Morgunblaðið - 08.01.2014, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 8. J A N Ú A R 2 0 1 4
Stofnað 1913 6. tölublað 102. árgangur
HEIMILDARMYND,
FURÐULJÓS OG
FATAHÖNNUN FLJÚGANDI NORNIR
SVERRIR GEFUR
ÚT FYRSTU
SKÍFU SÍNA
SÉRSTÖK BÓK UM MANNLÍF Í MALAVÍ 10 ÞERAPÍUPLATA 39GJÖRNINGASYRPA 38
„Það er brjálað að gera. Þetta er búið að vera
svona frá því fyrir jól,“ sagði Eyjólfur Einarsson,
hjá bílaþvottastöðinni Splass í Kópavogi. „Það
vilja allir vera á hreinum bíl um jól og áramót og
svo er það líka tíðin.“ Bílaröðin rann á færibandi
í gegnum stöðina í gær. Bílarnir eru hand-
þvegnir hjá Splass, þurrkaðir og bónaðir og
skolaðir með eimuðu vatni. Bíleigendur eru
ánægðir með það, að sögn Eyjólfs.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bílarnir þvegnir og gljáfægðir
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Það stefnir í erfiðar kjaraviðræður
opinberra starfsmanna en fulltrú-
ar framhaldsskólakennara og
Bandalags háskólamanna segja
markið sett á að ná fram lang-
þráðum leiðréttingum í yfirstand-
andi viðræðum. Samninganefnd
ríkisins fundaði með fulltrúum
BHM og Kennarasambands Ís-
lands á mánudag og fulltrúum
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja í gær.
„Það er svolítið misjöfn nálgunin
hjá þeim þannig að maður áttar sig
ekki alveg á því hvernig framhaldið
verður,“ segir Gunnar Björnsson,
formaður samninganefndarinnar.
„BSRB og BHM eru með mismun-
andi nálgun varðandi bæði samn-
ingslengd og inntak, og nálgun KÍ
er svo allt öðruvísi, þannig að þetta
er svolítið sundurlaust eins og er,“
segir hann.
Gunnar segir samningsafstöðu
ríkisins alltaf hafa verið skýra, það
sé verðmætasköpunin á almenna
markaðnum sem ráði ferðinni og
ríkið ætli sér að vera í takti við
hann. Þar sem samningarnir á al-
menna markaðnum séu hins vegar
uppbyggðir á annan hátt en samn-
ingar hins opinbera, verði meira
horft til þess að kostnaðaráhrifin
verði sambærileg.
Tuttugu og þrjú aðildarfélög
BHM koma sameiginlega að við-
ræðum um launaliðinn og að sögn
Guðlaugar Kristjánsdóttur, for-
manns BHM, kynnti samninga-
nefndin áherslur sínar á fundinum
á mánudag. „Öll árin frá hruni hef-
ur okkar hópur setið til hliðar, það
var lögð áhersla á lægstu launin og
það hefur orðið til þess að gjald-
fella störf háskólamenntaðra,“ seg-
ir hún. Mikil samstaða sé innan
hópsins um að ná fram leiðréttingu.
Ætla að ná fram leiðréttingu
Fulltrúar framhaldsskólakennara og Bandalags háskólamanna stefna á að rétta hlut
félagsmanna í yfirstandandi kjaraviðræðum Ríkið fylgir þróun á almenna markaðnum
MDugir ekki að horfa » 4
Stjórn Persónuverndar mun
væntanlega fjalla á nýjan leik um
götusýn ja.is en fyrirtækið (Já) hef-
ur ekki enn staðfest að það hafi far-
ið eftir úrskurði Persónuverndar
um að afmá persónugreinanlegar
upplýsingar úr götusýn sinni. Já
hafði frest til 1. október til að senda
slíka staðfestingu. Þrátt fyrir skýr
ákvæði í úrskurði Persónuverndar
má enn sjá fjölda andlita og bílnúm-
era, m.a. við Glæsibæ (Álfheima 74)
en þar er Já einmitt til húsa. »8
Já hefur ekki stað-
fest að farið hafi
verið eftir úrskurði
Já Númerin sjást ágætlega á bílum við
Glæsibæ. Já er til húsa í nýja turninum.
