Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2013 Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á Glussa-, vökva- og loftkerfi Boðið verður upp á ókeypis barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands á sunnudaginn klukkan 14. Helga Einars- dóttir safn- kennari mun ganga með börnunum. Í til- kynningu segir að ýmsir spenn- andi munir á safninu verði skoð- aðir, meðal annars beinagrindur, 1.000 ára gömul sverð, gamal- dags leikföng og dularfullur álfa- pottur. Leiðsögnin tekur um 45 mínútur. Barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Brúðan Konni býr á Þjóðminjasafninu. Yoko Ono mun tendra ljós Friðar- súlunnar í Viðey á afmælisdegi Johns Lennons 9. október. Samkvæmt upplýsingum frá Höf- uðborgarstofu býður Yoko Ono gestum, sem vilja vera viðstaddir tendrun súlunnar, í ókeypis kvöld- siglingu til og frá Viðey. Dagskráin við Friðarsúluna hefst klukkan 19. Siglingar til Viðeyjar verða frá Skarfabakka og hefjast klukkan 18. Fríar strætóferðir verða frá Hlemmi að Skarfabakka og til baka. Fyrsti vagn fer klukkan 18.40 frá Hlemmi og síðan á tutt- ugu mínútna fresti fram til kl. 19.40. Að athöfn lokinni siglir fyrsta ferja frá Viðey kl. 21 og munu strætisvagnarnir taka á móti fólki og flytja það að Hlemmi allt fram til 22.30. Friðarljós Friðarsúlan í Viðey. Friðarsúlan lýsir í Viðey í næstu viku STUTT Fræðslusamtök um kynlíf og barn- eignir (FKB) halda á mánudag op- ið málþing um kynheilbrigði á Norðurlöndum. Málþingið fer fram á Háskóla- torgi 101 klukkan 16.30-18.30. Sérfræðingar frá Noregi, Svíþjóð og Finnlandi segja þar frá því hvernig staðið er að kynfræðslu í grunnskólum í viðkomandi lönd- um. Í tilkynningu segir að megin- markmið FKB sé að stuðla að heil- brigðu kynlífi og tímabærum barneignum. Opið málþing um kynheilbrigði Stórbæta þarf laun og kjör lækna til að hindra frekari landflótta og stuðla að nýliðun í stétt sérfræðilækna. Þetta skrifar Helga Ágústa Sig- urjónsdóttir, sérfræðingur í lyflækn- ingum og innkirtla- og efnaskipta- sjúkdómum á lyflækningadeild Landspítalans, í grein í Lækna- blaðinu. Þar spyr hún hvort hægt sé að bæta skaða spítalans sem sé í sár- um eftir að þrengt hafi verið að hon- um fjárhagslega. Hún segir vandann sem blasir við Landspítalanum hafa verið fyr- irsjáanlegan og við honum hafi verið varað um árabil. Þeir sem hefðu átt að geta spyrnt við hafi ekki haft hátt um vandann. „Löngu fyrir bankahrun, í „góð- ærinu“, var stöðugt þrengt að sjúkrahúsinu fjárhagslega. Þetta sýndi forstjóri spítalans svart á hvítu með tölum sem hann lagði fram á fundi læknaráðs 20. sept- ember síðastliðinn. Eftir liggur sjúkrahúsið í sárum sem við óttumst að ekki verði hægt að bæta eða muni taka fjölda ára að gróa ef ekki verð- ur spyrnt strax við fótum,“ skrifar Helga Ágústa. Hafa ekki tækjakostinn Hún bendir jafnframt á að á Landspítala hafi verið sagt upp mörg hundruð öðrum starfsmönnum sem unnu störf sem styðja starf lækna og gera þeim kleift að nýta tíma sinn betur til lækninga. „Læknir sem ekki hefur ritara, sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga eða aðra lykilheilbrigðisstarfsmenn sér við hlið læknar færri sjúklinga. Punktur! Til að reyna að hindra þetta hafa allir hlaupið hraðar – en nú stöndum við á öndinni og þegar deildarlæknum á sviðinu hefur fækkað um meira en helming náum við ekki andanum lengur,“ skrifar Helga Ágústa. Auk þess sé tækjakostur sjúkra- hússins úr sér genginn á mörgum sviðum. Sérfræðilæknar hafi ekki lengur þann tækjakost eða