Akureyri


Akureyri - 12.12.2013, Síða 20

Akureyri - 12.12.2013, Síða 20
20 12. desember 2013 HUGURINN SKIPTI ÞÓ MESTU Það var blik í auga og bros á vörum viðskipta- vina á Glerártorgi þegar tíðindamenn Akur- eyrar vikublaðs ákváðu að forvitnast lítillega um jólagjafainnkaupin. Í tilkynningu frá kaup- mönnum á dögunum sagði að jólaverslunin ylli vonbrigðum það sem af er. Ein ástæða er stóraukin netverslun frá útlöndum. Rannsókn blaðsins leiddi í ljós að þótt sumir séu tilbúnir að ræða jólagjafakaup svona utan dagskrár eru ekki allir hrifnir af því að flíka slíku tali í blöðunum. En eitt þema kom fram í öllum við- tölunum að viðmælendur væru ekki nálægt því að tapa sér í neysluhyggjunni fyrir jólin. Höfðu flestir á orði að hugurinn á bak við jólagjöfina skipti meira máli en gjöfin sjálf. Nokkrir í hópi viðmælenda mótmæla aukinni markaðshyggju og síauknum áhrifum korpórisma. ÁHYGGJURADDIR VEGNA MIÐBÆJARINS Markmið könnunar blaðsins var að spyrja fólk upp úr hverju það legði einkum við jólagjafainnkaupin. Svörin voru nokkuð ólík en folki virðist ganga ágætlega að velja gjafir, því enginn mundi eftir „hryllingssögum“ um gjafir sem alls ekki hefðu hitt í mark! Nokkuð mis- munandi er eins og segir sig sjálft hve miklu fé fólk hyggst verja í gjafir og hvort innkaup taka borgara langan tíma eða skamman. En þegar þegar fólk er spurt um framtíð miðbæjarins og þá ekki síst í tengslum við jólagjafaverslun lýsa margir áhyggjum. En eins og einn sagði: „Veðrið innan dyra á Glerártorgi er alltaf gott.“ BLÓTAÐ Á LAUN? Í kynningu á nýju miðbæjarskipulagi í síð- ustu viku kom fram að miðbær er andlit hvers bæjar. Heyrðust þær áhyggjuraddir við kynninguna að án líflegrar verslunar í miðbæ og fólki sem væri þar allan daginn, alla daga ársins, lentu miðbæir í krísu sem aftur gæti haft áhrif á allt bæjarfélagið. Á götunni heyrist stundum að ein ástæða minnkandi umsvifa í miðbæ Akureyrar séu stórmarkaðir utan miðbæjarins og Glerár- torg. Sumir sem blaðið ræddi við á Gler- ártorgi um síðustu helgi sýndu merki um sektarkennd þegar þeir sögðust kaupa sínar jólagjafir á Glerártorgi fremur en í miðbæn- um, enda tengja margir Akureyringar fyrri tilhlökkun fyrri jóla beint við gamla mið- bæinn. Glerártorg býr hins vegar yfir sérhæfðum búðum sem sumar bjóða upp á annan varning en stendur til boða í miðbænum. Það kom í ljós í samtölum við fólk að sú staðreynd að engin leikfangabúð er lengur starfrækt í mið- bænum kostar miðbæinn fjölda heimsókna og er af sem áður var. Nokkur fjöldi þeirra sem blaðið ræddi við sögðu það eina helstu ástæðu heimsóknar þeirra á Glerártorg að kaupa dót handa börnum í leikfangabúðinni stóru sem stendur gegnt Nettó en heitir ekki einu sinni íslensku nafni. Gefum nokkrum sem blaðið ræddi við orðið: TEXTI Björn Þorláksson MYNDIR Völundur Jónsson Fólk hreint ekkert að tapa sér í neysluhyggjunni! PÁLL SNÆR BRYNJARSSON SNÚIÐ AÐ VELJA GJÖF HANDA KONUNNI Páll Snær Brynjarsson býr ekki á Akureyri. Hann hefur þó taugar til bæjarins síðan hann stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri og á stundum erindi norður. Hann segist kaupa nokkurt magn af jólagjöfum árlega og reiknar með að upphæðin til jólagjafainnkaupa og umfang verði svipað í ár og í fyrra. Má geta þess að enginn viðmælandi blaððsins hyggst verja meira fé til jólagjafainnkaupa í ár en í fyrra þrátt fyrir aukinn mældan hagvöxt. Spurður um helstu áskoranir á aðventu hvers árs í gjafaleitinni, viðurkennir Páll að það taki stundum nokkurn tíma að finna gjöf sem honum lítist vel á handa eiginkonunni. Ekki vill hann þó kannast við að hann minnist þess að hafa lent í drastískum aðstæðum þótt gjöf hafi ekki hitt í mark! HALLDÓR ÁSKELSSON NOTAGILDI HLUTA Halldór Áskelsson var fljótur til svars þegar blaðið spurði um jólagjaf- irnar. „Já, ég kaupi helling.“ Spurður eftir hverju hann fari einkum við val á gjöfum segir Halldór: „Notagildi hluta. Stundum séu innkauppin dálítil brekka og hlaup milli verslana fram á aðfangadag. „En þetta lítur vel út núna.“ Halldór segir allan gang á hvort hann leiti fanga í miðbæ Akur- eyrar eða á Glerártorgi. Hann telji hvort tveggja mikilvægt. Þá komi Netið nú inn sem aldrei fyrr, enda sé ódýrara að kaupa gjafir þar en í hefðbundnum búðum. Halldór getur þess sérstaklega að nú bætist í hópinn gjöf handa nýju barnabarni. Akureyri vikublað óskar afanum og knattspyrnukapp- anum Halldóri Áskelssyni með meiru til hamingju með það. RÓSA KRISTÍN JÚLÍUSDÓTTIR VILL SKIPTA BEINT VIÐ LISTAMENN Rósa Kristín Jóhannesdóttir sker sig ögn frá öðrum viðmælendum blaðsins, spurð hvar hún kaupi einkum jólagjafir. Hún segist leggja áherslu á að leita fanga í galleríum og listhúsum. Best sé að kaupa af þeim sem selji milliliðalaust afurðir sínar. Hún vill hvetja fólk til að skipta við gallerí og einyrkja fyrir jólin. Rósa segist sjálf búa til nokkurn hluta þeirra gjafa sem hún gefur. Hún fordæm- ir þá stefnu að korpórismi ýti vöruverði niður þannig að minni keppinautar helt- ist úr lestinni eða að fólkið á bak við eigin sköpunina/vöruna, til dæmis rithöfundar, fái sáralítið fyrir sinn snúð ef verðinu sé ýtt niður. Rósa segir það „prinsipp“ eða grund- vallaratriði að kaupa bók í bókabúð en ekki í matvörumarkaði. Gildi einu þótt bókin sé eilítið dýrari í bókabúðinni.

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.