Morgunblaðið - 04.11.2013, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 04.11.2013, Qupperneq 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013 Ífyrstu bók Elís Freyssonar,Meistara hinna blindu, birtistóttalegur heimur þar semgóð öfl og ill glíma. Þar er komið í sögu þess mannkyns sem heiminn byggir að hið illa hefur undirtökin, náði þeim tökum í Sundrungunni, en góðmenni streit- ast þó á móti, sum nauðug viljug, en önnur af köllun. Í næstu bók þar á eftir, Ógnarmána, sýndi Elí aðra hlið á baráttunni og í þriðju bókinni sem gerist á sömu slóðum er enn annarri hlið velt upp. Hetjur fyrri bókanna voru harð- hausar, bardagahetjur, grófgerðir og ruddalegir stríðsmenn sem ekki voru ýkja vandir að meðulum í bar- áttu sinni gegn myrkraöflum, en Kallið segir frá unglingsstúlk- unni Kötju sem kemst að því að hún er ein af Rauðkuflunum, nánast yfir- náttúrlegum ver- um sem hafa það hlutverk helst að berjast við hið illa. Bókin hefst þar sem kennari birtist Kötju og tekur að sér að þjálfa hana í bardagalist og síðan leiða með sér í bardaga upp á líf og dauða. Ekki skortir átök í söguna, nóg af mannvígum og blóði, og lokaorrustan er hrikaleg, en í henni kemur vel í ljós hvað í Kötju er spunnið. Kallið er dæmigerð þroskasaga um margt og framvindan fyrir- sjáanleg, en gæðir hana lífi hve heimurinn sem Elí hefur skapað er trúverðugur og umfangsmikill, auk- inheldur sem honum fer fram í rit- listinni með hverri bók. Katja er líka viðkunnanlegri en til að mynda Kody Black, hetja Ógnarmána; les- andinn fær samúð með henni og vill gjarnan fá meira að heyra af örlög- um hennar og baráttu. Morgunblaðið/Skapti Þroskasaga Kallið er þriðja skáldsaga Elís Freyssonar, en allar gerast bækurnar í sama heimi þar sem góð öfl og ill glíma. Upp á líf og dauða Ævintýrasaga Kallið bbbmn Skáldsaga Elís Freyssonar. 270 bls. kilja. Höfundur gefur út. ÁRNI MATTHÍASSON BÆKUR Kvikmyndahúsið IFC Center í New York hunsar 17 ára aldurstakmark kvikmyndarinnar La vie d’Adele, eða Líf Adele, og hefur það lagst illa í Parents Television Council, samtök sem fylgjast með því hvað börnum er boðið upp á í sjónvarpi og kvikmyndum og hafa það mark- mið að vernda þau fyrir efni sem er ekki við þeirra hæfi. Þykir gagn- rýnendum kvikmynd Abdellatifs Kechiche um ástarsamband tveggja ungra kvenna alls ekki við hæfi barna undir 17 ára aldri. Stjórn- endur kvikmyndahússins telja hins vegar að myndin sé ekki of gróf fyrir táninga. Þeir geti mikið lært af myndinni, m.a. um þau vandamál og tilfinningaflækjur sem hinir full- orðnu þurfa að glíma við. Kvikmyndin hlaut aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Cannes í ár og var tekin til sýningar á Al- þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF. Aðalleikkonur myndarinnar, Adèle Exarchopoulos sem er 19 ára og hin 28 ára Léa Seydoux, hafa látið þau ummæli falla um tökur myndarinnar að þær hafi verið hræðilegar. Tökur á tíu mínútna löngu kynlífsatriði hafi tekið tíu daga og reynt verulega á þær. Leikstjóri myndarinnar hefur svarið það af sér að hafa pínt leik- konurnar og virðist deilan hafa haft jákvæð áhrif á aðsókn að myndinni í Bandaríkjunum. Umdeild Líf Adele er bönnuð börnum undir 17 ára aldri í Bandaríkjunum. IFC Center gagnrýnt fyrir að hunsa aldurstakmark La vie d’Adele KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM ÁTOPPNUM Í ÁR KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á EGILSHÖLLÁLFABAKKA THOR-DARKWORLD3D KL.5:30-8-10:30 THOR-DARKWORLDVIP2D KL.5:30-8-10:30 BADGRANDPA KL.5:50-8-10:30 GRAVITY2D KL.5:50-8 PRISONERS 2 KL.6-8-9-10:10 FLUGVÉLAR ÍSLTAL2D KL.6 KRINGLUNNI THOR - DARKWORLD 2D KL. 5:30 - 8 - 10:30 BAD GRANDPA KL. 5:50 - 8 - 11 DISCONNECT/HEILABROTINNKL. 5:20 - 10:10 PRISONERS KL. 8 THOR - DARKWORLD 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30 BAD GRANDPA KL. 5:50 - 8 - 10:10 GRAVITY 2D KL. 5:50 - 8 PRISONERS 2 KL. 8:30 - 10:10 RUSH KL. 6 NÚMERUÐ SÆTI AKUREYRI THOR - DARKWORLD 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30 BADGRANDPA KL. 8 DISCONNECT/HEILABROTINNKL. 5:20 GRAVITY 2D KL. 10:10 KEFLAVÍK THOR-DARKWORLD3D KL.8-10:20 BADGRANDPA KL.8 DISCONNECT KL.10:10 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á THE HOLLYWOOD REPORTER  ENTERTAINMENT WEEKLY  VARIETY  LOS ANGELES TIMES  “BESTA SPENNUMYND ÁRSINS” MYNDIN SEM ALLIR FORELDRAR ÆTTU AÐ FARA Á MEÐ BÖRNUM SÍNUM SÝNDÁ UNDANDISCONNECT VARIETY  QC  THE HOLLYWOOD REPORTER  EMPIRE  98% ROTTEN TOMATOES CHRIS HEMSWORTH TOM HIDDLESTON NATALIE PORTMAN ANTHONY HOPKINS EMPIRE  TOTAL FILM  VAR BARA BYRJUNIN FRÁ ÞEIM SÖMUOG FÆRÐU OKKUR JACKASS MYNDIRNAR KEMUR „BAD GRANDPA“ FRÁBÆR GRÍNMYND! ★★★★★ Los Angeles Times ★★★★★ The New York Times ★★★★★ Empire 12 L 14 10 FRÁ STEPHEN FEARS LEIKSTJÓRA THE QUEEN FRÁ RICHARD CURTIS, HANDRITSHÖFUNDI LOVE ACTUALLY, NOTTING HILL & FOUR WEDDINGS -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is 94% á rottentomatoes! LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar PHILOMENA Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:10 FURÐUFUGLAR 3D Sýnd kl. 6 CAPTAIN PHILLIPS Sýnd kl. 6 - 9 ABOUT TIME Sýnd kl. 9 T.V. - BÍÓVEFURINN/VIKAN THE TIMES EMPIRE THE GUARDIAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.