Morgunblaðið - 07.11.2013, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 07.11.2013, Qupperneq 10
Malín Brand malin@mbl.is Helena Eyjólfsdóttir ætlaðialdrei að samþykkja aðskrifuð yrði ævisagahennar. En aldrei skyldi maður segja aldrei því nú er komin út bókin Gullin ský – ævisaga Helenu Eyjólfsdóttur, rituð af Óskari Þór Halldórssyni. Óskar leit inn á vinnu- staðinn til Helenu fyrir um tveimur árum og þá varð ekki aftur snúið. „Hann sagði að nú yrði bara að skrifa um Sjallann og þessa sjallastemningu sem var landsfræg og hann sagðist tala við fleiri og spurði hvort ég vildi ekki vera með í því og jú sagði ég. Svo smátt og smátt gerði ég mér ljóst að þetta var ekki spjall um Sjallann heldur var þetta spjall um mig,“ segir Helena sem er í dag sátt við að hafa sagt sögu sína. Ef Óskar hefði ekki verið svona klókur er ekki víst að þessi saga hefði verið sögð. „Svo þegar upp er staðið og við erum búin að þessu þá held ég að ég sé bara nokkuð sátt við að hafa komið þessu frá mér því það er oft svolítið erfitt að fara svona til baka. En það er mikið gott að þetta er bú- ið!“ Skemmtilegustu tónleikarnir Óskar stakk upp á að haldnir yrðu tónleikar í tilefni af útkomu bók- arinnar og hélt Helena og fjöldi tón- listarmanna sem unnið hafa með henni í gegnum tíðina, tónleika á Græna hattinum í síðustu viku. Upp- selt var á tónleikana svo þau héldu tvenna tónleika sama kvöldið og þá komst Helena heldur betur í gírinn. „Ég segi það satt að ég held ég hafi aldrei notið þess eins að syngja og á Græna hattinum þarna um daginn Góðar minningar úr Sjallanum og Súlnasal Sextíu ár eru liðin síðan söngkonan Helena Eyjólfsdóttir söng fyrst inn á plötu. Þá var hún tólf ára gömul. Síðan þá hefur hún sungið inn á fjölmargar plötur og komið víða við. Hún er ung í anda og hlakkar mikið til tónleika sem hún og fleiri halda á laugardaginn í Súlnasal Hótel Sögu. Þar verður sko sungið og dansað! 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 Tónlist er stór hluti af lífi margra og er erfitt að hugsa sér lífið án hennar. Sumir foreldrar fyllast þó skelfingu þegar börn vilja læra á trommur enda hlýtur trommusett að vera óvinsæl- asta hljóðfærið til að eiga í blokk. Hér á landi eru ýmsir afbragðs- góðir trommuleikarar og margir þeirra hófu sinn feril á frumstæðum trommum. Pottur og sleif hafa líka dugað sumum fyrst í stað. Á vefsíðunni www.trommari.is er að finna ýmiss konar fróðleik um trommur, trommuleik og íslenska trommuleikara. Þar má lesa um prófanir á trommu- settum og getur það komið að góðu gagni þegar velja á sett. Hvernig er sneriltromman, bassatromman og hvernig hljómar svo gripurinn? Það er nú kjarni málsins. Allt um trommur og trommuleik á síðunni trommari.is. Vefsíðan www.trommari.is EPA Trommað Og hvernig hljómar svo gripurinn? Allt um trommuleik Kristján Guðmundsson sögu sína í Hofi á Akureyri klukkan 20.00 í kvöld en saga hans er í formi fyr- irlestrar sem nefnist Gefstu aldrei upp. Hinn 18. maí árið 2011 lenti Kristján í mjög alvarlegu vinnuslysi þar sem hann var að vinna við löndun. Fimm fiskikör hrundu ofan á hann og voru afleiðingarnar skelfilegar. Kristján hefur náð undraverðum árangri eftir slysið enda gefst hann aldrei upp og hefur barist með já- kvæðnina að vopni. Kristján segir í þessum fyrirlestri söguna frá slysa- deginum til dagsins í dag. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. Endilega … … ekki gefast upp Sigur Kristján hefur náð undraverð- um árangri með jákvæðu hugarfari. Fjarðarkaup Gildir 7.-9. nóvember verð nú áður mælie. verð Nauta T-bone .................................. 2.798 3.498 2.798 kr. kg Lambafille m/fitu ............................ 3.798 3.998 3.798 kr. kg Nautahakk,1. fl ............................... 1.298 1.598 1.298 kr. kg Kjarnafæði reykt&saltað folaldahakk. 898 1.174 898 kr. kg Kjarnafæði krakkabúðingur, 635 g .... 465 798 465 kr. stk. Hagkaup Gildir 8.-10. nóvember verð nú áður mælie. verð Heill ferskur Holtakjúklingur .............. 