Morgunblaðið - 08.01.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þegar maður er búinn að mjólka
kýr í sextíu ár þá skilur maður ekki
að það sé neitt verra að gera það en
annað sem maður vinnur,“ segir
Margrét Ingvarsdóttir, bóndi á
Ytri-Mælifellsá í Efribyggð í
Skagafirði. Hún og sonur hennar,
Jón bóndi Arnljótsson, handmjólka
kýrnar í fötur tvisvar á dag, eins og
gert hefur verið á þessum bæ frá
upphafi kúabúskapar.
Ytri-Mælifellsá er eina kúabú
landsins sem selur mjólk sem hand-
mjólkuð er, að því er fram kemur í
skýrslu Landssambands kúabænda
um fjósgerðir og mjaltaaðferðir.
Raunar hefur búið verið sér á báti
að þessu leyti í tuttugu ár. Mjólkin
er alltaf fyrsta flokks, það stað-
festir Mjólkursamlagið á Sauð-
árkróki. Sjö bú til viðbótar nota enn
gamla fötumjaltakerfið. Mjólkin
rennur í fötu sem fjósamaðurinn
ber í mjólkurhús og hellir í mjólk-
urtank.
Kvígurnar lenda á Jóni
Margrét og Jón fara saman í fjós
og mjólka þrjár til fjórar kýr hvort.
Tekur það rúma klukkustund,
hvert mál. Margrét segist alltaf sjá
um sömu kýrnar, kvígurnar lendi
frekar á Jóni enda séu þær ódælli.
„Þetta er framtaksleysi, ætli það
hljóti ekki að vera,“ segir Margrét
þegar hún er spurð hvers vegna
ekki hafi verið skipt yfir í fötukerfi
á sínum tíma eða rörmjaltakerfi.
Hún segir reyndar að þau séu með
fáar kýr og laga þurfi fjósið mikið
til þess að það borgi sig að taka upp
nýjungar í mjaltatækni.
„Það endar sjálfsagt með því.
Annars erum við farin að fullorðn-
ast dálítið,“ segir Margrét sem er
komin vel á áttræðisaldur. Annars
segir hún að aðstaðan í fjósinu á
Ytri-Mælifellsá sé ekki verri en hún
hafi lengi verið. Hins vegar séu svo
miklar framfarir og breytingar á
öllum sviðum annars staðar að sam-
anburðurinn verði óhagstæður.
Margrét hefur komið á kúabú
með mjaltaþjóni og leist bara
þokkalega á. Hún reiknar þó ekki
með að sjá mjaltaþjón á eigin búi.
„Það er fullmikil fjárfesting fyrir
svona lítið bú. Ég lifi það sjálfsagt
ekki að það komi lítill, sætur róbót
fyrir sjö kýr,“ segir hún. » 14
Ekkert verra en hvað annað
Kýrnar enn handmjólkaðar á Ytri-Mælifellsá Sjö bú eru með gamla fötumjaltakerfið
Ég lifi það sjálfsagt ekki að það komi lítill, sætur róbót fyrir sjö kýr, segir Margrét Ingvarsdóttir
Morgunblaðið/Björn
Mjaltir Alltaf hefur verið handmjólkað á Ytri-Mælifellsá og fara Jón og
Margrét saman í fjós. Búið hefur oft verið með afurðahæstu búum í héraði.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Síðasti bakkinn í röð nokkurra lægða sem gengið hafa yf-
ir landið norðan- og austanvert hver á fætur annarri síð-
an á Þorláksmessu kemur, ef spár veðurfræðinga ganga
eftir, inn yfir norðan- og austanvert landið nú í morguns-
árið. Því fylgir slydda við ströndina þar sem hiti verður
nálægt frostmarki. Inn til landsins verður kaldara og þar
má gera ráð fyrir snjókomu.
„Þessar lægðir hafa verið eins og veðurspár hafa
sagt fyrir. Það hefur í raun fátt komið á óvart,“ segir
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Hann minnir á að
veðrátta eins og ríkt hafi að undanförnu sé ekki óalgeng
um þetta leyti árs, en hve lengi þetta tíðarfar hafi staðið
sé hliðstæðulítið. Hefur það sem kunnugt er raskað sam-
göngum og valdið töfum. Á móti kemur að búið er að
opna skíðasvæðin, til dæmis fyrir norðan, og nú gildir
þekkt slagorð Akureyringa fremur en nokkurntíma fyrr:
Það er nægur snjór í Hlíðarfjalli!
