Akureyri - 12.12.2013, Síða 2
2 12. desember 2013
Steinsmiðja Akureyrar
Glerárgata 36, S: 466 2800
Opið mán.-föst. kl. 13-18
Lampar frá:
4.900-
Kertastjakar:
1.900-
Falleg lýsing í skammdeginu
Einstök og hlýleg jólagjöf
Þingeyjarsveit greiði
konu milljón í bætur
Héraðsdómur Norðurlands eystra
hefur dæmt sveitarfélagið Þingeyj-
arsveit brotlegt og til að dæma konu,
fyrrverandi skólastjóra, tæpa milljón
króna í bætur.
Konan, Gróa Hreinsdóttir, krafð-
ist greiðslu upp á tæpar 10 milljónir
króna í skaðabætur en hún starfaði
tímabundið frá janúar 2008-2009
sem skólastjóri tónlistarskóla sem
hafði verið rekinn í tengslum og
samvinnu við Hafralækjarskóla í
Aðaldal. Tónlistarskólinn var lagð-
ur niður 1. ágúst 2009, en í staðinn
stofnuð sérstök tónlistardeild við
Hafralækjarskóla. Konan sótti um
en fékk ekki þar sem brasilískur
karlmaður var ráðinn. Konan kærði
ákvörðunina til samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðuneytisins, sem kvað
upp úrskurð 20. september 2010.
Var niðurstaða ráðuneytisins að
ákvörðun stefndu um ráðningu karls
í stöðu deildarstjóra við skólann í
júlí 2009 væri ólögmæt.
Bótakrafa Gróu samsvarði tvö-
földum árslaunum auk miskabóta.
Hún flutti burt úr Þingeyjarsveit eft-
ir að hún varð fyrir þessari höfnun.
Í vörnum Þingeyjarsveitar kemur
fram að þótt reynsla konunnar hefði
verið meiri en þess sem fékk starfið
hafi það þótt þjóna þörfum skólans
að ráða brasilískan tónlistarmann
til að geta boðið upp á fjölþjóðlega
tónlistarmenntun, framandi menn-
ingarstrauma og fjölbreyttara úrval
hljóðfæra. Héraðsdómur segir hins
vegar: „Ekki verður séð að komið
hafi til greina að mati stefndu að
velja aðra umsækjendur en stefn-
anda úr hópi þeirra sem sóttu um.“
500.000 krónur af heildarbótum
metur dómurinn sem miskabætur.
Hitt er fjártjón. a
Frímerkjafé fór
ekki í kaffihúsið
Vegna óvissunnar um framgang
rekstrar kaffihúss í Lystigarðinum
hafa Akureyri vikublaði borist fyr-
irspurnir frá bæjarbúum sem vilja
vita hvað varð um andvirði frí-
merkjasafna þar sem annað þeirra
var eyrnamerkt Lystigarðinum. Hef-
ur því verið haldið á lofti að fé fyrir
frímerkjasafn sem gefið var bænum
hafi átt að fara í kaffihús í garðinum.
Oddur Helgi Halldórsson, for-
maður framkvæmdaráðs og formað-
ur stjórnar Fasteigna Akureyrarbæj-
ar, segir að bærinn hafi fengið tvö
söfn til ráðstöfunar. Fyrra safnið var
frá Jakobi Kvaran. Það var selt á
uppboði hjá Postiljonen í Svíþjóð í
október 2010. Fengust rúmar fjórar
milljónir fyrir það.
Í bókun bæjarráðs frá 28. október
2010 segir að bæjarráð feli félags-
málaráði að ráðstafa þeim fjár-
hæðum sem fengust úr uppboðinu í
þágu eldri borgara á Akureyri sam-
kvæmt samningi við ekkju gefanda
frímerkjasafnsins. Jafnframt feli
bæjarráð bæjarritara að láta meta
safn Axels Schiöth sem hann gaf Ak-
ureyrarbæ en andvirði þess safns
skuli renna til Lystigarðsins.