„Það er okkar tilfinning að það sé
hreinlega verið að reisa girðingar til
að draga úr því að fólk sæki sér heil-
brigðisþjónustu,“ segir Unnur Pét-
ursdóttir, formaður Félags sjúkra-
þjálfara, en hún segir að með setn-
ingu nýrrar reglugerðar hafi yfirvöld
einhliða slitið rammasamningi við
sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara.
Samkvæmt reglugerð 1189/2013 er
það nú forsenda fyrir greiðsluþátt-
töku Sjúkratrygginga Íslands í
sjúkraþjálfun að fyrir liggi skrifleg
beiðni frá lækni. Áður gat fólk sótt tíu
tíma án þess að hafa formlega beiðni
og ákvæði þess efnis er að finna í
rammasamningi sem rann út í byrjun
síðasta árs en enn er unnið eftir.
„Fólk er alveg á suðupunkti“
„Svona hagar fólk sér ekki þegar
um tvíhliða samninga er að ræða,“
segir Unnur en breytingin hafi verið
ákveðin fyrirvaralaust og án samráðs
við sjúkraþjálfara. Fólk gæti nú þurft
að bíða dögum saman eftir að fá tíma
hjá lækni til að komast í sjúkraþjálf-
un, í stað þess að geta fengið lausn
sinna mála án tafar.
Hún segir að í fjárlagafrumvarpinu
2014 hafi komið fram að skera ætti
niður um 100 milljónir í þjálfun en
hún segir ómögulegt að átta sig á því
hvernig menn hyggist spara með
þessari breytingu, þar sem ríkið
greiði 5.600 krónur fyrir hvern ein-
stakling sem leitar til heilsugæsl-
unnar til að fá beiðni og þeir sem hafi
nýtt sér fyrrnefnt úrræði hafi verið
12.000 talsins, bæði 2012 og 2013.
„Maður heyrir að það er ofboðslegur
kurr í sjúkraþjálfurum og það rignir
inn tölvupóstum,“ segir Unnur um
óánægju sjúkraþjálfara. „Fólk er alveg
á suðupunkti.“ holmfridur@mbl.is
Þurfa nú
beiðni
frá lækni
Reglugerðin stang-
ast á við samninginn
Karli og konu var bjargað út um
glugga á brennandi íbúð í raðhúsi við
Mávabraut í Keflavík í gærkvöld.
Tilkynnt var um eld í íbúðinni klukk-
an 20.55. Fjölmennt lið lögreglu og
slökkviliðs Brunavarna Suðurnesja
kom á staðinn. Þá var mikill reykur
og einhver eldur í íbúðinni.
Lögreglan hafði náð öðru þeirra
sem í íbúðinni voru út um stóran
glugga á jarðhæð hússins þegar
slökkviliðið kom. Síðan hjálpuðust
lögreglumenn og slökkviliðsmenn að
við að bjarga hinu út um sama
glugga, samkvæmt upplýsingum frá
Brunavörnum Suðurnesja. Fólkið
var talið hafa fengið reykeitrun. Það
var flutt á Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja til aðhlynningar og þaðan á
Landspítalann í Fossvogi. Ekki
fengust nánari upplýsingar um líðan
fólksins áður en blaðið fór í prentun.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn
og var aðgerðum slökkviliðs lokið um
klukkan 22.00. Miklar skemmdir
urðu á íbúðinni af völdum elds, sóts
og reyks. Eldsupptök voru ókunn.
gudni@mbl.is, larahalla@mbl.is
Tveimur bjargað
úr brennandi íbúð
Eldur kom upp í íbúðarhúsi í Keflavík
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Eldsvoði Lögregla og slökkvilið bjargaði fólkinu út um stóran glugga á
jarðhæð hússins. Grunur lék á reykeitrun og var fólkið flutt á sjúkrahús.