Morgunblaðið - 04.10.2013, Síða 23

Morgunblaðið - 04.10.2013, Síða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2013 Ástand lífríkisins í heimshöfunum versnar hraðar en talið hefur verið til þessa, að því er fram kemur í skýrslu vísindamanna alþjóðlegu stofnunarinnar IPSO. Vísindamenn- irnir segja að margvíslegar hættur steðji að lífríki hafanna, m.a. ofveiði, mengun, súrnun og hlýnun sjávar. Þeir vara t.a.m. við því að myndast hafa „líffræðilega dauð svæði“ vegna áburðar sem berst í höfin. Vísindamennirnir segja að haldi ástandið áfram að versna geti það orðið til þess að margar fisktegundir deyi út. Í skýrslunni kemur fram að höfin eru nú talin súrari en nokkru sinni fyrr í a.m.k. 300 milljónir ára. Með súrnun er átt við breytingar á sýru- stigi sjávar vegna aukins magns kol- díoxíðs í andrúmslofti jarðar sam- fara bruna jarðefnaeldsneytis. Stofnunin skorar á stjórnvöld í ríkjum heims að stemma stigu við losun koldíoxíðs í andrúmsloftið. Fari hún yfir hættumörk geti hún leitt til mikillar súrnunar heimshaf- anna síðar á öldinni. Höfin halda áfram að hlýna Stofnunin segir að þótt dregið hafi úr hlýnun jarðar síðustu árin hafi höfin haldið áfram að hlýna. „Al- menningur og þeir, sem móta stefn- una, hafa hins vegar að mestu látið hjá líða að viðurkenna hversu slæmt ástandið er – eða valið að leiða það hjá sér,“ segja skýrsluhöfundarnir. Vísindamennirnir segja að mikil hætta sé á tegundadauða sem eigi sér engin fordæmi í sögu mannkyns- ins. Súrnun sjávar og vaxandi súr- efnisleysi geti einnig orðið til þess að megnið af kóralrifum heimsins skemmist. Ennfremur sé hætta á vaxandi þörungagróðri sem skaði líf- ríkið. Stofnunin hvetur ríki heims til að bæta stjórnun fiskveiða og draga úr mengun með ráðstöfunum sem bein- ist að þeim efnum sem eru skaðleg- ust, auk þess að stemma stigu við losun koldíoxíðs. „Nýjustu niðurstöðurnar sýna fram á að verði aðgerðum frestað leiði það til meiri kostnaðar í fram- tíðinni og valdi enn meira tjóni, jafn- vel óbætanlegu,“ hefur fréttavefur BBC eftir einum vísindamannanna, Dan Laffoley. bogi@mbl.is Ástand lífríkis haf- anna versnar hraðar  Vísindamenn vara við hættu á því að margar tegundir deyi út vegna súrnunar og hlýnunar sjávar, mengunar og ofveiði Palestínumenn setja járnplötu á olíutunnur til að endurreisa skýli sem ísraelskir hermenn rifu niður fyr- ir tveimur vikum í þorpi í Jórdandal. Herinn reif niður skýli, sem palestínskir bændur reistu, eftir að hæsti- réttur Ísraels úrskurðaði að þau hefðu verið reist án byggingarleyfis á svæði sem væri undir stjórn hersins. AFP Skýli endurreist eftir niðurrif Bandarísk stjórnvöld ákváðu í gær að beita yfirvöld í Rúanda refsiað- gerðum þar sem skæruliðahópar með tengsl við her landsins nota börn í hernaði. Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna í málefnum Afríku segir að Bandaríkin beiti heimild í alþjóðlegum lögum um varnir gegn barnahermennsku. Með þessu vilja bandarísk stjórnvöld reyna að upp- ræta öll tengsl barna við her- mennsku. Einn helsti skæruliðahópur Rú- anda, M23, hefur verið fyrirferðar- mikill, meðal annars í borgarastríð- inu í Kongó. „Við munum halda áfram viðræðum við ríkisstjórn Rúanda um þetta mál,“ segir ráð- herrann Linda Thomas-Greenfield. Sakaðir um nauðganir og morð M23-hópurinn var stofnaður af fyrrverandi uppreisnarmanni er til- heyrði þjóð tútsa í Rúanda. Í kjölfar sáttasamkomulags var hópurinn innlimaður í kongóska herinn árið 2009. En í apríl í fyrra beindu félagar í M23 byssum sínum að félögum sín- um í hernum og hófu uppreisn í Kongó, nánar tiltekið í austurhluta landsins þar sem miklar náttúru- auðlindir er að finna í jörðu. Samein- uðu þjóðirnar hafa sakað stjórnvöld í Rúanda um að styðja við bakið á M23 en því hafa þau staðfastlega neitað. Sameinuðu þjóðirnar og mann- réttindasamtök hafa ítrekað sakað M23 um grófa glæpi, meðal annars nauðganir og morð. Þá er hópurinn sagður nota börn í hernaði sínum. Þúsundir íbúa Kongó hafa flúið, m.a. til nágrannalandsins Úganda. sunna@mbl.is Refsað fyrir að beita börnum í hernaði AFP Í stríðshrjáðu landi Börn nálægt flóttamannabúðum í Rúanda.  Gripið til refsiaðgerða gegn Rúanda 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta í 90 ár Lækjargötu og Vesturgötu ÚTSA LA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.