Morgunblaðið - 04.11.2013, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.11.2013, Qupperneq 14
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Við ræktum kryddjurtir allan ársins hring og græn- meti frá vori til hausts; tómata, papriku, chili, kúrbít, gulrætur og alls kyns salat,“ segja þau Sigrún Elfa Reynisdóttir og Ingólfur Guðnason, garðyrkjubændur á garðyrkjustöðinni Engi í Laugarási í Biskups- tungum. „Já, og svo erum við með jarðarber, hindber og kirsuber. Við erum með markað hér á sumrin og þurfum að geta boðið upp á margar tegundir,“ bætir Sigrún við. Þau hafa verið með ræktun á Engi frá árinu 1984 og hafa á þeim tíma verið með ýmiss konar ræktun, m.a. á sumarblómum, asískum grænmetisteg- undum og trjám. Taka þátt í hindberjaverkefni Á Engi er ræktað bæði í heitum og köldum gróðurhúsum og úti. Yfir sumartímann starfa þar 5-6 manns, en nokkru færri á veturna. Engi er þátttakandi í Atlantberry, sem er samnorrænt hindberjaverkefni íslenskra, norskra og færeyskra grænmetisbænda, og segir Sigrún þá ræktun hafa gengið vonum framar. Hjónin hófu ræktun og sölu á ferskum krydd- Basilíka, hind- ber og alls konar salat  Bændurnir á Engi hafa ræktað lífrænt í 20 ár Morgunblaðið/Kristinn Basilíka Hún er vinsælasta kryddjurtin frá Engi. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Heitt og seigfljótandisúkkulaði rennur í bolla.Undir glerhjálmi standagljáandi konfektmolar, á hellu kraumar humarsúpa og ilmur frá brauði berst frá ofni. Á veit- ingastaðnum Café Mika í Reykholti í Biskupstungum ráða ríkjum þau Bozena og Michal Józefik, sem yfir- leitt er kallaður Mika. Þau eru frá Póllandi og hafa búið á Flúðum í um 16 ár. „Ég flutti hingað 1997 og Mika kom ’98. Við erum bæði búnaðar- fræðingar og kynntumst í landbúnaðarskóla í Pól- landi,“ segir Bozena. „Þegar við útskrif- uðumst var svo slæmt atvinnu- ástand í Póllandi,“ segir Mika. „Við frétt- um að það vantaði fólk til að starfa hjá Flúðasveppum og Bozena var farin til Íslands innan viku.“ „Og ég sem vissi ekki neitt um Ísland,“ skýtur Bozena inn í. „Ég tók með mér stóra ferðatösku, fulla af þykkum úlpum og hlýjum peys- um. Eftir nokkrar vikur hringdi ég heim og bað um að fá send önnur föt, það var ekki jafnkalt og ég hélt.“ Framleiddu snakk á Flúðum Þetta var í september 1997 og Mika kom til landsins nokkrum mánuðum síðar og hóf þá störf hjá Flúðafiski. „Seinna stofnuðum við fyrirtæki og framleiddum snakk úr maís sem hét Flúðasnakk. Það gekk því miður ekki upp, en okkur langaði áfram til að fara út í eigin rekstur,“ segir Mika. „Ég fór á súkkulaðinámskeið til Belgíu og byrjaði að gera og selja konfekt sumarið 2010. Fyrst var þetta aukavinna hjá okkur, við seldum konfektið fyrst og fremst á mörkuðum og það gekk mjög vel. Við fréttum síðan af þessu tóma plássi hérna og ákváðum að slá til og opna hér veitingastað. Við er- um nefnilega þannig fólk að við þurf- um að prufa, sjá hvort hugmynd- irnar ganga upp. Ef við hefðum ekki opnað staðinn hefðum við endalaust verið að hugsa: Hvers vegna gerðum við þetta ekki?“ Fjórföld aukning frá opnun Upphaflega hugmynd hjónanna var að reka kaffihús með vænum súkkulaðiáherslum. „Svo kom í ljós að fólk vildi líka fá mat og þetta þró- aðist í veitingastað sem er opinn allt árið,“ segir Bozena. Og nú er Café Mika ekki eingöngu veitingastaður, þar er einnig gallerí þar sem listmál- arar, ljósmyndarar og aðrir lista- menn geta hengt upp verk sín án endurgjalds. Morgunblaðið/Kristinn Bozena og Michal Józefik Þau reka veitingastaðinn Café Mika þar sem áhersla er lögð á súkkulaði og humar. Súkkulaðimeistarinn í Biskupstungunum  „Við þurfum að prufa, sjá hvort hugmyndirnar ganga upp“  „Hingað koma óskaplega margar konur til að velja sér garn og það getur tek- ið góðan tíma. Þá er gott að vera með Moggahorn, þar sem karlarnir geta látið fara vel um sig og lesið Morgunblaðið á meðan konurnar versla,“ segir Inga Þyri Kjartansdóttir, kaupmaður í versluninni Bjarkarhóli í Reykholti. Þar er, auk garns, lopa og annarra hannyrðavara, selt handverk úr grenndinni. Þar er líka notalegt horn þar sem hægt er að láta fara vel um sig og fletta Morgunblaðinu. „Stundum segja þeir: „Ertu ekki til í að versla aðeins meira elskan, ég er ekki alveg búinn með Moggann.“ Það eru einu skiptin sem þeir hvetja þær til að versla meira,“ segir Inga Þyri. annalilja@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Bjarkarhóll Þau Inga Þyri Kjartansdóttir og Bergþór G. Úlfarsson eru þar með Moggahorn. Þar lesa karlar Morgunblaðið meðan þeir bíða eftir konum sínum. Hafa það gott í Moggahorninu  Um 200 bændur, þeirra á meðal fjölmargir í Biskupstungunum, taka þátt í verkefninu Suðurlandsskógum. Starfssvæði verkefnisins nær yfir Reykjanes, Árnessýslu, Rangár- vallasýslu og báðar Skaftafellssýsl- urnar og um er að ræða átaksverk- efni í skógrækt á Suðurlandi til fjörutíu ára. Markmið þess er að rækta upp skóg á 5% láglendis Suðurlands á tímabilinu. Lög um Suðurlandsskóga voru sett 1997 og fyrst var gróð- ursett undir merkjum verkefnisins vorið 1998. Verkefnið er í samstarfi við Lista- háskóla Íslands um að finna nytjar úr skógum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Suðurlandsskógar Skógurinn við Hrosshaga í Biskupstungum. Skógur þeki 5% landsins SUÐURLANDDAGAHRINGFERÐ REYKHOLT – með morgunkaffinu MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.