749 999 749 kr. kg Íslandsnaut, piparsteik .................... 2.849 3.799 2.849 kr. kg Ísfugls kalkúnapylsur, 10 stk. ........... 1.175 1.679 1.175 kr. pk Grand orange lambafile ................... 4.274 5.699 4.274 kr. kg Jólabrauð ....................................... 299 379 299 kr. stk. Kjarval Gildir 7.-10. nóvember verð nú áður mælie. verð Frosinn kjúklingur ............................ 698 898 698 kr. kg Goða hamborgarar m. brauði, 4 stk... 899 1.029 899 kr. pk SS grískt lambalæri ......................... 1.998 2.569 1.998 kr. kg FP eldhúsrúllur, 4 stk. ...................... 449 495 449 kr. pk FP uppþvottavélatöflur, 40 stk. ......... 499 598 499 kr. pk. Krónan Gildir 7.-10. nóvember verð nú áður mælie. verð Folaldagúllas eða snitsel.................. 1.399 1.998 1.399 kr. kg Folalda innralæri ............................. 2.299 3.298 2.299 kr. kg Folalda piparsteik............................ 2.298 3.298 2.298 kr. kg Folaldafille...................................... 2.598 3.898 2.598 kr. kg Folaldalundir................................... 3.289 4.698 3.298 kr. kg Nóatún Gildir 8.-10. nóvember verð nú áður mælie. verð Lamba prime úr kjötborði ................. 2.998 3.798 2.998 kr. kg Lambalæri úr kjötborði..................... 1.398 1.698 1.398 kr. kg Ungnautafille úr kjötborði ................. 3.678 4.598 3.678 kr. kg Nóatúns grísahamborgarhryggur ....... 1.414 1.698 1.414 kr. kg ÍM kjúklingabringur .......................... 2.198 2.469 2.198 kr. kg Þín verslun Gildir 7.-10. nóvember verð nú áður mælie. verð Folaldagúllas úr kjötborði ................. 1.998 2.498 1.998 kr. kg Folalda innralæri úr kjötborði............ 2.498 2.998 2.498 kr. kg Folaldasnitsel úr kjötborði ................ 1.998 2.498 1.998 kr. kg Folaldafile úr kjötborði ..................... 2.998 3.998 2.998 kr. kg Helgartilboðin Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. með þessum frábæru hljómlist- armönnum, að rifja upp þessi skemmtilegu lög og skemmtilega tíma. Ég vona að þetta verði líka svona á Hótel Sögu,“ segir söng- konan og vísar þar til stóru tón- leikanna sem haldnir verða á laug- ardaginn. Súlnasalurinn og böllin Það er engin tilviljun að Súlna- salurinn skyldi verða fyrir valinu því þarna spiluðu og sungu Helena og eig- inmaður hennar heitinn, Finnur Eydal, um helg- ar á árum áður. Þau leystu hús- band staðarins af frá 1982 til 1984 og svo aftur árið 1986. Þess vegna varð staðurinn fyrir val- inu. „Mig langaði svo að bjóða fólki á svona huggulegan stað, þar sem það gæti setið við dúkuð borð og keypt sér vínglas eða kaffibolla og dansað svolítið á eftir,“ segir Helena og við- urkennir að hún hlakki mikið til tón- leikanna. „Þessir tónleikar verða dálítið öðruvísi en fólk á von á. Ég er ekki að taka þessi gömlu lög öll sem ég er búin að vera að syngja inn á plötur heldur er ég að rifja upp lögin sem við spil- uðum á böllunum og höfðum svo gam- an af sjálf að flytja. Þetta vekur svona upp góðar minningar,“ segir hún. Hvítir mávar Fjölmörg lög urðu mjög vin- sæl í flutningi Helenu og má þar til dæmis nefna Hvíta máva og Í rökkurró. Þau lög mun hún sann- arlega syngja líka, enda ekki annað hægt. „Ég syng alltaf Hvíta máva, ég þarf að gera það og ég geri það alveg með glöðu geði en það er bara dá- lítið erfitt fyrir mig að syngja það lag ein því að þetta er tvísöngslag. Mixingin í laginu varð svo röng þannig að yfirröddin heyrist meira og allur al- menningur syngur það sem laglínuna. Svo þegar ég lendi í því að syngja þetta ein þá bara sé ég það á svipnum á fólki að það heldur að ég kunni ekki lagið,“ segir Hel- ena og hlær við tilhugs- unina. Það verður eflaust gaman fyrir áheyrendur að ferðast með söngkonunni Helenu Eyjólfsdóttur þrjátíu ár aftur í tímann og jafnvel lengra aftur. Þær eru fáar Helena Eyjólfsdóttir L jó sm yn d/ M ag nú s In gi m ar ss on

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.