Morgunblaðið - 04.11.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fjölmargir lögðu leið sína á jólabasar Hringskvenna á Grand hóteli í gær
en árleg hefð er hjá mörgum að kaupa gjafir á basarnum. Alls eru 335 kon-
ur í kvenfélaginu Hringurinn sem hefur að markmiði að vinna að líknar- og
mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna. Að venju voru kökurnar vin-
sælar og seldust þær upp á einungis klukkustund en allt söluandvirði renn-
ur í sjóð sem notaður er í tækjakaup fyrir Barnaspítala Hringsins.
Ungir sem aldnir flykktust á jólabasar
Morgunblaðið/Ómar
Jólabasar Hringsins hefur verið haldinn á hverju ári í áratugi
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjármála- og heilbrigðisráðherra
munu síðar í þessum mánuði kynna
ríkisstjórn og Alþingi áætlun um
fjárveitingar til tækjakaupa á Land-
spítalanum og Sjúkrahúsi Akureyrar
sem gildir til ársins 2017.
Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra staðfestir þetta en
segir ótímabært að ræða upphæðir í
þessu efni. Þær muni þó nema
hundruðum milljóna króna á ári.
Síðasta ríkisstjórn samþykkti í
fyrrahaust um 600 milljóna aukafjár-
veitingu til kaupa á tækjum á Land-
spítalanum og á Sjúkrahúsi Akur-
eyrar. Í fjárlagafrumvarpinu voru
862 milljónir eyrnamerktar slíkum
kaupum á Landspítalanum en 123
milljónir SA. Aukafjárveitingin er
tímabundin og var ekki gert ráð fyrir
að hún yrði framlengd í drögum að
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2014.
Umræðan byggð á misskilningi
Kristján Þór segir þetta hafa leitt
til misskilnings. „Umræða um þessi
mál er búin að vera á miklum villigöt-
um. Hún hefur verið á þeim nótum að
það sé enginn vilji hjá ríkisstjórninni
til að bæta úr tækjabúnaði heilbrigð-
isþjónustunnar. Það stendur hins
vegar svart á hvítu í fjárlagafrum-
varpinu að það verði gert.
Við skulum ekki einblína á krónu-
tölur í þessu efni. Þarfagreining
verður að ráða megináherslum og
svo verður að koma í ljós hvað við
eigum upp í það þegar það liggur fyr-
ir,“ segir Kristján Þór.
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítalans, segir þörfina mikla.
„Yfirlýsing ráðherra er í samræmi
við þau hreinskiptnu samtöl sem við
höfum átt um málið og lýsir góðum
skilningi á stöðunni. Þetta er mikil-
vægur þáttur í því stóra samhengi
sem rekstur spítalans er, en eins og
við höfum rætt um við yfirvöld þarf
meira að koma til, svo spítalinn nái
jafnvægi í rekstri og allra brýnustu
þörfum til tækjakaupa sé sinnt, auk
viðspyrnu til nýrra hluta. Í því sam-
hengi hefur talan 3 milljarðar verið
nefnd, enda gerum við okkur grein
fyrir þröngri efnahagsstöðu og still-
um kröfum í hóf. Hins vegar er afar
nauðsynlegt að frekara fé fáist til
nýrra áherslna í starfsemi spítalans
og til að sinna bráðnauðsynlegu við-
haldi á húsnæði og þá er talan nær
4-5 milljörðum á næsta ári.“
2-3% af rekstrarfé fari í kaupin
„Áhrif [fjárveitinganna] á rekstur-
inn verða í samræmi við þá upphæð
sem fæst til tækjakaupa. Til að unnt
verði að mæta allra brýnustu þörfum
er þörf á 600 millj. aukalega en til að
halda sæmilega í horfinu þyrfti 1.500
millj. Eðlileg fjárþörf til tækjakaupa
sjúkrahúss með rekstrarumfang á
við Landspítala er um 2-3% af
rekstrarfé stofnunarinnar, eða um
1,5 milljarðar árlega,“ segir Páll.
Hundruð milljóna í ný tæki
Heilbrigðisráðherra boðar sérstakar fjárveitingar til tækjakaupa á spítölum
Forstjóri Landspítalans segir þörf á 1.500 milljónum árlega í tækjakaupin
Við skulum ekki
einblína á krónu-
tölur í þessu efni.
