Morgunblaðið - 08.01.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Malín Brand
malin@mbl.is
Á
rið 2004 fluttust hjónin
Skarphéðinn Þórisson
og Ragnhildur Rós
Indriðadóttir til Chi-
rombo sem er skammt
frá Malavívatni. Þau bjuggu ásamt
börnum sínum þremur á þeim slóð-
um í tvö ár. Ragnhildur er ljósmóðir
og hjúkrunarfræðingur og vann á
nærliggjandi sjúkrahúsi á meðan
Skarphéðinn, sem er líffræðingur,
var heima við með krakkana og að-
stoðaði við heimanám og sá um heim-
ilið.
„Ég hafði nægan tíma því þau
voru í sambandi við skólann sinn á
Egilsstöðum, í Fellabæ, gegnum net-
ið. Þau fengu vikuáætlun og ég sá um
að vekja þau og halda að þeim efn-
inu,“ segir Skarphéðinn sem nýtti
tímann á milli vel til að ganga um
þorpið og kynnast fólki sem þar bjó.
Börnin hættu að gráta
Eins og gefur að skilja er ekki
margt hvítt fólk á ferli í smáu þorpi á
borð við Chirombo en þar búa ein-
ungis 1.200 manns. „Þar kom, að
börnin hættu að hlaupa á bak við
móður sína og gráta þegar þau sáu
þennan hvíta risa. Maður var tekinn
inn í þetta samfélag,“ segir Skarp-
héðinn.
Ekki leið á löngu þar til vin-
skapur myndaðist og börn úr þorp-
inu komu heim til íslensku fjölskyld-
unnar.
Þó svo að um átta ár séu síðan
þau fluttust heim til Íslands er vin-
skapurinn við suma enn fyrir hendi
og styrkja þau hjónin tvo drengi til
náms þar ytra.
Bókin góða
Besta leiðin til að kynnast fólki
og lífsháttum þess í svo smáu sam-
félagi hlýtur að vera að umgangast
innfædda og hlusta á sögur þeirra.
Þegar traust hafði myndast gat
Skarphéðinn farið að taka myndir af
fólkinu við dagleg störf og leik. Hann
keypti sér bát og reri til fiskjar með
hinum. „Ég var með fullt af myndum
en nennti ekki að skrifa því ég vildi
frekar njóta en að sitja inni og hamra
á tölvu, þannig að ég fór að semja við
kunningja mína,“ útskýrir hann.
Fólkið í þorpinu tók þátt í held-
ur óvenjulegu verkefni með því að
skrifa um sjálft sig og úr því varð
bók. Bók sem raunar er ekki komin
út ennþá en hún hefur að geyma sögu
fólksins á svæðinu og ótal ljós-
myndir, bæði af fólkinu og lífi þess
auk mynda af stórbrotnu lífríkinu í
kringum Malavívatn.
„Fólkið skrifaði um sjálft sig, líf-
ið, þorpið, hvað það borðar, skólann,
fortíðina, rakti ættir höfðingjans aft-
ur í tímann og útskýrði nöfnin, lífið
og tilveruna,“ segir Skarphéðinn.
Nornir eða álfar?
Bókin er býsna áhugaverð heim-
ild um einstakt mannlíf í litlu þorpi,
sem á vestrænan mælikvarða gæti
talist nokkuð frumstætt. „Menn
byggja sér hús úr múrsteinum sem
þeir búa til sjálfir. Það er fundinn leir
og síðan smíða þeir trémót, bleyta
leirinn og móta hann. Svo er þessu
staflað upp og þurrkað. Grind er
gerð úr bambus, steinunum er hlaðið
upp og ofan á er stráþak, oft með
svörtum ruslapoka úr plasti á milli
Fljúgandi nornir og
magnað mannlíf
Til að byrja með hlupu börnin grátandi aftur fyrir móður sína þegar hvíti risinn,
Íslendingurinn Skarphéðinn G. Þórisson, kom gangandi eftir götu þorpsins Chir-
ombo í Malaví. Smám saman hættu þau því og vinguðust við hann. Skarphéðinn
vildi vita meira um fólk þessa ólíka menningarheims og fór óvenjulega leið til að
kynnast því. Hann safnaði saman sögum fólksins og er þakklátur fyrir kynnin.
