og hvað ekki í eyfirskum
fréttaheimi. „Herskáa héraðsfréttablaðið“ var fyrirsögn
í dagblaði sem fjallaði um Akureyri vikublað fyrir
skemmstu. Þar var vísað til þess að blaðið hefur verið
óhrætt að taka á málum sem annars hefðu e.t.v. verið
þögguð niður. Aðhaldshlutverk fjölmiðla, stundum
kallað varðhundshlutverkið, er enda eitt mikilvægasta
hlutverk fréttamiðla. Telja sumir að aðhaldshlutverkið
sé nú í vaxandi brennidepli norðlenskra fréttamiðla.
Fríblað sem birtir ágengar fréttir verður þó að gæta
jafnvægis og sanngirni. Mennskan og gæskan verður
líka að fá pláss. Viðbótarefnissíðurnar með stækkun
blaðsins verða sem fyrr segir einkum helgaðar hinu
mannlega. Kannski verður kokteillinn bragðbetri fyrir
vikið.
Vel hepppnaður fjölmiðill er samvinnuverkefni
almennings og starfsmanna. Fréttaskot frá almenningi
geta orðið til þess að dulin spilling kemst upp á yfir-
borðið þannig að hægt sé að taka á henni. Fréttaskot
geta líka verið ábendingar um krúttlega ketti sem sækja
kirkju og láta aldrei sjá sig utan heimilis nema með
pípuhatt í pressuðum tweed-jakkafötum. Lífið er alls
konar. Ósk ritstjórnar er að Akureyri vikublað nái að
spegla margbreytileikann.
Björn Þorláksson
AÐSEND GREIN GUÐRÚN HARPA ÖRVARSDÓTTIR
Furðum okkur á rökum Þórgnýs
Stjórn Myndlistarfélagsins á Akureyri
undrar sig á rökum Þórgnýs Dýrfjörð
framkvæmdastjóra Akureyrarstofu
vegna uppsagnar Hannesar Sigurðssonar
forstöðumanns Sjónlistamiðstöðvarinnar.
Þórgnýr sagði á dögunum að Hannes
hafi komið Sjónlistamiðstöð-
inni af stað af krafti en flókið
mál sé til lengdar að halda tvö
heimili, búa bæði í Reykjavík
og á Akureyri. „Það er megin
ástæðan fyrir því að Hannes
kýs að fara frá borði heldur
fyrr en ætlað var,“ segir Þór-
gnýr Dýrfjörð í Akureyri viku-
blaði í síðustu viku.
Þess má geta að Hannes hefur búið
í Reykjavík til fjölda ára og verið yfir
bæði Listasafninu á Akureyri og Sjón-
listamiðstöðinni þann tíma.
Ástæða uppsagnarinnar og hin raun-
verulega skýring hlýtur að liggja hjá
þeim sem hófu rannsóknina á stjórn-
sýslulegum, samskiptalegum og rekst-
arlegum athöfnum sjónlistastjóra sem
fór í gang síðsumars.
Og er þá ekki nauðsynlegt að málið
verði upplýst af bæjaryfirvöldum?
Nýverið leituðu listamenn til Mynd-
listarfélagsins vegna mjög alvarlegra
mála sem snúa að forstöðumanni Sjón-
listamiðstöðvarinnar Hannesi Sigurðs-
syni. Til að komast að því sanna í mál-
inu sendi formaður Myndlistarfélagsins
Guðrún Harpa Örvarsdóttir bréf til Ei-
ríks Björns Björgvinssonar bæjarstjóra
Akureyrar. Hann svaraði því bréfi eftir
bestu getu að hans sögn en vildi einnig að
sjónlistastjóri svaraði fyrir sig varðandi
eitt ákveðið mál sem fram kom í bréfinu.
Engin svör hafa borist formanni félagsins
frá Hannesi varðandi það mál. Hann segir
svo starfi sínu lausu viku eftir
að bréfið barst til bæjarstjóra.
Þrátt fyrir það að Hannes
sé ,,hættur” er nauðsynlegt að
fá svör við þessum spurningum
og hefur því formaður Mynd-
listarfélagsins ítrekað spurn-
ingar sínar til bæjarstjóra en
ekki fengið svör við þeim öllum
að svo stöddu. Hér er um alvar-
legt mál að ræða sem krefst skýringa og
vonast stjórn Myndlistarfélagsins eftir
þeim sem fyrst.
Stjórnin veltir einnig vöngum yfir því
þar sem Hannes hefur látið af störfum
sem forstöðumaður, hvers vegna upp-
sagnarfresturinn hafi verið lengdur? En
Þórgnýr Dýrfjörð segir það hafa ver-
ið gert til þess að ráðrúm gæfist til að
ljúka undirbúningi næsta starfsárs og
finna arftaka. Einnig mun Hannes verða
sýningarstjóri sumarsýningar Sjónlista-
miðstöðvarinnar 2014.
Er Hannes þá ekki ennþá samkvæmt
þessu, forstöðumaður Sjónlistamið-
stöðvarinnar eða ætlar Þórgnýr Dýr-
fjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu
að reka hana án forstöðumanns fram
á næsta haust og hafa Hannes sem
óbreyttan starfsmann ?
Enn þann dag í dag er Sjónlista-
miðstöðin rekin af Akureyrarstofu án
skipurits og safnalaga, þrátt fyrir að það
séu tvö ár liðin síðan hún var stofnuð og
nú verður hún rekin áfram samkvæmt
okkar skilningi án forstöðumanns!
Höfundur er formaður
Myndlistarfélagsins á Akureyri
Enn þann dag í dag
er Sjónlistamiðstöðin
rekin af Akureyrar-
stofu án skipurits og
safnalaga, þrátt fyrir
að það séu tvö ár liðin
síðan hún var stofnuð
og nú verður hún rek-
in áfram samkvæmt
okkar skilningi án
forstöðumanns!
Guðrún Harpa
Örvarsdóttir