Akureyri


Akureyri - 12.12.2013, Page 16

Akureyri - 12.12.2013, Page 16
16 12. desember 2013 Um hland kölska og heila geðsmuni „Það er auðvitað deginum ljósara að manneskja sem kann ekki að njóta náttúrufegurðar Norðurlands er ekki heil á geðsmunum!“ Þetta segir rithöfundurinn Sindri Heimisson sem rekur ættir til Aðal- dals og hefur nú sent frá sér nýja bók, Blindhríð, þar sem náttúrufegurð Norðurlands kemur öðrum þræði við sögu í kafla sem hér fer á eftier. „Blindhríð er spennutryllir um Stefán, landsþekktan veðurþul hjá sjónvarpsstöðinni Stöðin, sem lend- ir í gríðarlegum hremmingum eftir skyndikynni með breskri konu, Violu, sem hann hittir í flugvél á leið til Íslands. Að þeim loknum á Stefán ekki von á að sjá rekkjunaut né heyra nokkru sinni. En annað kemur ald- eilis á daginn,“ segir Sindri. Viola er á leið í hópferð hringinn í kringum Ísland og skrifar honum fyrsta bréfið strax í Gauksmýri og síðan á næstu áfangastöðum, þar á meðal Mývatni. „Í stað þess að njóta ægifagurrar náttúrunnar þar tek- ur hún fremur þann pól í hæðina sem Jón Árnason gerði í þjóðsögum sínum, en hann vildi meina að Mý- vatn hefði verið myndað úr hlandi kölska og væri það með „eindæm- um ljótt stöðuvatn“ og mývargur- inn sannkallað kvalræði fyrir menn og málleysingja umhverfis vatnið. Bréfin berast Stefáni ótt og títt og síðan haglél tölvupósta þegar hún snýr aftur til London og margskon- ar hugmyndaríkt en að sama skapi ógnþrungið áreiti á Netinu. Stefán gerir sér fljótlega ljóst að hann er orðinn skotmark vægðarlausra of- sókna, tilvera hans kollsteypist og líf hans er í hættu. Hann þarf að velja hvort hann sætti sig við að kikna undan heiftarlegri atlögunni að ver- öld sinni og einkalífi eða snúist til varnar með róttækum aðferðum og grípi til vopna. Rafrænar ofsóknir eru ein helsta hættan sem stafar að friðhelgi og einkalífi nútímamanns- ins og ótrúlega margir verða fyrir slíku; allir sem á annað borð nota farsíma og tölvur eru hugsanleg skotmörk,“ segir Sindri. Við fengum leyfi hjá Sindra til að birta kafla úr bókinni þar sem Viola, konan sem ofsækir aðalpersónuna Stefán, er í hringferð um landið og skrifar honum ótt og títt. Hún er á Mývatni þegar hún skrifar honum annað bréfið og einsog fram kemur í vangaveltum hans í niðurlagi síðunnar, botnar hann ekk- ert í því að hún sé ekki betri túristi en raun ber vitni. „Mývatn. Föstudagskvöld – birtan er hafblá. Elsku besti S. Það var unaðslegt að heyra rödd þína og fá það líka á til- finninguna að þú bíðir í ofvæni eftir næsta bréfi frá mér (þú varst næst- um klökkur þegar þú spurðir: Hvar póstlagðir þú þetta langa bréf?). Á hinn bóginn særðir þú mig AFTUR! með því að segja mér AFTUR! að þú sért landsfrægur. Að allt kvenkyns á eyj- unni elti þig á röndum. Að margar konur vildu vera í MÍNUM! sporum. Eru veður- fréttamenn virkilega svona þekktir á Íslandi?! Er öll þjóðin á bólakafi í regnskúrum og vindstigum? Eruð þið öll snargeggjuð?! Kona í hópnum lét mig fá svefn- pillu í dag. Ég hef varla sofið dúr seinustu einmanalegu nætur. Þessar andvökur fara illa í mig. Til þess að þú kynnist mér betur ætla ég að reyna að lýsa lífi mínu í stórum dráttum: Pabbi elskaði Ítalíu og allt ítalskt og réð því að ég var skírð Viola. Þú sagðir mér að ef ég væri íslensk héti ég Fjóla og ég er alltaf að verða ánægðari með það nafn, hljómurinn er svo framandi og kynæsandi. Pabbi sagði að ég hefði verið skírð eftir fínlegu sjöstrengja hljóðfæri, viola d’amore (fjóla ástarinnar?), formóður fiðlunnar. Mamma sagði hins vegar að ég hefði verið skírð eftir blóminu, að hún hefði gert sér vonir um að ég myndi fegra heiminn. Þeim bar ekki saman um nafn mitt fremur en nokkuð annað. Túlkanir þeirra á veröldinni flutu hlið við hlið einsog tvær segulmagnaðar málmflísar sem er ókleift að snertast, sem hrökkva alltaf hvor frá annarri. Ég vissi aldrei hvoru þeirra ég átti að trúa. Hélt jafnvel að um væri að ræða samantekin ráð þeirra til að hringla í hausnum á mér. En núna veit ég að þau hefðu aldrei getað sam- mælst um svo kvikindislega brellu; gjáin á milli þeirra var of breið. Alla bernsku mína bar ég því nafn hljóð- færis og jurtar, ráðvillt en möglunar- laust. Plöntufiðla, fiðluplanta. Spratt nafn mitt úr náttúrunni eða iðngrein? Alveg þangað til ég ákvað á unglings- aldri að halla mér að plöntunni. Í því fólst ekki nein stuðningsyfirlýsing við mömmu, hún var bara feit og ráðrík og heimsk kona. Nei, ég veðjaði á blómið því lykt hefur alltaf skipt mig meiru en tónlist. Ég hefði samt helst af öllu viljað vera skírð eftir Víólu í Jónsmessunótt Shakespeares; hún var fögur og klók og hreppti ástina sem hún þráði. Þessar viðbjóðslegu mýflugur sækja svo í augun á mér að ég verð að hætta að skrifa núna. Vona að ég finni frímerki. Fiðlublómið þitt, Fjóla. Ég las bréfið steini lostinn. Hvar í ósköpunum fann konan tíma og ráðrúm til að skrifa þessar langlokur og raunarollur? Hossaðist hún ekki í rútuskrjóð á vegaslóðum sem líktust skriðdrekatorfærum? Var hún ekki umkringd síkjaftandi túrhestum og myndavélasmellum öllum stundum? Hafði hún ekki greitt fúlgur fjár og afsalað sér þægindum, einkalífi og kyrrð til að geta barið hrikafögur öræfi Íslands augum frá morgni til kvölds? Var hún ekki hugfangin af klungri, köldum fossúða, hrjúfum bergtegundum og þúsund og einu mismunandi litbrigðum mosa? Af hverju eyddi hún lengri tíma í að þefa uppi pósthús á afskekktum krummaskuðum en að dást að fágæt- um klettamyndunum? Hvenær fór hringferð hennar að snúast um mig? Af hverju hafði hún meiri áhuga á mér en landinu fagra? Átti ég að vera upp með mér að hafa meira aðdráttarafl en Goða- foss eða Dimmuborgir? Djöfull hlaut ég að hafa staðið mig vel þarna um nóttina! Eða hvað? Ég tíndi síður bréfsins af gólfinu, raðaði þeim saman og smokraði ofan í umslagið. Daufur ilmur gaus upp úr því og kitlaði nef mitt. Ilmurinn af Violu Fillmore." a Sindri Heimisson

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.