Morgunblaðið - 08.01.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðs-
stjóri á höfuðborgarsvæðinu, tekur
undir það með Höskuldi Einarssyni,
fv. deildarstjóra hjá Slökkviliði höf-
uðborgarsvæð-
isins, að fylgjast
þurfi betur með
því að merkingum
og reglum sé fylgt
um flutning á eld-
fimum og öðrum
hættulegum efn-
um í umferðinni. Í
einhverjum til-
vikum geti verið
skortur á eft-
irfylgni af hálfu
eftirlitsaðila en fyrst og síðast þurfi
virðing fyrir gildandi reglum að vera
til staðar þar sem um gríðarlega mik-
ilvægt öryggismál sé að ræða.
„Þetta snýr að okkur öllum sem
komum að þessum málum,“ segir Jón
Viðar og vísar þar til slökkviliðs, lög-
reglu, heilbrigðiseftirlits, Vinnueft-
irlitsins, Umhverfisstofnunar, Mann-
virkjastofnunar, flutningafyrirtækja,
olíufélaga og notenda eldfimra og
annarra hættulegra efna.
Fjallað var um þessi mál í Bílablaði
Morgunblaðsins í gær. Þar sagðist
Höskuldur Einarsson m.a. hafa meiri
áhyggjur af mögulegu eiturefnaslysi
á höfuðborgarsvæðinu en jarð-
skjálfta eða eldgosi.
Jón Viðar bendir á að öll meðferð
og flutningur með hættuleg og eldfim
efni þurfi að fara fram samkvæmt
svonefndum ADR-reglum. Þannig
þurfi tank- og flutningabílar að vera
rétt merktir og bílstjórarnir með
ákveðna menntun til að flytja efnin.
„Merkingarnar eru mjög mik-
ilvægar. Ef eitthvað fer úrskeiðis
verða viðbragðsaðilar að geta séð á
merkingum hver hættan er í hverju
tilviki. Það þarf að framfylgja þess-
um þætti betur hér og kannski er
skortur á eftirlitinu,“ segir Jón Viðar.
Hann tekur einnig undir með
Höskuldi um að huga þurfi vel að
flutningsleiðum með þessi efni. Olíu-
félögin hafi mótað ákveðnar reglur
um þetta og flytji eldsneyti eftir skil-
greindum leiðum.
Olíutankar og eiturefnageymsla
eru í Örfirisey og þaðan er efnunum
ekið um miðborgina, um Mýrargötu
og þaðan áfram um Sæbrautina. Eit-
urefnageymsla er einnig við Sunda-
höfn og þannig mætti áfram telja.
Unnið var áhættumat fyrir nokkr-
um árum um staðsetningu olíu-
tankanna í Örfirisey og t.d. kannað
hvort annar staður væri hentugri
með tilliti til öryggis. Faxaflóahafnir,
slökkviliðið og fleiri aðilar komu að
þeirri vinnu. Niðurstaðan var sú að
staðsetning birgðastöðvar eins og í
Örfirisey væri ekki meginvandinn,
heldur flutningurinn með eldsneytið
milli staða. Langmestur hluti olí-
unnar fer til bensínsstöðva og ann-
arra afgreiðslustöðva á höfuðborg-
arsvæðinu og er einnig dælt beint í
skip. Jón Viðar bendir á að ef ný
birgðastöð yrði t.d. sett upp í Helgu-
vík þá þyrfti eftir sem áður að flytja
eldsneytið til höfuðborgarsvæðisins
um Reykjanesbrautina.
Própangas flutt langa leið
Höskuldur Einarsson tók í blaðinu
í gær dæmi um flutning á gámum
fullum af gasi úr Sundahöfn í
Straumsvík. Um er að ræða próp-
angas sem flutt er fyrir Gasfélagið.
Aðallega eru það Samskip sem
flytja þetta gas fyrir félagið en einnig
Eimskip. Að sögn Péturs Þ. Péturs-
sonar, framkvæmdastjóra Gasfélags-
ins, var gasið áður flutt með tank-
skipum í Straumsvík. Hann segir það
vel geta breyst aftur, það fari eftir
hagkvæmni flutninga hverju sinni.
Pétur segir gámana undir próp-
angasið sérstaklega merkta og við-
urkennda fyrir flutning sem þennan.
Öllum reglum sé fylgt en Pétur tekur
undir með Höskuldi að fara þurfi
með sérstakri gát við flutninga á
gasi.
„Við höfum lagt okkur fram um að
sinna öryggismálunum vel,“ segir
Pétur og tekur sem dæmi að Gas-
félagið hafi nýverið staðið fyrir nám-
skeiði um meðhöndlun og flutninga á
gasi, í samráði við slökkvliðið og lög-
regluna á höfuðborgarsvæðinu.
Bæta þarf
eftirfylgni og
merkingar
Örfirisey talin skásti kostur undir
birgðastöð Flutningur áhættumeiri
Dæmi um flutningsleiðir á gasi,
eldsneyti og eiturefnum
Tankar og eiturefna-
geymsla í Örfirisey
Sundahöfn
Eimskip
Sundahöfn
Samskip
Flutningur á
própangasi frá
Sundahöfn í
Straumsvík
Gasfélagið
Straumsvík
Hafnarfjörður
Álftanes
Garðabær
Kópavogur
Reykjavík
Seltjarnarnes
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Eldsneyti og hættuleg
efni flutt eftir Mýrargötu
og áfram um Sæbraut
Morgunblaðið/Ómar
Birgðastöð Mikill olíuflutningur er frá Örfirisey, gegnum miðborg Reykja-
víkur og áfram eftir Sæbrautinni. Þessi staður hefur verið talinn sá skásti.
