Morgunblaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 fi p y j g p C p i ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam Villibráðar-paté prikmeð pa Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ - salat skufer ðbo arðameð Miðj kjRisa-ræ með peppadew iluS ajónmeð japönsku m het Hörpuskeljar má, 3 s Frönsk súkkulaðikaka skum/rjóma og fer Vanillufylltar vatnsdeigsbollur arbSúkkulaðiskeljar með jarð Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R ahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti mSími 511 8090 • www.yndisauki.is Veitingar fyrir öll tækifæri, stór og smá, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Markmið okkar er alltaf það sama, glæsilegar veitingar og ómótstæðilegt bragð. Persónuleg og góð þjónusta. Ágæti landlæknir. Svanhvít Harð- ardóttir heiti ég og vil vekja athygli á máli varðandi ákveðna smit- sjúkdóma. Ég er menntaður tanntæknir og vinn á tannlæknastofu í Reykjavík. Flestir heilbrigðisstarfsmenn eru bólusettir fyrir lifrarbólgu A og B. Það er byrjað að bólusetja tannlæknanema í Læknagarði á fyrsta ári en tanntæknanemum er ekki boðið upp á þessa bólusetn- ingu nema að þeir greiði fyrir hana sjálfir. Þannig má segja að tannlæknar séu varðir fyrir lifrarbólgu A og B. Enn er ekki til bólusetning fyrir lifrarbólgu C eða HIV. Sumir tannlæknar bjóða starfsmönnum sínum upp á þessa bólusetningu en alls ekki allir. Þegar ég var í verknámi í Læknagarði voru sérstakar var- úðarráðstafanir fyrir sjúklinga með ofangreindu sjúkdóma. Það var allt sett í ákveðna tegund af pokum og svo beint inn í ofn. Þeg- ar ofninn var búinn var allt tekið úr pokanum og sett í venjulegt hreinsunarferli. Venjulegt hreins- unarferli er að flokka nálar, deyfi- lyf, saumnálar og hnífsblöð og setja það í sér ílát. Svo eru hin verkfærin sápuþvegin, þurrkuð, (sum sett í ultrasonic vél) og svo inn í ofn. Ákveðnum verkfærum fyrir aðgerðir er pakkað inn eftir hreinsunarferlið og sett svo inn í ofninn. Okkur er kennt að koma fram við alla sjúklinga eins og þeir væru sýktir. Samt eru gerðar sér var- úðarráðstafanir fyrir sýkta sjúk- linga. Ef það ætti að setja allt í poka og beint inn í ofn eftir hvern einasta sjúkling og svo í venjulegt hreinsunarferli þá kostar það meiri vinnu og meiri peninga. Helst auka starfsmenn. Það sem ég vil vekja athygli á er að fólki sem er smitað af ofan- greindum sjúkdómum ber engin skylda til að segja frá því áður en það er meðhöndlað hjá tannlækni. Mjög margir segja ekki frá því og eru með því að stofna heilbrigð- isstarfsfólki í hættu. Til eru mörg dæmi um að fólk hefur jafnvel ekki sagt frá nema eftir stunguó- höpp eða jafnvel að lokinni með- ferð hjá tannlækni. Þeir sem hafa þessa sjúkdóma eru með þetta skráð í sjúkraskýrslum sínum. Af hverju ættu tannlæknastofur ekki að hafa þetta skráð líka? Það ætti að samnýta þessar upplýsingar á milli heilsugæslustöðva, sjúkra- húsa og tannlæknastofa. Tannlækningar eru líka hluti af heilbrigðiskerfinu hér á landi þó að maður spyrji sig oft á tíðum hvort heilbrigðiskerfið á Íslandi líti ekki á munnheilbrigði fólks sem hluta af almennu heilbrigði. En það er allt annað mál og ekki alveg það sem þetta bréf á að fjalla um. Þó vil ég nefna það að það er alltaf ákveðin áhætta að með- höndla alla einstaklinga, hvort sem þeir eru sýktir eða ekki eða viti ekki af að þeir séu sýktir. Heil- brigðisstarfsmenn eru meðvitaðir um það. En af hverju eigum við ekki að fá að vita um ákveðna sjúkdóma þegar það kemur okkur við? Við meðhöndlum blóðug verkfæri og nálar. Tannlæknastofur eru „lítil munnsjúkrahús“ og því er sjálfsagt að þær séu tengdar ákveðnum upplýsingabanka þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um