Morgunblaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 Samsett svæði nefnist sýning norska listamannsins Nils Olavs Bøe sem opnuð verður í Skotinu í Ljósmynda- safni Reykjavíkur í dag. Í tilkynningu frá safninu kemur fram að listamað- urinn hafi sl. fimmtán ár ljósmyndað agnarsmáar sviðsmyndir sem hann býr til í vinnustofu sinni. Meðfram þeirri iðju búi hann til myndbands- og hljóðinnsetningar, þar sem ljósmynd- irnar séu hluti af handriti verksins. „Í myndröðinni Samsett svæði vinnur Bøe með tilvísanir úr frétta- ljósmyndun, af félagslegum eða stjórnmálalegum toga, hvaðanæva úr heiminum. Fréttaljósmyndir þessar notar hann sem útgangspunkt til þess að búa til þrívíða sviðsetningu í formi persóna og hluta í smækkaðri mynd í vinnustofunni. Afraksturinn er vana- lega mjög frábrugðinn fyrirmyndinni. Hann hreinsar og endurskipuleggur mynd eftir sínu höfði, en þó reynir hann að halda sig í farvegi hennar til að fanga stemninguna. Svo setur hann lýsingu og ljósmyndar sviðsetn- inguna. Sýning stendur út árið. Samsett svæði í Skotinu Myndaröð Ein mynda Nils Olavs Bøe. Sveinn Guðmunds- son heldur útgáfu- tónleika á efri hæð Gamla Vínhússins í Hafnarfirði í kvöld kl. 20. Þar fagnar hann út- gáfu plötunnar Fyrir herra Spock, MacGyver og mig sem er fyrsta plata Sveins. „Tónlistin á plötunni sam- anstendur af lágstemmdri gítarmúsík með sjálfspeglandi textum. Sveinn syngur um magaólgur, grímuböll, frændur, klukkur, feluleiki, ketti, skugga, sár og sjálfan sig. Lögin byggjast upp á gítar og söng en eru studd af kontrabassa, básúnu, ritvél, melódiku og einstaka rafmagnsgítar og rafbassa,“ segir í tilkynningu. Magnús Leifur Sveinsson var upp- tökustjóri en kom einnig að hljóð- færaleik og bakröddum. Kristján Hafsteinsson lék á kontrabassa í þrem lögum. Kristmundur Guð- mundsson, Örn Ragnarsson og Gunn- laugur Sveinsson mynduðu svo karla- kór í einu lagi. Aðgangur er ókeypis. Fagnar sinni fyrstu plötu Sveinn Guðmundsson Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Fyrsti þáttur af sex í nýrri tónlist- arþáttaröð RÚV, Stúdíó A, verður sýndur í kvöld kl. 21.25. Þátturinn dregur nafn sitt af myndverinu sem hann er tekinn upp í og munu fjór- ar hljómsveitir og tónlistarmenn koma fram í hverjum þætti og flytja nýja, íslenska tónlist. Stjórn- andi þáttarins er Ólafur Páll Gunn- arsson, tónlistarspekingur og þátta- gerðarmaður á Rás 2. Ekki stæling á Holland RÚV hefur að undanförnu sýnt nokkra af tónlistarþáttum Jools Holland sem sýndir hafa verið um árabil á BBC 2, einni af sjónvarps- stöðvum breska ríkisútvarpsins, en í þeim fær Holland til sín þær hljómsveitir og tónlistarmenn sem ofarlega eru á baugi hverju sinni. Það liggur því beinast við að spyrja Ólaf hvort hann sé með þáttunum orðinn hinn íslenski Jools Holland. „Það er ekkert leyndarmál að þættirnir eru byggðir á því frábæra konsepti en það er ekkert verið að stæla þetta alla leið. Þetta snýst um lifandi tónlistarflutning í sjónvarp- inu og það eru fjögur atriði í hverj- um þætti, fjórar hljómsveitir eða listamenn og við reynum að blanda þessu saman þannig að þetta verði skemmtilegur kokteill. Það sem mér finnst skemmtilegt við þetta er að þetta er alvöru, lifandi flutn- ingur, það hefur ekki verið gert neitt mikið af því í langan tíma,“ segir Ólafur. Hljómsveitirnar leiki fyrir áhorfendur í sal og útkoman sé virkilega góð, að hans mati. „Það er ekki verið að spila gamla smelli, þetta er allt saman ný tónlist,“ seg- ir Ólafur um tónlistina í þáttunum. Skarphéðinn sló til „Ég er búinn að fara með svipaða hugmynd og þessa til margra dag- skrárstjóra, ætli ég hafi ekki kynnt hana fyrir þremur eða fjórum,“ segir Ólafur. Skarphéðinn Guð- mundsson, dagskrárstjóri RÚV, hafi vitað af því og slegið til. Spurð- ur út í uppbygginguna á þáttunum segir Ólafur að hann kynni hljóm- sveitirnar til leiks en láti svo lítið fyrir sér fara fyrir utan að spjalla örstutt við flytjendur milli laga. Tónlistarflutningurinn sé aðal- atriðið. Hvað valið á hljómsveitum varðar segir Ólafur að þær þurfi að vera áhugaverðar, blandan skemmtileg og höfði vonandi til breiðs aldurs- hóps þannig að öll fjölskyldan geti haft gaman af. Til dæmis koma fram í fyrsta þætti Ásgeir, Kaleo, Ragnar Bjarnason og Markús Bjarnason. Skemmtilegt tækifæri „Mér finnst ferlega skemmtilegt að fá tækifæri til að gera þetta og vonandi er þetta þess eðlis að það verði fleiri þættir gerðir en þessir sex. Þetta er öðruvísi en verið hefur og kemur að einhverju leyti í stað- inn fyrir tónlistina sem hefur verið í Kastljósinu. Að mínu viti er þetta skemmtilegra, þú færð þarna fjög- ur atriði og sumir spila eitt lag, aðr- ir tvö eða þrjú. Það er rúllað á milli flytjenda og þetta er góð heimild um það sem er að gerast í íslenskri tónlist,“ segir Ólafur og bætir því við að ef Ísland sé þekkt fyrir eitt- hvað þá sé það tónlistin og því eigi RÚV að bjóða upp á þætti á borð við Stúdíó A. „Ég er bara ótrúlega hamingjusamur yfir því að fá að vera með í þessu.“ Morgunblaðið/Rósa Braga Tónlistarmannafjöld Ólafur Páll með hljómsveitunum sem koma fram í þriðja þætti Stúdíó A: Sálinni hans Jóns míns, Leaves, Monotown og Berndsen. „Alvöru, lifandi flutningur“  Ný sjónvarpsþáttaröð, Stúdíó A, hefur göngu sína á RÚV í kvöld undir stjórn Ólafs Páls Gunnarssonar  Fjórar hljómsveitir koma fram í hverjum þætti Morgunblaðið/Rósa Braga Öflugur Berndsen syngur af innlifun við tökur á þriðja þætti Stúdíó A. STOFNAÐ1987 einstakt eitthvað alveg Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s M ál ve rk : Si g u rb jö rn Jó n ss o n

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.