Safnið frá Axel Schiöth reyndist
verðminna, en það var selt hjá
Postiljonen að hluta og að hluta hér
innanlands. Í bókun framkvæmda-
ráðs síðar segir að andvirði þess eigi
að renna til Lystigarðsins vegna 100
ára afmælis garðsins 2012.
Oddur segir að niðurstaðan hafi
orðið sú að framkvæmdaráð sam-
þykkti að fela starfsmönnum fram-
kvæmdadeildar að koma með tillögu
að framkvæmdum í Lystigarðinum
fyrir kr. 1.500.000. Féð fyrir frímerk-
in hafi ekki farið í kaffihúsið. Spurð-
ur nánar í hvað peningarnir fóru
segir Oddur Helgi að féð hafi meðal
annars farið í skilti og merkingar
vegna afmælisins. Framkvæmda-
deild sjái um garðinn en Fasteignir
Akureyrarbæjar um húsið. a
Merkja gömul hús
með skiltum
Hverfisnefndin í Hlíða- og Holta-
hverfi vinnur nú að því að merkja
öll gömul hús í hverfinu með skiltum.
Um ræðir hús sem eiga sér nöfn sem
eru eldri en göturnar sem þau standa
við, gjarnan hús sem standa þar sem
voru áður voru gamlir bóndabæir.Að
minnsta kosti 50 hús slík hús eru á
þessu svæði og kannski fleiri að sögn
Óskars Inga Sigurðssonar, fulltrúa í
hverfisnefndinni. Hann segir að búið
sé að senda út bréf en vel kunni að
vera að ekki hafi allir hlutaðeigandi
fengið upplýsingar og biður hann
fólk að hafa samband við nefndina
en formaður hverfisnefndarinnar er
Berglind Rafnsdóttir.
„Tilgangurinn með merkingunni
er aðallega sá að þessi nöfn gleymist
ekki. Húsin eiga sér sögu og það þarf
að viðhalda sögunni,“ segir Óskar
Ingi.
Fjárveiting fékkst frá bænum
fyrir afmælispening og geta allir
sem vilja fengið skilti á hús sín að
uppfylltum fyrrgreindum skilyrð-
um. Ekki er vitað til þess að svona
verkefni hafi verið unnið áður á
Akureyri en Óskar Ingi segir íbúa
almennt hafa tekið vel í hugmyndina.
Starfsmenn Minjasafnsins búi yfir
miklum fróðleik um sögu húsa á
Akureyri sem hægt sé að sækja í á
öllum tímum. Þetta verkefni gangi
aðallega út á að merkja þau hús sem
eiga sér nöfn. a
Spáir sameiningu VG og Samfylkingar
Össur Skarphéðinsson, fyrrum utan-
ríkisráðherra og núverandi þingmað-
ur Samfylkingar, spáir því að Vinstri
græn og Samfylkingin muni samein-
ast í einn stjórnmálaflokk á þessum
áratug. Hann segir að ein ástæðam
sé að Steingrímur J. Sigfússon sé
hættur forystustörfum fyrir VG og
Katrín Jakobsdóttir hafi fengið um-
boð til að leiða VG til nýrra hátta.
