Morgunblaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013
Skotbómulyftarar
mest seldi
skotbómulyftarinn
2012
Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is
Lyftigeta 2.5 til 12 tonn
Fáanlegir með
• Vinnukörfum
• Skekkingju á bómu
• Bómu með lengd allt að 18 metrum
• Roto útfærsla með bómu
allt að 25 metrum
Sýning á frum-
skjölum mann-
talsins árið 1703
verður í húsnæði
Þjóðskjalasafns
Íslands, Lauga-
vegi 162 í
Reykjavík,
laugardagana
9. og 16. nóv-
ember.
Menningar-
málastofnun Sameinuðu þjóðanna,
UNESCO, samþykkti fyrr á árinu
umsókn Þjóðskjalasafnsins um að
manntalið yrði sett á lista Samein-
uðu þjóðanna yfir Minni heimsins.
Sýningin er haldin í tilefni af
Norræna skjaladeginum.
Sýning á manntal-
inu frá 1703
Síða úr manntalinu
1703.
Þjóðbúningadagar verða haldnir í
Minjasafninu á Akureyri um
helgina, milli kl. 13 og 17 laug-
ardag og sunnudag.
Dagarnir eru haldnir í samstarfi
við Heimilisiðnaðarfélag Íslands,
sem fagnar 100 ára afmæli í ár og
Handraðans, sem er félagsskapur
fólks í Eyjafirði sem vinnur að því
að viðhalda þekkingu á íslenskum
þjóðháttum.
Þjóðbúningadagar hefjast á nám-
skeiði í gerð undirpilsa fyrir þjóð-
búninga, sem Oddný Kristjáns-
dóttir, klæðskerameistari, stýrir.
Hún flytur einnig fyrirlestur um
þjóðbúninga á laugardag.
Aðgangsmiði í safnið gildir á sýn-
inguna og þeir sem mæta í þjóðbún-
ingum fá frítt inn.
Þjóðbúningar Konur í þjóðbúningum.
Þjóðbúningadagar í
Minjasafni Akureyrar
STUTT
Fyrirlestur um ísmanninn Ötzi
verður haldinn í Bókasal Þjóð-
menningarhússins í dag klukkan
16.
Norski fræðimaðurinn Thorstein
Sjövold flytur fyrirlesturinn en Sjö-
vold hefur tekið virkan þátt í rann-
sóknum á Ötzi, sem fannst árið
1991 í ítölsku ölpunum. Fléttað
verður saman niðurstöðum ýmissa
rannsókna um ísmanninn auk upp-
lýsinga um svæðið þar sem hann
fannst.
Fyrirlestur um ís-
manninn Ötzi
SVIÐSLJÓS
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Tveir fyrrverandi viðskiptastjórar út-
lánasviðs Kaupþings voru á meðal
þeirra sem báru vitni á þriðja degi að-
almeðferðar í Al Thani-málinu svo-
nefnda í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Þeir voru meðal annars spurðir
um 50 milljóna dollara peningamark-
aðslán til félagsins Brooks Trading, í
eigu sjeiks Mohammeds Al-Thani af
Katar í september árið 2008 og 13
milljarða króna lán án trygginga til
Gerland Assets, félags Ólafs Ólafs-
sonar.
Saksóknari lék upptöku af símtali
Halldórs Bjarkars Lúðvígssonar, þá-
verandi viðskiptastjóra útlánasviðs
bankans, við innri endurskoðanda
bankans. Þar útskýrir Halldór lán-
veitingar vegna viðskipta með rúm-
lega 5% hlut í bankanum.
Þar sagði Halldór Bjarkar meðal
annars að uppbygging viðskiptanna
hefði verið til þess gerð að fela hlut-
deild Ólafs. Halldór hélt því fram í
símtalinu að 50 milljóna dollara lánið
til félags sjeiksins hefði verið greiðsla
eða mútur til hans fyrir að ljá nafn
sitt viðskiptunum með hlutabréfin.
Eigin getgátur eftir á
Sakborningarnir Hreiðar Már Sig-
urðsson, þáverandi forstjóri Kaup-
þings, og Magnús Guðmundsson, for-
stjóri Kaupþings í Lúxemborg, voru
þeir sem lýstu uppbyggingu við-
skiptanna og sá fyrrnefndi gaf Hall-
dóri Bjarkari fyrirmæli um lán þeim
tengd að því er Halldór bar.
Samkvæmt vitnisburði hans gaf
Hreiðar Már Halldóri fyrirmæli um
að greiða út lánið til Brooks Trading
þrátt fyrir að lánanefnd bankans
hefði ekki samþykkt það. Hreiðar
Már hafi sagt honum að hafa ekki
áhyggjur af því. Verjandi Hreiðars
Más dró þetta í efa og sagði engin
gögn til um samskipti hans og Hall-
dórs Bjarkars og að skjólstæðingur
sinn minntist ekki að hafa rætt þetta
við hann. Á þessu kunni Halldór
Bjarkar ekki skýringar.