hvern og einn sjúkling en þá innan ákveðinna marka. Eingöngu til að geta gert varúðarráðstafanir og að við séum meðvituð um öryggi okk- ar og sjúklinganna. Hvað varðar persónunefnd þá eru starfsmenn á tannlæknastofum bundnir þagnarskyldu. Vænti þess að fá svör við þessu bréfi og vona að þetta skapi um- ræður um að breyta kerfinu okkar til hins betra, fyrir alla. Opið bréf til landlæknis Eftir Svanhvíti Harðardóttur. Svanhvít Harðardóttir » Sumir tannlæknar bjóða starfsmönnum sínum upp á þessa bólusetningu en alls ekki allir. Höfundur er tanntæknir. Í leiðara Frétta- blaðsins 29. október sl. undir fyrirsögninni „Millilending í flugvall- armáli“ segir Ólafur Stephensen, ritstjóri blaðsins: „Sam- komulagið (milli ríkis og borgar) gerir ráð fyrir að vera flugvall- arins í Vatnsmýrinni sé framlengd um sex ár, til 2022. Það þýðir að fótunum verð- ur ekki kippt undan innanlandsflug- inu á næsta kjörtímabili borg- arstjórnar og leiðir reyndar líka af sér að flugvöllurinn verður ekki kosningamál í næstu borgarstjórn- arkosningum. Það skiptir verulegu máli að í samkomulaginu opnar ríkið á þann möguleika að innanlands- flugvelli verði fundinn nýr staður á höfuðborgarsvæðinu. Það var ágætt að Hanna Birna Kristjánsdóttir inn- anríkisráðherra skyldi hvorki hlusta á Sigmund Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra, sem vildi skapa „sátt“ um að flugvöllurinn yrði í Vatnsmýrinni til frambúðar, né Höskuld Þórhallsson flokksbróður hans, sem vildi taka skipulagsvaldið í Vatnsmýrinni af Reykvíkingum.“ Óskiljanleg eftirgjöf Hér er um afar merkilega grein- ingu að ræða hjá ritstjóranum, sem er einn nánasti samstarfsmaður inn- anríkisráðherrans. Í borgarstjóratíð minni skrifaði ritstjórinn gegn meirihluta F- og D- lista og núverandi inn- anríkisráðherra „hlust- aði“ lítt á mig, þó að fyrir lægi skýr mál- efnasamningur. Ég reyndi að standa gegn þessu, þrátt fyrir veikt bakland. Þess vegna finnst mér sárt að horfa upp á eftirgjöf forsætisráðherra, sem hafði eindreginn þjóð- arvilja á bak við sig í flugvallarmálinu. Leift- ursókn flugvallarsinna með glæsi- legri undirskriftasöfnun er þar með runnin út í sandinn. Flugvallarmálið er í raun verr statt en áður, því að nú hefur ráðherra undirritað sam- komulag, sem getur skuldbundið ríkisvaldið til að byggja óþarfan flugvöll fyrir tugi milljarða króna! Hvert á að sækja þá fjármuni? Auk þess felur samkomulagið í sér lokun NA/SV brautarinnar, sem skerðir flugöryggi og veikir besta kostinn í flugvallarmálinu. Hvílíkur skaðræð- isgjörningur hjá innanríkisráðherra og flumbrugangur hjá forsætisráð- herra! Samkomulag í þágu flugvallarandstæðinga Samkomulagið um flugvöllinn í Vatnsmýri hefur á sér mjög pólitísk- an blæ, eins og kom fram í Stak- steinum Morgunblaðsins 28. október sl., þar sem segir: „Samkomulagið gera borgarfulltrúar meirihlutans í viðleitni sinni til að láta skera sig niður úr snörunni fyrir kosning- arnar. Í raun veitir samkomulagið flugvellinum aðeins gálgafrest og er gagnlegt eftir því.“ Við þetta má bæta, að innanríkisráðherra er meiri pólitískur bandamaður flugvall- arandstæðinga í öllum flokkum borgarstjórnar, en nokkurn tíma forsætisráðherra eða fjármálaráð- herra, eins og dæmin sanna. Sérkennileg forgangsröðun Að lokum gef ég ritstjóra Frétta- blaðsins orðið, þar sem hann segir: „Samkomulagið er ekki gallalaust, áfram er gert ráð fyrir að hæstu trén í elsta útivistarskógi borgarbúa verði söguð niður og sett ljót lend- ingarljós á annað útivistarsvæði við Skerjafjörð. Það er ákveðin huggun að í samkomulaginu er kveðið á um að gera ljósin minna ljót og tak- marka skógarhöggið.