Þetta kom fram í samtali Akur-
eyrar vikublaðs við Össur nú í vik-
unni. Tilefnið var bókarútgáfa Öss-
urar en ekki síður sú skoðun sem
oft heyrist í umræðunni að síðasta
ríkisstjórn, hin svokallaða vinstri
velferðarstjórn, hafi reynst sjálfri sér
verst vegna „sögulegs sundurlyndis
vinstri manna“ eins og það er jafn-
vel orðað í kennslubókum í stjórn-
málafræði. Aðspurður hvort Össur sé
sammála þessu, svarar hann að hann
hafi reynslu af setu í fjórum ríkis-
stjórnum og geti því borið saman
aðstæður. Ríkisstjórn Jóhönnu Sig-
urðardóttur hafi tekið við á „gríðar-
legum örlagatímum“, þar sem þurfti
að taka margar og
erfiðar ákvarðan-
ir. Ekki hafi allt
tekist vel, t.d. hafi
fyrri ríkisstjórn
ekki náð nægilega
vel utan um þann
hóp húsnæðis-
skuldara sem var
með verðtryggð
lán. „Þessi ríkis-
stjórn var átaka-
mest allra stjórna sem ég hef setið
í en okkur tókst það afrek að koma
Íslandi aftur á kjöl. Ég held það
hafi verið aðstæðurnar sem sköp-
uðu erfiðleikana fremur en sérstakt
eða sögulegt sundurlyndi vinstri
vængsins. Ríkisstjórninni tókst að
sigla skeiðið á enda og hinn mál-
efnalegi ágreiningur varð aldrei
persónulegur. Hið persónulega var
hins vegar stundum átakaeinkenni
annarra flokka fyrr á árum.“
Nánar um þetta segir Össur að
sjálfstæðismenn hafi ekki síst lent í
miklum fyrri tíma átökum ig þegar
hann hafi alist upp í háskólapólitík-
inni hafi verið gríðarlegt sundurlyndi
á vinstri vængnum, tengt NATO.
Nú sé þetta farið og Steingrímur
J. Sigfússon stiginn til hliðar sem
forystumaður VG.
„Ég spái því að á
þessum áratug
muni VG og Sam-
fylking sameinast
í einn flokk, það er
komin ný kynslóð
innan VG og ég sé
ekki mikinn mun
á hennar gildum
og þeim sem eru í
Samfylkingunni.
En þá er staðan líka þannig að við
erum með Bjarta framtíð líka sem
skilgreinir sig sem frjálslyndan
miðjuflokk. Almennt talað held ég
að það sé í gangi mjög langvinn upp-
skipting í pólitíkinni núna, þú sérð
hana birtast í þessum kvíslum sem
urðu til þess að flokkar eins og VG
og Samfylking urðu til ekki alls fyrir
löngu. Þú sérð hana birtast í því að
Sjálfstæðisflokkurinn, sem talið er
að gangi vel núna, sé að „óperera“ á
fylgi sem er 12-13 prósentum undir
jafnaðarsögulegu fylgi þeirra. Allir
bara ánægðir þar á bæ þótt Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi fallið niður
um tvær áttundir. Í Reykjavík tel
ég engar líkur á að sjálfstæðismenn
nái aftur meirihluta í borginni, sem
áður var regla. Fyrir ári hefði ég sagt
að Framsóknarflokkurinn væri að
skreppa saman og fara sömu leið og
systurflokkar á Norðurlöndunum en
nú er hugsanlegt að þeir nái að stað-
setja sig sem miðjuflokk til hægri.
Það var það sem Halldór Ásgrímsson
vildi,“ segir Össur. a
ÖSSUR SKARP-
HÉÐINSSON
STEINGRÍMUR
J. SIGFÚSSON
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
JÓHANNA SIG-
URÐARDÓTTIR
HÖFÐI ER EITT húsanna sem þegar er búið að merkja með skilti. Hús eiga sér sögu og það þarf að viðhalda sögunni, segir fulltrúi í
hverfisnefnd sem stendur að framtakinu. Völundur
ÁRÉTTING
Í grein um Zonta sem birtist í 44.tbl. skal áréttað að Zontaklúbburinn Þórunn
hyrna hefur styrkt rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi við Háskólann á Akur-
eyri með peningagjöf. Ennfremur hefur klúbburinn unnið með starfsmanni
miðstöðvarinnar að því að halda ráðstefnu undir yfirskriftinni "Zonta segir
nei: Stöðvum ofbeldi gegn konum."