Morgunblaðið - 04.10.2013, Side 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2013
Salan á rafsígarettum hefur aukist
verulega í Evrópu og Bandaríkj-
unum en verið minni í öðrum heims-
hlutum.
Um fimm af hundraði íbúa í
aðildarlöndum Evrópusambandsins
hafa reykt rafsígarettu einu sinni
eða tvisvar. Um 2% reykja rafsíga-
rettur oft eða annað veifið í ESB-
löndunum, samkvæmt könnun
Eurobarometer sem náði til 26.750
manna á síðasta ári. Notkunin á raf-
sígarettum er mest í Danmörku,
Grikklandi, Rúmeníu og Póllandi.
Bertrand Dautzenberg, sérfræð-
ingur í baráttunni gegn nikótínfíkn,
segir að um 23 milljónir Evrópubúa
hafi prófað að reykja rafsígarettu á
síðasta ári og hann spáir því að fjöld-
inn tvöfaldist í ár.
Varað við rafsígarettum
Hér á Íslandi hefur Lyfjastofnun
flokkað rafsígarettur, sem innihalda
nikótín, sem lyf. Innflutningur og
dreifing slíkra vara án markaðs-
leyfis er því brot á lyfjalögum, að
sögn stofnunarinnar.
Lyfjastofnun hefur einnig varað
við rafsígarettum og m.a. vísað til
þess að rannsókn Matvæla- og lyfja-
eftirlits Bandaríkjanna, FDA, leiddi
í ljós að auk nikótíns innihéldua raf-
sígarettur ýmis skaðleg og jafnvel
krabbameinsvaldandi efni.
Reglur um notkun á rafsígarett-
um eru mismunandi í löndum Evr-
ópusambandsins. Í Belgíu, Lúxem-
borg, Möltu og Slóveníu er bannað
að reykja rafsígarettur á stöðum þar
sem reykingar eru almennt bann-
aðar. Á Ítalíu og í Frakklandi er
bannað að selja fólki undir lögaldri
rafsígarettur og í Litháen er sala
þeirra algerlega bönnuð, að sögn
fréttaveitunnar AFP.
Tæpur þriðjungur íbúa Rússlands
reykir venjulegar sígarettur og þar
hafa rafsígaretturnar lítið selst.
Salan á rafsígarettum nífaldaðist í
Bandaríkjunum á árunum 2010 til
2012 og fjöldi þeirra sem prófuðu
þær að minnsta kosti einu sinni fjór-
faldaðist á árunum 2009 til 2010.
Meðal bandarískra unglinga tvöfald-
aðist notkunin á rafsígarettum á ár-
unum 2011 til 2012, að sögn banda-
rískra heilbrigðisyfirvalda.
Í öðrum heimshlutum hefur salan
á rafsígarettum verið lítil, einkum í
löndum þar sem venjulegar sígar-
ettur eru ódýrar og tóbaksvarnalög
hafa ekki verið hert. Rafsígarettur
hafa verið bannaðar í löndum á borð
við Argentínu, Ástralíu, Brasilíu,
Singapúr og Taíland. bogi@mbl.is
Rafsígarettur víða í sókn í Evrópu
0
5
10
15
Rafsígarettur
Salan er mismikil eftir löndum og heimshlutum og reglurnar eru mismunandi
Heimild: OFT
Í milljörðum pakka
(og samsvarandi fjölda rafsígaretta)
Áætluð sala næstu 10 ár
5,1
14,3
Hefðbundnar
sígarettur
Heimilaðar enmeð takmörkunum (aldur
kaupenda, markaðssetning, staðir þar sem
bannað er að nota þær)
Ýmis bönn
Heimilaðar
2012 2015 2020 2023
Rafsígarettur
0,1 4,5
(Spá bankansWells Fargo)
Díóða gefur frá sér ljós
þegar reykingamaður
sýgur munnstykkið
Örgjörvi stjórnar
hita og ljósdíóðu
sígarettunnar
Endurhlaðanleg
rafhlaða
Nikótín
breytist í gufu
Munnstykki með
bragðbættan
vökva og nikótín
Nemi greinir þegar reykinga-
maðurinn sýgur munnstykkið
Búddamunkur á báti í hofi í Ayutthaya-héraði,
norðan við Bangkok. Yfirvöld í Taílandi sögðu
í gær að minnst 23 hefðu látið lífið í flóðum
sem hafa valdið usla í mörgum héruðum lands-
ins. Minnst 24 hafa beðið bana í flóðum í Víet-
nam og minnst 30 í Kambódíu síðustu vikur.
