Morgunblaðið - 04.11.2013, Page 30

Morgunblaðið - 04.11.2013, Page 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013 Ætli maður fari ekki í sparifötin í dag; það tilheyrir bæðistarfinu og deginum,“ segir Gísli Björnsson kaupmaður áSelfossi sem er 44 ára í dag. Hann rekur herrafataversl- unina Barón, sem er í Kjarnanum við Austurveg þar í bæ eins og Krónan og fleiri búðir. Rúmlega tuttugu ár eru síðan Gísli opnaði verslun sína. Hann nam upphaflega húsasmíði og starfaði við þá iðn í nokkur ár. Svo fór hugurinn að beinast til nýrra átta. „Fljótt gerði ég mér grein fyrir því að smíðarnar yrðu ekki ævi- starfið og fór að líta í kringum mig. Þegar ég svo frétti að versl- unarpláss á besta stað hér í bænum væri laust ákvað ég að taka slag- inn. Hins vegar höfðu ekki allir trú á tiltækinu, til dæmis birgjar í Reykjavík, og eins fólk hér í bænum. En allt blessaðist þetta og verslunina opnaði ég í nóvember 1983; föstudaginn 13. Það varð minn gæfudagur,“ segir Gísli sem er rómaður fyrir þjónustulund og að bjóða vandaðan fatnað. „Já, áhugamálin eru fjölmörg. Sem strákur var ég mikið í fótbolt- anum; æfði og keppti. Nú hefur það áhugamál að mestu vikið fyrir golfi og hlaupum. Á sumrin fer ég alltaf öðru hvoru í veiði; finnst ævintýri að renna fyrir lax í Rangánum,“ segir Gísli sem er í sambúð með Elísabetu Hlíðdal og eiga þau fjögur börn samtals. sbs@mbl.is Gísli Björnsson á Selfossi er 44 ára í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Selfossbúi Gísli áttaði sig á að smíðarnar yrðu ekki ævistarfið, venti því sínu kvæði í kross og opnaði herrafataverslun og gengur vel. Smiður selur föt Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Bjarni Sólberg fæddist 24. ágúst kl. 16.02. Hann vó 3.845 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Hildur Seljan Indriðadóttir og Eyþór Bjarnason. Nýir borgarar Reykjavík Urður fæddist 14. júní kl. 5.39. Hún vó 3.866 g og var 49,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Bríet Breið- fjörð Einarsdóttir og Steinar Snæ- björnsson. V ilhjálmur fæddist á Geitaskarði í Langadal í Austur-Húnavatns- sýslu 4.11. 1913 en flutti ungur með for- eldrum sínum til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu fyrst við Laugaveg- inn, síðan að Lambastöðum í Skerjafirði og loks á Fjólugötu 25: „Ég var svo alltaf í sveit á hverju sumri, fyrst að Gilsárstekk í Breið- dal, síðan á Reykjum í Mosfellssveit og loks í Brautarholti á Kjalarnesi.“ Vilhjálmur lauk stúdentsprófi frá MR 1935, stundaði nám í lækn- isfræði við HÍ 1935-39 og síðar við Karolinska Institutet í Stokkhólmi, lauk cand.med. og medicine licenti- at-prófi 1956, öðlaðist lækningaleyfi í Svíþjóð 1956 og er löggiltur læknir þar frá 1961. Þá öðlaðist hann sér- fræðileyfi í heimilislækningum 1973. Á námsárunum var Vilhjálmur staðgengill aðstoðarlæknis á Sand- träsk Sanatorium, á St. Görans Vilhjálmur Jóhannsson, læknir í Jönköping í Svíþjóð – 100 ára Heima í stofu Vilhjálmur með seinni konu sinni, Margit Gunborg Elisabeth Jóhannsson sem lést árið 2012. Elstur íslenskra lækna Með fyrri konu og sonum Villhjálmur, Tryggvi, Viktor, Fjóla og Valur. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Opið alla virka daga 08:00-17:00 Sendum um allt land -VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is Sérhæfum okkur í gleri og speglum Síðan 1969

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.