Kristján Þór Júlíusson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég kannast ekki við að hafa hótað
einum eða neinum stjórnarslitum
vegna þessa máls. Ég skil ekki í
hvaða samhengi það á að geta stað-
ist. Ég ber það af mér,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon, þingmaður VG
og fv. formaður flokksins, spurður
hvort hann hafi lagt líf síðustu
stjórnar að veði í landsdómsmálinu.
Haft var eftir Össuri Skarphéðins-
syni, þingmanni Samfylkingar og
utanríkisráðherra í síðustu stjórn, á
vefnum pressan.is um helgina, að
forystumenn síðustu ríkisstjórnar,
Steingrímur og
Jóhanna Sigurð-
ardóttir, hefðu
hótað honum og
Ögmundi Jónas-
syni, þá innanrík-
isráðherra,
stjórnarslitum ef
tillaga um aftur-
köllun lands-
dómsmálsins yrði
samþykkt.
„Ég vil helst sjá þetta á prenti og
hvernig þetta er sett fram áður en ég
fer að svara því að öðru leyti efnis-
lega,“ segir Steingrímur.
Ögmundur segist aðspurður hafa
stutt tillögu um afturköllun málsins.
„Það er alveg rétt að þegar til kast-
anna kom í ársbyrjun 2012 skrifaði
ég greinar í blöð þar sem ég tók und-
ir með þeim sem vildu að fallið yrði
frá ákærum á hendur Geir H.
Haarde. Þar vorum við Össur á einu
máli, ásamt mörgum öðrum. Það er
rétt rifjað upp að þar vorum við ekki
á einu máli með formönnum Sam-
fylkingar og VG.“
– Lá við stjórnarslitum?
„Við skulum láta Össur dæma um
það. Hitt veit ég að skjálftarnir voru
mjög miklir út af þessu máli og fyrir
þeim fann ég mjög rækilega í mínum
flokki,“ segir Ögmundur.
Kannast ekki við að hafa
hótað stjórnarslitum
Steingrímur J.
Sigfússon
Fyrrverandi formaður VG vísar upprifjun Össurar á bug
Framtíð Næst-
besta flokksins
í Kópavogi
verður til um-
ræðu á næstu
vikum og er
ýmislegt í
deiglunni í
þeim efnum að
sögn Hjálmars
Hjálmarssonar,
bæjarfulltrúa
flokksins. Á meðal þess sem er til
skoðunar er samstarf við Bjarta
framtíð og að fá að nota lógó
Besta flokksins í sveitarstjórn-
arkosningum í vor.
Í vikunni var tilkynnt að Besti
flokkurinn rynni inn í Bjarta
framtíð fyrir borgarstjórnarkosn-
ingar í vor. Við það vakna spurn-
ingar um hvað verði um Næst-
besta flokkinn sem stofnaður var í
Kópavogi skömmu fyrir sveit-
arstjórnarkosningarnar árið 2010.
„Það virðist allt benda til þess
að eftir að þessu kjörtímabili lýk-
ur verði Næstbesti flokkurinn
Besti flokkurinn. Þeir næstbestu
verða á endanum bestir. Segir
ekki máltækið það?“ spyr Hjálm-
ar.
Spurn eftir óháðu framboði
Hann segir að nú sé verið að
ræða framtíðarmöguleika flokks-
ins, sumir vilji halda áfram með
það, aðrir vilji hætta.
„Næstbesti flokkurinn hefur
aldrei verið til sem flokkur eða fé-
lag. Það er engin kennitala, sími
eða strúktúr þannig að það er
mjög auðvelt að leggja hann niður.
Framboðið var sett á laggirnar
með mjög skömmum fyrirvara
þannig að það getur verið að
breytingar verði líka ákveðnar
þannig,“ segir Hjálmar.
Spurður að því hvort hugsanlegt
sé að Næstbesti fylgi fordæmi
kollega sinna í Reykjavík og renni
inn í Bjarta framtíð segir Hjálmar
að tengingar séu á milli flokkanna
en ekkert formlegt samstarf.
„Það er ýmislegt sem liggur í
loftinu. Við ætlum að reyna að
vera búin að ákveða þetta upp úr
áramótum. Þetta snýst allt um
hvað fólk vill gera. Þetta verður
rætt á næstu vikum,“ segir Hjálm-
ar sem telur að eftirspurn sé eftir
framboði sem sé ótengt gömlum
flokksmaskínum.
Næstbesti
flokkurinn
nú bestur
Hjálmar
Hjálmarsson
Ræða um framtíð
framboðsins