“ Þessi orð bera vitni um sérkennilega for- gangsröðun og visst skilningsleysi á því, að flugöryggi og bráðaþjónusta er dauðans alvara. Fyrir þeim mál- um þarf að berjast áfram, m.a. í næstu borgarstjórnarkosningum. Eftir Ólaf F. Magnússon » Þess vegna finnst mér sárt að horfa upp á eftirgjöf forsætis- ráðherra, sem hafði ein- dreginn þjóðarvilja á bak við sig í flugvall- armálinu. Ólafur F. Magnússon Höfundur er er læknir og fv. borgarstjóri. „Millilending“ í flugvallarmáli - með morgunkaffinu Karl Þorsteins ritar grein um fjárfesting- arleiðina í Morg- unblaðið 4. nóvember sl. Í greininni vekur hann réttmæta athygli á mikilvægi þess fyrir land með ónógan gjald- eyri „að stuðla að auk- inni verðmætasköpun með fjárfestingum í at- vinnugreinum sem skapa gjaldeyri eða atvinnugreinum sem draga úr þörf fyrir innflutning“. Þetta var einmitt eitt af meginmark- miðum Seðlabankans þegar til gjald- eyrisútboðanna var stofnað, þ.e. að liðka fyrir losun hafta á fjármagns- hreyfingar með gjaldeyri, án þess að það valdi verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum eða tefli fjármálastöðugleika í tvísýnu. Greinarhöfundur gagnrýnir regluverk fjárfestingarleiðarinnar sem hann telur virka að einhverju leyti vel fyrir Íslendinga sem eiga fjármagn erlendis og vilja kaupa fasteignir eða ríkisskuldabréf á Íslandi. Síður fyrir er- lenda fjárfesta. Erlend- ir fjárfestar hafa með þátttöku sinni til þessa í fjárfestingaleiðinni af- sannað ofangreint. Greining á þátttakendum í útboðum það sem af er árinu 2013 leiðir í ljós að 38% heildarfjárhæðarinnar koma frá innlendum og 62% frá erlendum fjárfestum. Við greininguna eru er- lend fyrirtæki í eigu íslenskra aðila flokkuð sem innlendir fjárfestar og er hér horft til fjárfestingarleiðarinnar eingöngu. Frá því fyrsta útboðið í fjárfestingarleiðinni var haldið í febr- úar 2012 hefur hlutdeild innlendra aðila verið 35% og hlutdeild erlendra aðila 65%. Greinarhöfundur finnur að bindi- tíma fjárfestinga sem hann telur full- komna óvissu ríkja um. Um þetta at- riði ríkir þó ekki óvissa að því leyti að forsenda þátttöku fjárfestis í útboð- um byggist á samþykki hans um að undirgangast bann til fimm ára um ráðstöfun fjárfestingarinnar. Þessu verður ekki breytt og er því ekki háð óvissu. Það er hins vegar rétt að ekki ríkir fullkomin vissa um það réttarástand sem mun ríkja að loknu fimm ára tímabili ráðstöfunarbanns á fjárfest- ingum. Fjárfestar geta hins vegar valið í stað þátttöku í fjárfesting- arleiðinni að skrá fjárfestingu sína sem „nýfjárfestingu“ samkvæmt gr. 13. m. gjaldeyrislaganna. Slíkar fjár- festingar falla ekki undir takmark- anir gjaldeyrislaganna og við inn- lausn skráðra nýfjárfestinga getur fjárfestir því keypt erlendan gjald- eyri fyrir söluandvirðið og haldið af landi brott með sína fjármuni. Þetta er þýðingarmikið atriði fyrir fjárfesta að hafa í huga þegar þeir velja á milli þátttöku í útboðum með tilheyrandi kvöðum um bindingu og eignarhald og þess að skrá fjárfestingu sína sem nýfjárfestingu án slíkra kvaða en verða þá af ávinningi af útboðsþátt- töku. Útboðin hafa þegar skilað þeim ávinningi að lækka verulega stofn kvikra krónuinnstæðna í innlendu bankakerfi. Það býr í haginn fyrir það markmið sem felst í skilmálum fjár- festingarleiðarinnar að losa fjár- magnshöftin innan fimm ára bindi- tímans, þótt ekki sé tímabært að tímasetja slík skref á meðan óvissa ríkir um slit búa föllnu bankanna. Eftir Þorgeir Eyjólfsson »Útboðin hafa þegar skilað þeim ávinn- ingi að lækka verulega stofn kvikra krónu- innstæðna í innlendu bankakerfi. Þorgeir Eyjólfsson Höfundur er verkefnisstjóri í Seðlabankanum. Um fjárfestingarleiðina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.