AFP
Mannskæð flóð í Taílandi og grannríkjum
Ronan Farrow er bláeygur og fjall-
myndarlegur og hefur aldrei þótt líkjast
föður sínum, kvikmyndaleikstjóranum
Woody Allen. Móðir Ronans, leikkonan
Mia Farrow, segir í viðtali við Vanity Fair
að á þessu geti verið eðlileg skýring: Ron-
an Farrow sé „hugsanlega“ sonur bláeyga
kvennagullsins Franks Sinatra.
Mia Farrow giftist Sinatra 1966 og þau
skildu tveimur árum síðar. Hún segir í við-
talinu að þau hafi þó í raun aldrei slitið
sambandinu alveg. Seinna var hún í tólf
ára sambandi við Woody Allen en því lauk
1992 eftir að hann hóf ástarsamband við
ættleidda dóttur hennar.
Ronan er 25 ára blaðamaður og lög-
fræðingur og hefur barist fyrir mannrétt-
indum. Hann var einnig ráðgjafi Hillary
Clinton þegar hún var utanríkisráðherra.
Sinatra faðir
sonar Allens?
Sinatra var kvæntur
Miu Farrow í tvö ár.
Ronan Farrow var álit-
inn sonur Allens.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Að minnsta kosti 133 flóttamenn frá
Afríku drukknuðu þegar bátur
þeirra sökk í Miðjarðarhafi á leið til
Ítalíu í gær. Um 150 manns var
bjargað en óttast var að yfir 200
manns til viðbótar hefðu drukknað.
Hermt er að alls hafi um 500
manns verið í bátnum, þeirra á með-
al mörg börn.
Nokkrir flóttamenn, sem komust
lífs af, sögðu að fólkið hefði kveikt í
teppi í bátnum skammt frá strönd
eyjunnar Lampedusa til að vekja at-
hygli strandvarða eftir að vél bátsins
bilaði og nálægir fiskibátar komu
ekki til hjálpar. Eldurinn breiddist
hratt út, fólkið varð skelfingu lostið
og margir stukku í sjóinn. Það varð
síðan til þess að bátnum hvolfdi og
hann sökk að lokum og liggur nú á 40
metra dýpi.
Um 25.000 hafa flúið
yfir hafið til Ítalíu í ár
Flestir þeirra sem voru í bátnum
komu frá Erítreu og Eþíópíu og talið
er að hann hafi siglt frá Líbíu.
„Aðeins þeir sterkustu komust lífs
af,“ hefur fréttaveitan Associated
Press eftir Simonu Moscarelli, tals-
manni IOM, þeirrar stofnunar Sam-
einuðu þjóðanna sem fylgist með
flótta fólks í leit að betri lífskjörum.
Moscarelli bætti við að flestir
þeirra sem voru í bátnum hefðu verið
ósyndir. Um 100 voru konur og að-
eins þrjár þeirra komust lífs af.
Um 25.000 flóttamenn frá Afríku
hafa komið á bátum til Ítalíu það sem
af er árinu, um þrefalt fleiri en allt
síðasta ár. Flóttafólkið var þó enn
fleira, eða 50.000, árið 2011, einkum
vegna uppreisnaröldunnar í Norður-
Afríku.
Embættismenn SÞ segja að flestir
flóttamannanna komi frá átakasvæð-
um í Norður-Afríku, en ekki Afríku
sunnan Sahara.
Óttast að yfir 300 hafi farist
Um 150 manns bjargað eftir að báti með 500 flóttamenn frá Afríku hvolfdi Margra er enn saknað
Flestir voru ósyndir og aðeins þeir sterkustu komust lífs af Flestir komu frá Erítreu og Eþíópíu
AFP
Björgun Einum flóttamannanna
bjargað nálægt eyjunni Lampedusa.
Yfir 1.500 drukknuðu
» Bátarnir sem sigla með
flóttafólk frá Afríku til Evrópu
eru oft ofhlaðnir og óhaffærir.
» Flóttamannastofnun SÞ
segir að yfir 1.500 manns hafi
drukknað eða horfið eftir að
hafa reynt að flýja yfir Mið-
jarðarhaf til Evrópu árið 2011.
» Talið er að nær 500 flótta-
menn frá Afríku hafi drukknað
í hafinu á síðasta ári.