Ljósmynd/Skarphéðinn G. Þórisson
Malavívatn Boyidi Musa rær til fiskjar en í engu öðru vatni er jafnfjölskrúð-
ugt líf. Skarphéðinn segir að það sé eins og að kafa í fiskabúri að kafa þar.
Það getur verið gott að fylgjast með
hvað nágrannar okkar og frændur á
Norðurlöndum eru að gera í heimi
tónlistarinnar. Jú, og leyfa þeim að
fylgjast með okkur líka. Á beta-
útgáfu vefsíðunnar www.nordicplay-
list.com má hlusta á það nýjasta í
norrænni tónlist.
Ritstjóri vefsíðunnar er ung kona
að nafni Francine Gorman og hefur
hún sett saman lagalista sem not-
endur geta hlustað á í gegnum Spot-
ify eða annan tónlistarspilara á net-
inu. Nýr lagalisti kemur í hverri viku
og er ókeypis að hlusta.
Eins og fram kemur á síðunni er
ætlunin að sýna hvað listamenn í
þessum hluta Evrópu eru að skapa og
um að gera að fylgjast með frá viku
01 sem er einmitt núna.
Á lista vikunnar eru íslenska tón-
listarfólkið Ásgeir og Emilíana Torr-
ini. Annað tónlistarþema verður að
finna á síðunni, DJ Mixes-lista sem
vel valinn norrænn plötusnúður mun
setja saman af kostgæfni.
Vefsíðan www.beta.nordicplaylist.com/
Morgunblaðið/Rósa Braga
Norrænt Á síðunni verður hægt að fylgjast með norrænum tónlistarmönnum.
Nýjasta tónlistin í lagalistum
Þó svo að gott geti verið að spila í
tölvu jafnast fátt á við það að fara
út á meðal fólks og spila í raun-
heimum. Maður er manns gaman
auk þess sem maður brýnir mann.
Það á einkar vel við á fyrsta spila-
kvöldi þessa árs hjá Skraflfélaginu
sem stofnað var í fyrra.
Spilað verður í kvöld klukkan
20.00 á Café Haítí við Gömlu höfn-
ina í Reykjavík og eru allir vel-
komnir í þessa hugarleikfimi með
orð.
Spilaðar verða tvær umferðir en
ekki verður notast við skákklukkur
í þetta skiptið.
Spilarar eru hvattir til að koma
með eigin Scrabble-sett og orða-
bækur og fá sér kaffisopa í góðra
leikmanna hópi.
Endilega …
… spilið ykkur
inn í árið
Skrafl Spilið er sívinsælt.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Oyama, Hallelu-
wah og Hljóm-
sveit halda tón-
leika í kvöld kl.
21 á Paloma,
Naustunum 1-3 í
Reykjavík.
Ókeypis er inn á
tónleikana. Ef-
laust verður
dansað á Pa-
loma en tónlist-
in er bæði í anda sveimrokks, elektró
og rapps svo þar mætast ýmsar
stefnur og straumar.
Oyama er reykvísk hljómsveit sem
vinnur að fyrstu breiðskífu sinni og
er á leið í tónleikaferðalag til Hol-
lands, Halleluwah er dúett skipaður
þeim Sölva Blöndal og Rakel Mjöll og
hljómsveitin Hljómsveitt er skipuð
systrunum Katrínu Helgu og Önnu
Töru sem einnig eru meðlimir í sveit-
inni Reykjavíkurdætur og þekktar
fyrir líflega sviðsframkomu.
Tónleikar á Paloma
Lífleg sviðs-
framkoma
Halleluwah
Burstað, lakkað, olíuborið, handheflað, reykt,
fasað, hvíttað... hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Dalvegi 10-14 • Kópavogi
Plankaparket
í miklu úrvali