Að sögn Einars má gera ráð fyrir nokkuð aðgerða-
litlu veðri fram að helgi en austlægar áttir verða þó
ríkjandi samkvæmt spám og síðan snýst í vestanátt. Um
helgina er hins vegar gert ráð fyrir því að djúp lægð
sunnan úr höfum stígi dansinn og þá snúist í hvassa SA-
og jafnvel S-átt og með hlýindum og rigningu. Mun þá
þann snjó og einkum klaka sem nú er yfir landinu sunn-
anverðu, svo sem höfuðborgarsvæðinu, væntanlega taka
upp að talsverðu leyti. Langtímaspárnar eru þó ekki ná-
kvæmar enn og ýmislegt gæti hliðrast og breyst fram á
sunnudag.
Snýst úr norðlægum
áttum í slyddu syðra
Veðraskil í kortum Hlýnar og klaki í borginni bráðnar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Eftir snjókomu að undanförnu eru ruðningar við götur og klaki á stéttum á Akureyri og færi erfitt.
„Þetta blessaðist allt að lokum
og skipaferðir eru aftur komnar
á áætlun,“ segir Ólafur William
Hand, blaðafulltrúi Eimskips.
Nokkrar tafir urðu á siglingum
flutningaskipa til landsins fyrir
jól vegna veðurs og þótti kaup-
mönnum, sem voru áhyggjufullir,
að ekki mætti tæpara standa.
Flestir voru raunar nokkru fyrr
komnir með jólasendingarnar í
hús, en ýmis ferskvara var á síðustu stundu svo
koma mætti henni áfram í verslanir áður en tíðin
gengi í garð. Það tókst að lokum.
Ameríkuskipinu Reykjafossi seinkaði um þrjá
daga og Evrópuskipin voru sömuleiðis nokkuð á eftir
áætlun. „Vegna veðurs bæði hér fyrir vestan okkur
og sunnan landið voru skipin að sigla upp í vindinn
og það eru bara aðstæður sem við ráðum ekkert við.
En heim komust þau og á siglingaáætlun okkar er ör-
lítill slaki þannig að við náum að vinna tafir upp, eins
og nú hefur gerst,“ segir Ólafur.
Flutningaskipin eru
aftur komin á áætlun
KAUPMENN VORU ORÐNIR ÁHYGGJUFULLIR
Ólafur William Hand
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lýst var yfir hættustigi vegna snjó-
flóðahættu á Ísafirði í gær. Reitur 9,
sem er atvinnusvæði, var rýmdur og
sorpmóttöku við Funa lokað. Áfram
var í gildi óvissustig vegna snjóflóða
á norðanverðum Vestfjörðum. Mikill
snjór er til fjalla á norðan- og aust-
anverðu landinu.
Harpa Grímsdóttir, fagstjóri of-
anflóðavár hjá Veðurstofunni,
kvaðst síðdegis í gær ekki eiga von á
frekari rýmingu ef veður héldist eins
og það var í gær. „Við fylgjumst vel
með og grípum til aðgerða ef á þarf
að halda. Við erum á óvissustigi og
með sólarhringsvakt,“ sagði Harpa.
Í fyrradag og fyrrinótt féllu tvö
snjóflóð í Syðridal inn af Bolungar-
vík. Þau ógnuðu ekki byggð. Á
sunnudag féll snjóflóð á Ytri-Kirkju-
bólshlíð gegnt Ísafjarðarbæ. Þá féll
nokkuð stórt snjóflóð innst í Súg-
andafirði, líklega á sunnudaginn var.
Harpa sagði að þetta væru þau snjó-
flóð sem vitað væri af undanfarna
daga. Vegna veðurs hafa ekki sést
fleiri snjóflóð þessa daga.
Vitað er af miklum snjó, aðallega í
norðurhlíð Súgandafjarðar. Snjóflóð
olli 6-7 metra flóðbylgju í firðinum í
október 1995. Töluverðar skemmdir
urðu á bátum og hafnargarðinum á
Suðureyri. Fjöldi fjár drapst á bæn-
um Botni í flóðinu.
Veðurstofan taldi í gær töluverða
hættu vera á snjóflóðum á utanverð-
um Tröllaskaga og á Austfjörðum. Í
gær bárust tilkynningar um tvö lítil
snjóflóð í Neskaupstað. Þar féllu vot
lausasnjóflóð, annað úr Bræðslugjá
og hitt úr Sniðgili.
Snjóflóðahættu-
stig á Ísafirði
Óvissustig áfram í gildi fyrir vestan
Ljósmynd/Róbert Schmidt
Suðureyri Víða hefur dregið í
skafla eins og við Verkalýðshúsið.