Slökkviliðsstjóri segir mikilvægt að reglum um flutning og merkingar hættulegra efna sé fylgt
Jón Viðar
Matthíasson
Páll Hjaltason,
formaður um-
hverfis- og skipu-
lagsráðs Reykja-
víkur, segir
skýrar verklags-
reglur gilda um
flutning á elds-
neyti og hættu-
legum efnum um
götur borg-
arinnar, m.a. um að flutningur fari
fram utan háannatíma og eftir
ákveðnum leiðum. Páll vísar til
áhættumatsins sem Faxaflóahafnir,
slökkviliðið og fleiri gerðu fyrir
nokkrum árum, og greint er hér frá
til hliðar. Þar hafi skýrt komið
fram að Örfirisey væri besti stað-
urinn fyrir olíubirgðastöð. Að öðr-
um kosti þyrfti að fara aðrar og
fjölfarnari leiðir inn í borgina, eins
og um Reykjanesbraut eða Ártúns-
brekku, til að koma eldsneyti til af-
greiðslustöðva. Borgin muni ekki
beita sér fyrir flutningi á tönk-
unum. „Það er aldrei til ein góð
lausn í þessum málum en mikilvæg-
ast að fylgja þeim verklagsreglum
sem gilda, sér í lagi að flutningur
efnanna fari ekki fram á háanna-
tíma,“ segir Páll. bjb@mbl.is
Mikilvægt að flutn-
ingur fari ekki fram
á háannatíma
Páll Hjaltason
Hörður Gunn-
arsson, fram-
kvæmdastjóri Ol-
íudreifingar, sem
sér um dreifingu
og birgðahald
eldsneytis fyrir
N1 og Olís, segir
félagið flytja
eldsneytið frá
Örfirisey eftir
ákveðnum skil-
greindum leiðum. Verklagsreglur
hafi verið settar í samráði við
slökkviliðið og ákveðnar út frá ör-
yggissjónarmiðum. Hörður segir
alla bíla Olíudreifingar vera
merkta skilmerkilega samkvæmt
ADR-reglum.
Hann tekur undir með Höskuldi
Einarssyni að leiðin um Mýrargötu
sé áhyggjuefni. Að öðru leyti sé
mun hentugra að flytja eldsneyti
um Sæbraut en t.d. Hringbraut og
Miklubraut þar sem nálægð við
byggingar er meiri.
„Við erum ekki sáttir við að
stokkurinn um Mýrargötu var sleg-
inn af. Reykjavíkurborg veit að
þessi leið er varasöm og það er ver-
ið að skoða hana sérstaklega með
tilliti til þessara flutninga,“ segir
Hörður. bjb@mbl.is
Olíudreifing hefur
áhyggjur af flutningi
um Mýrargötu
Hörður
Gunnarsson
TENNIS
er skemmtileg hreyfing
Nú er rétti tíminn til að
panta fastan tíma í tennis.
Eigum nokkra tíma lausa.
Skemmtilegu byrjendanámskeiðin
fyrir fullorðna eru að hefjast.
Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
Lögreglan er
meðvituð um þá
flutninga sem
eiga sér stað úr
Örfirisey og um
eða framhjá mið-
borginni. Það hef-
ur þó ekki komið
til athugunar að
setja takmörkun
á þá flutninga og
ábendingar eða
tillögur þess efnis hafa ekki borist
lögreglu frá veghaldara, sveitar-
stjórn eða öðrum hagsmunaaðilum.
Þetta segir Kristján Ólafur
Guðnason, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn á höfuðborgarsvæðinu, um þá
umfjöllun sem var í Bílablaði Morg-
unblaðsins í gær.
„Það hefur verið mat lögreglu að
verklag er varðar flutning á hættu-
legum farmi hafi ekki kallað á sér-
staka athugun. Gagnrýni eins og sú
sem fram hefur komið í fjölmiðlum
hlýtur þó að kalla á skoðun þeirra
sem með þessi mál fara, hvort sem
það eru opinberar stofnanir, sveit-
arfélög eða fyrirtæki sem sinna inn-
flutningi og dreifingu hættulegra
efna, með það að markmiði að kort-
leggja ástandið og leita lausna þar
sem þeirra er þörf. Lögregla mun
taka frumkvæði að slíkri skoðun og
kynna niðurstöðu hennar í framhald-
inu,“ segir Kristján Ólafur.
Gagnrýni í fjölmiðl-
um kallar á skoðun
Lögreglan meðvituð um flutningana
Kristján Ólafur
Guðnason
Um 5.700 tonn af gasi voru flutt inn
gegnum Faxaflóahafnir á síðasta
ári, bæði í gámum og kútum.
Stærstu innflytjendurnir eru Gas-
félagið og Skeljungur. Gísli Gísla-
son, hafnarstjóri Faxaflóahafna,
segir þær ráðstafanir gerðar á
farmstöðvum Eimskipa og Sam-
skips sem reglur kveða á um varð-
andi geymslu á gasi. Um flutning
þaðan gildi síðan ákveðnar reglur
sem viðkomandi aðilum ber að upp-
fylla.
Faxaflóahafnir áttu aðild að
áhættumatinu sem gert var árið
2007 á olíubirgðastöðinni í Örfir-
isey. Að sögn Gísla var vel farið yfir
öll öryggisatriði stöðvarinnar og í
framhaldinu gripið til nokkurra úr-
bóta. Áhættumatið hafi einnig leitt í
ljós mikilvægi þess að hafa flutn-
ingsleiðir með eldsneyti eins stuttar
og kostur er. Sjálf birgðastöðin hafi
ekki verið stærsti áhættuþátturinn
heldur flutningurinn með elds-
neytið þaðan. bjb@mbl.is
5.700 tonn af gasi
um Faxaflóahafnir