Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2013
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Ekki í eigu Gaums
Í frétt viðskiptablaðs Morg-
unblaðsins sl. fimmtudag var sagt
að 101 Hótel væri í eigu Gaums
sem tekinn hefði verið til gjald-
þrotaskipta. Blaðið hafði þessar
upplýsingar úr Rannsóknar-
skýrslu Alþingis. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Ingibjörgu Pálma-
dóttur er þetta ekki rétt, 101
Hótel er ekki í eigu Gaums og
hefur aldrei verið. Þetta leiðrétt-
ist hér með.
LEIÐRÉTT
Hæstiréttur þyngdi í gær refsingu
yfir 42 ára karlmanni sem ákærður
var fyrir þjófnað og brot gegn vald-
stjórninni. Maðurinn réðst að lög-
reglumönnum og hótaði m.a. að
smita þá af lifrarbólgu C. Héraðs-
dómur Reykjaness dæmdi manninn
í tíu mánaða fangelsi en Hæstirétt-
ur þyngdi refsinguna í 15 mánuði.
Maðurinn var sakfelldur fyrir
innbrot í bifreið á partasölu og
þjófnað á gólfmottum úr henni. Í
öðru lagi var hann sakfelldur fyrir
að hafa síðar sama kvöld hótað
tveimur lögreglumönnum að
blóðga sig og smita þá með lifr-
arbólgu C ef þeir reyndu að nálgast
hann. Í þriðja lagi var hann svo sak-
felldur fyrir að ráðast á lögreglu-
mann. Manninum hefur 20 sinnum
verið gerð refsing fyrir ýmis hegn-
ingarlagabrot, umferðarlagabrot
og brot gegn lögum um ávana- og
fíkniefni.
Hótaði að smita lögreglumann af lifrar-
bólgu C og refsing þyngd í Hæstarétti
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Nú er ekki lengur nein verð-
samkeppni á lyfjum sem sjúkra-
tryggingar taka þátt í að greiða, það
er sama verð alls staðar. Þeir hljóta
að vera kampakátir hjá lyfjakeðjun-
um og hjá Sjúkratryggingum Ís-
lands, sem er dálítið öfugsnúið,“
sagði Haukur Ingason, lyfsali í
Garðsapóteki, um þá ákvörðun sína
að hætta að veita mótframlag með
vissum lyfjum.
Eins og rakið hefur verið á síðum
Morgunblaðsins hefur Haukur deilt
við Sjúkratryggingar Íslands vegna
mótframlags, eða afsláttar, sem
hann veitir með lyfjum.
Sjúkratryggingar Íslands greiða
hluta af kostnaði lyfja sem falla und-
ir greiðsluþátttökukerfið og hefur
Haukur veitt afslátt af hlut sjúklinga
í lyfjaverðinu. Þessu una Sjúkra-
tryggingar Íslands ekki og tilkynntu
fulltrúar þeirra Hauki í sumar að
þær myndu stöðva sjálfvirkar
greiðslur til Garðsapóteks vegna
lyfja sem greiðsluþátttaka sjúklinga
nær til frá og með gærdeginum.
Spurður hvort hann játi sig sigraðan
svarar Haukur neitandi.
„Ég er ekkert sigraður, þessi lota
er búin en slagurinn heldur áfram.
Ég get hins vegar ekki staðið í þessu
ef sjúkratryggingar borga ekki
reikningana.“
Vísa Sjúkratryggingar Íslands til
reglugerðar nr. 313/2013 um
greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í
lyfjakostnaði sem tók gildi 4. maí sl.
og lýtur að þeim tilfellum þegar lyf-
salar veita afslátt
af smásöluverði
lyfja. Sjúkra-
tryggingar Ís-
lands telja
ákvæðið skýrt og
að afsláttur af
verði lyfs skuli
lækka smásölu-
verð og greiðslu-
þátttaka SÍ mið-
ast við afsláttarverðið, ef það er
lægra en lægsta verð lyfsins í lyfja-
verðskrá.
Telur ákvæðið ólöglegt
„Ég fékk loksins svar sl. þriðjudag
við bréfi sem ég sendi ráðuneytinu
12. júlí þar ég óskaði eftir því að um-
rætt reglugerðarákvæði yrði fellt
niður vegna skorts á lagaheimildum
og var kröfunni hafnað.
Niðurstaða ráðuneytisins olli mér
vonbrigðum, en rök ráðuneytisins
halda ekki vatni og staðfesta í raun
það sem ég hef alltaf haldið fram að
umrætt reglugerðarákvæði er kol-
ólöglegt, ráðherra hefur ekki heim-
ild til að lækka greiðsluþátttökuverð
lyfja sem lyfjagreiðslunefnd
ákveður, hvort sem það er vegna af-
sláttar eða einhvers annars sem ráð-
herra kann að detta í hug. Ráðherra
ætti því að hætta að hlusta á emb-
ættismannagerið sem hann er með í
kringum sig, skoða málið sjálfur,
drífa sig í að fella umrætt reglu-
gerðarákvæði niður og koma þar
með aftur á verðsamkeppni í lyfjum
sem SÍ tekur þátt í að greiða í sam-
ræmi við kröfur Neytendasamtak-
anna,“ segir Haukur.
Morgunblaðið/Sverrir
Lyf Eigandi Garðsapóteks hefur veitt mótframlag með lyfjum.
Lyfsali fær ekki
að veita afslátt
Eigandi Garðsapóteks gefst ekki upp
Haukur Ingason
Full búð af
nýjum töskum
og fallegum
fylgihlutum
Kringlan
Sími 533 4533
Enginn án matar
á Íslandi
Jólasöfnunin hafin
Söfnunarreikningur Fjölskylduhjálpar Íslands
546-26-6609, kt 660903-2590
Bæjarlind 6
Sími 554 7030
www.rita.is
Jakkar
kr. 8.900.-
Str. M - XXXL
Fleirri litir og
munstur
FRÁBÆR SNIÐ
SEM VIRKA
GALLABUXUR MEÐ
GÓÐRI TEYGJU
KOMDU OG
PRÓFAÐU!
FATAMERKI
ÁRS INS
201 1 Í USA
EIKJUVOGUR 29 - 104 RVK. - S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
www.spennandi.com
Laugavegi 54, sími 552 5201
Fleiri myndir á facebook
Dömudagar í Flash
Áður 16.990 kr.
nú 11.990 kr.
Áður 11.990 kr.
nú 8.390 kr.
30% afsl af völdum
vörum