Morgunblaðið - 04.10.2013, Síða 25

Morgunblaðið - 04.10.2013, Síða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2013 Stóra baðið Þeir eru margir ferðamennirnir sem leggja leið sína í Bláa lónið, enda eitt af því sem vel er kynnt fyrir útlendingum. Þessi tvö nutu þess að baða sig í stóra baðinu í gær. Kristinn Foreldrar eiga rétt á fæðing- arorlofi í samtals níu mánuði frá fæðingu barns. Við búum í samfélagi sem gerir ráð fyrir að báðir foreldrar séu útivinn- andi, auk þess að reka heimilið. Bæjarfélög sjá um menntun yngstu borgaranna og þau þurfa að axla ábyrgð, bæði gagnvart fullorðnum og börn- um. Á Seltjarnarnesi sjáum við fyrir okkur að innan skamms verði foreldrum boðið upp á að fá inni fyrir börnin sín í leikskóla að loknu fæðing- arorlofi. Það er mikilvægt að bjóða for- eldrum upp á sveigjanleika og því er hug- myndin að leikskólar bæjarins verði í stakk búnir til að taka við börnunum að loknu fæðingarorlofi og hvenær sem er eftir það. Í dag er fyrirkomulagið þannig á Seltjarn- arnesi að foreldrar eiga þess kost að fá leik- skólapláss fyrir börn 18 mánaða og eldri, frá hausti að telja. Við sem berum ábyrgð á leikskólamálum verðum áþreifanlega vör við eftirspurn foreldra eftir leikskólaplássi strax og fæðingarorlofi lýkur. Foreldrar geta jafnan ekki gengið að leik- skólaplássi á vegum sveitarfélaga vísu þegar orlofi þeirra lýkur. Af þessari stöðu mála skapast margvíslegt óhagræði, bæði fyrir foreldra, börnin og samfélagið í heild sinni. Margir foreldrar þekkja það að sendast þvers og kruss um höfuðborgarsvæðið með börnin sín í dagvist. Á næstu vikum liggur fyrir hjá bæj- arstjórn að rýna í tillögur varðandi tilboð á þjónustu til foreldra eftir fæðingarorlof, sem starfshópur á vegum skóla- nefndar Seltjarnarness hefur unnið. Á grundvelli þessarar vinnu sé ég fyrir mér að leikskólar á Sel- tjarnarnesi taki við börnum frá og með 1. september 2015 strax að loknu fæðingarorlofi. Fyr- irkomulagið verði með þeim hætti að börn geti átt víst leik- skólapláss hér á Seltjarnarnesi að loknu fæðingarorlofi og að for- eldrar ákveði sjálfir hvort börnin komi strax í leikskólann þegar fæðingarorlofi lýkur eða seinna. Það er þjóðfélagslega hagkvæmt að sveit- arfélög bjóði foreldrum og börnum þeirra leikskólavist um leið og fæðingarorlofi lýkur. Það skapar jafnframt samfellu í umhverfi barnanna þegar þau koma snemma í leik- skóla. Foreldrar þekkja af eigin reynslu óþægindin og óhagræðið að „venja börnin“ við leikskóla eftir að þau hafa notið annarra úrræða fyrsta æviskeiðið. Ég þykist vita að áður en langt um líður verður nýmælið að bjóða upp á leikskólapláss strax og fæðingarorlofi lýkur sjálfsagður þáttur í þjónustu sveitarfélaga við fjöl- skyldufólk. Eftir Ásgerði Halldórsdóttur » Á Seltjarnarnesi sjáum við fyrir okkur að innan skamms verði foreldrum boðið upp á að fá inni fyrir börnin sín í leikskóla að loknu fæðingarorlofi. Ásgerður Halldórsdóttir Höfundur er bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. Leikskólavist strax að loknu fæðingarorlofi Stjórnvöldum barst á dög- unum merkileg áskorun í bréfi frá Samtökum atvinnulífsins, Al- þýðusambandi Íslands og Við- skiptaráði þar sem óskað var eftir því að taka þátt í úttekt ríkisstjórnarinnar á stöðu um- sóknarinnar um aðild að Evr- ópusambandinu. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að láta gera fag- lega úttekt á málinu sem virðist ekki duga þessum annars ágætu samtökum þar sem þau telja greinilega að þau eigi mikilvægu hlutverki að gegna í þessu sambandi. Það er ljóst, eins og margir hafa vakið máls á, að trúverðugleikinn á bak við erindi samtakanna er ekki mikill. Hvor tveggja eru þau yfirlýstir stuðningsmenn þess að ljúka umsóknarferlinu að ESB, eins og þau taka fram í bréfinu til stjórnvalda, og eins er tekið þar fram hver niðurstaða úttektarinnar eigi að vera að þeirra mati. Sem sagt að ferlinu verði lokið. Trúverðugleiki ASÍ varðandi einhverskon- ar úttekt á ESB-málinu er ekki síst lítill í ljósi þess að samtökin hafa þegar sagt að að- ild að Evrópusambandinu sé „eina færa leið- in“ eins og það er orðað í samþykktum þeirra. Almennir félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ hafa hins vegar aldrei verið inntir álits á því hvort þeir teldu ásættanlegt að samtök- unum væri beitt með þessum hætti, en sam- kvæmt skoðanakönnunum er mikill meirihluti Íslendinga mótfallinn aðild að Evrópusam- bandinu. Forystumenn ASÍ hafa enga ástæðu til að ætla að annað eigi við um félagsmenn sambandsins. Sú spurning hlýtur að vakna hvort eðlilegt sé að stjórn stórra hagsmunasamtaka launa- fólks eins og ASÍ taki afdrátt- arlausa afstöðu í eins umdeildu máli og þessu án þess að taka tillit til sinna eigin fé- lagsmanna? En burtséð frá því að afstaða ASÍ sé í algjörri mótsögn við sjónarmið þorra félagsmanna sinna þá liggur fyrir að sam- tökin eru algerlega ófær um að gera einhverja faglega úttekt á málinu, enda ólíklegt að þeir færu að vinna gegn eigin stefnu. Það er ennfremur óhugnanlegt að hugsa til þess að í greinargerð sem fylgdi fyrrnefndu bréfi er hvergi minnst á fullveldi eða sjálf- stæði sem bendir til þess að slík grundvall- armál séu aukaatriði í huga þeirra sem að bréfinu standa. Miðað við það sem að framan er sagt verð- ur að álykta sem svo að markmið Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands og Viðskiptaráðs með ósk sinni um þátttöku í úttektinni á ESB-málinu sé að stuðla að nið- urstöðu sem sé þeim að skapi og miði hugs- anlega til lengri tíma litið að því að koma Ís- landi inn í Evrópusambandið. Úttekt sem byggðist á slíkum forsendum væri hins vegar ekkert annað en sjónarspil. Eftir Gunnlaug Snæ Ólafsson » Það er ljóst, eins og margir hafa vakið máls á, að trú- verðugleikinn á bak við erindi samtakanna er ekki mikill. Gunnlaugur Snær Ólafsson Höfundur er framkvæmdastjóri Heimssýnar. Sjónarspil og blekkingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.