Verjandinn krafði Halldór Bjarkar
einnig um rökstuðning fyrir fullyrð-
ingum sínum um mútur til Al-Thani
og að fela hafi átt þátt Ólafs í viðskipt-
unum. Halldór Bjarkar svaraði því til
að um getgátur sínar væri að ræða
eftir að hann hefði farið yfir uppbygg-
inguna eftir á.
Mundi lítið eftir málinu
Kollegi Halldórs Bjarkars á út-
lánasviði Kaupþings, Guðmundur Þór
Gunnarsson, gaf næstur skýrslu.
Þrátt fyrir að saksóknari spyrði hann
ítrekað um viðskiptin með hlutabréf-
in og lán vegna þeirra sem fóru í
gegnum hans svið í bankanum sagð-
ist viðskiptastjórinn fyrrverandi ekki
muna eftir efni fundar með Hreiðari
Má, Magnúsi og Halldóri Bjarkari
um lánveitingarnar, hver hefði gefið
fyrirmæli um þær eða umræðum um
viðskiptin á þessum tíma.
Guðmundur Þór sagði þó að hann
hlyti að hafa vitað af peningamark-
aðsláninu til Brooks Trading og lán-
inu til Gerland Assets en hann myndi
þó ekki eftir því.
Þá óskaði hann eftir að fá að breyta
framburði sínum frá því í skýrslutöku
hjá sérstökum saksóknara. Þar hafði
hann sagt að ef hann sjálfur hefði af-
greitt lán til Gerland Assets, sem
hann myndi ekki hvort hann hefði
gert, þá hefði það verið Hreiðar Már
eða yfirmaður hans á útlánasviði,
Bjarki Diego, sem hefðu gefið fyr-
irmæli um að lánað yrði án þess að
samþykki lánanefndar lægi fyrir áð-
ur. Hann hefði síðan þá áttað sig á að
það hefði verið Halldór Bjarkar sem
hefði afgreitt lánið.
Saksóknari spurði Guðmund Þór í
kjölfarið hvort hann hefði rætt við
sakborninga eða verjendur þeirra í
aðdraganda aðalmeðferðar málsins.
Vitnið játaði því.
Til þess gert að fela aðkomu Ólafs
Fyrrverandi viðskiptastjóri á útlánasviði Kaupþings taldi lán til sjeiks Al-Thani vera mútur
Hreiðar Már kannast ekki við að hafa gefið honum fyrirmæli um lánið Vitni mundi ekkert
Morgunblaðið/Rósa Braga
Vitni Halldór í héraðsdómi. Þeir Guðmundur Þór höfðu báðir stöðu sakbornings við rannsókn málsins um tíma.
Lara E. Schweiger, sem var lög-
maður á lögfræðisviði Kaup-
þings í Lúxemborg, gerði drög
að gögnum vegna lánsins til
Brooks Trading. Henni hafi ekki
verið forsendur lánsins ljósar í
byrjun en Eggert Hilmarsson,
forstöðumaður sviðsins, hafi
svo útskýrt að það væri veitt
sem fyrirframgreiðsla á arði
vegna lánshæfistengdra skulda-
bréfa Deutsche Bank.
Schweiger sagðist ekki
þekkja önnur dæmi um að lán
hefðu verið veitt á slíkum for-
sendum þegar saksóknari
spurði hvort þetta væri algengt.
„Það var ekkert vit í þessu. Við
fengum ekki frekari skýringar á
því,“ sagði hún.
„Var ekkert
vit í þessu“
LÖGFRÆÐINGUR Í LÚX
Telma Halldórsdóttir, lögmaður,
tók sæti í stjórn Q Iceland Holding,
félags sjeiks Al-Thani um hluti
hans í Kaupþingi. Hún tók þar sæti
fyrir milligöngu Ólafs Ólafssonar.
Hún bar fyrir dómi að henni hefði
hvorki verið kunnugt um lánið til
Brooks Trading né Gerland Assets
fyrr en við rannsókn málsins.
Aldrei hefði komið fram að Ólaf-
ur væri þátttakandi í viðskiptunum
með bréf Kaupþings. Þegar hún
hafi síðar leitað svara hafi Ólafur
tjáð henni að kaupin hafi verið
tryggð til helminga með sjálfs-
ábyrgð sjeiksins og veði í bréf-
unum sjálfum. Hún hafi hins vegar
ekki vitað að Kaupþing hefði sjálft
fjármagnað kaupin að fullu. Henni
hafi áður skilist að sjeikinn fjár-
magnaði þau sjálfur.
Guðmundur J. Oddsson var
einnig stjórnarmaður í Q Iceland
Holding, en honum var heldur ekki
kunnugt um að Ólafur kæmi að
viðskiptunum. Sjálfur hefði hann
ekki komið að kaupunum á hlut-
unum í Kaupþingi, né hefði hann
þekkt uppbyggingu þeirra.
Telma hafði áður sagt Guðmund
eiga lítinn hlut í félagi sjeiksins en
Guðmundur sagði það misskilning.
Vissi ekki um fjármögnunina
STJÓRNARMENN Í Q ICELAND HOLDING