þau úr- ræði sem voru talin sjálfsögð í fram- haldsnámi þeirra. Ekki sé því skrýt- ið að deildarlæknar á sviðinu séu flestir farnir. Þeir hafi val bæði inn- anlands og erlendis. Helga Ágústa fullyrðir að framtíð lyflækninga á Ís- landi sé í húfi. „Framtíð lyf- lækninga á Íslandi í húfi“  Sérfræðingur á lyflækningadeild segir Landspítalann í sárum Morgunblaðið/RAX Áhyggjur Helga Ágústa skrifar um stöðu Landspítalans í Læknablaðinu. Þrengingar » Rekstrarkostnaður Land- spítalans hefur dregist saman um 12% og stöðugildum fækk- að um 11% á síðustu fjórum ár- um að því er kemur fram í grein Helgu Ágústu. » Þjónustan hefur hins vegar aðeins minnkað um 3%. Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is Kynferðisofbeldi gegn fötluðu fólki er staðreynd í íslensku samfélagi að dómi Eyglóar Harðardóttur félags- málaráðherra. Hún hét því að gera sitt til að vinna að vitund- arvakningu um ofbeldið við upp- haf málþings um kynferðisofbeldi gegn fötluðum sem fór fram í gær. Tólf samtök stóðu að mál- þinginu, þar á meðal Stígamót og Öryrkjabandalag Íslands. Á meðal þess sem kom fram hjá þeim sem ávörpuðu þingið var að kynferðisofbeldið væri framið í skjóli valds og þagnar. Rannsóknir sýndu að fatlaðir ættu mun frekar á hættu að verða fyrir slíku ofbeldi en aðrir. Þá væri valdamunur á milli gerenda og fatlaðra einstaklinga mun meiri en hjá ófötluðum, t.d. ótti við að tilkynna ofbeldi eða misnotk- un. Þögnin væri meiri og þekkingin, t.d. varðandi eigin réttindi, minni. Þá hefðu þeir færri úrræði til að leita sér aðstoðar. Allar erlendar rannsóknir sýndu að ofbeldi gegn fötluðu fólki – ekki einvörðungu kyn- ferðisofbeldi – væri mjög útbreitt. Rannsóknir sem beindust að báðum kynjum sýndu að fatlaðar konur yrðu mun oftar fyrir ofbeldi en fatl- aðir karlar og væri þeim oft ekki trú- að þegar þær greindu frá ofbeldinu. Ná verr til fatlaðra Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, sagði á málþinginu að það væri sannarlega stór stund að ná þessum hópum saman. Hún tók fram að hvað varðaði starfsemi Stígamóta, þá næðu samtökin verr til fatlaðs fólks en til ófatlaðra. Guðrún sagði að nú væri búið að ákveða að bæta þessa þjónustu. Fengist hefðu nægar fjárveitingar til að ráða einn starfsmann í til- raunastarf í heilt ár, þ.e. hann hefði það verkefni að bæta þjónustu við fatlað fólk. Þá greindi hún frá því að samtökin hefðu ákveðið að flytja í nýtt hús- næði þar sem núverandi húsnæði væri orðið of lítið og aðgengi ekki nægilega gott. Auk þess yrði boðið upp á heimaþjónustu. Guðrún tók fram í lok ræðu sinnar að það væru ekki til neinar töfra- lausnir. „Þetta er verkefni sem við klárum aldrei,“ sagði hún og benti á mikilvægi símenntunar og forvarna. Eygló tók fram að úrbætur hefðu verið gerðar til að styrkja stöðu og réttindi fatlaðs fólks með lögum um réttindagæslu sem voru sett árið 2011. Þá nefndi hún samning Sam- einuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra sem ætti að innleiða hér. „Hann hef- ur reynst mikilvægur leiðarvísir og áherslur hans ganga t.a.m. eins og rauður þráður í gegnum fram- kvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks sem samþykkt var á Alþingi fyrir rúmu ári,“ sagði ráðherrann. Morgunblaðið/Jón Pétur Fjölmenni Hátt í 400 manns sátu málþingið sem tólf samtök stóðu að og fór fram á Grand hóteli í Reykjavík í gær. Fatlaðir í meiri hættu á kynferðisofbeldi  Hafa einnig færri úrræði til að leita sér aðstoðar en aðrir Eygló Harðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.