Morgunblaðið - 08.01.2014, Síða 14

Morgunblaðið - 08.01.2014, Síða 14
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Enn er meirihluti fjósa á Íslandi básafjós með hefðbundnum rör- mjaltakerfum eða mjaltabásum. Hins vegar er meirihluti mjólk- urkúa bænda í lausagöngufjósum og úr þeim koma 56% framleiðslunnar. Hér á landi finnast enn allar aðferð- ir við mjaltir sem þekkjast í heim- inum, allt frá handmjólkun til mjaltaþjóna. „Þótt það hafi hægt á breyt- ingum í kjölfar efnahagserfiðleik- anna er sífellt stærri hluti fram- leiðslunnar að færast í lausagöngu- fjós. Þetta er svipuð mynd og við sjúm í öðrum löndum. Við erum samkvæmt því á réttri leið,“ segir Snorri Sigurðsson, ritstjóri naut.is hjá Landssambandi kúabænda. Hann hefur tekið saman skýrslu um þróun fjósgerða og mjaltatækni. Nú er mjólk framleidd í 640 fjósum, 15 færri en fyrir tveimur árum. Snorri segir að ekki hafi verið miklar breytingar í búgreininni undanfarin fjögur ár, eftir tiltölu- legar hraða þróun á árunum fram- undir 2008-2009, meðal annars vegna þess hversu erfitt hafi verið að selja bú. Hann spáir hraðari breytingum á næstu árum, í ljósi þeirra möguleika sem skapast til framleiðsluaukningar vegna auk- innar sölu á mjólk. Hann bendir á að rúmlega 40% mjólkurinnar koma úr kúm í básafjósum. „Ég tel að fjósin stækki og kúm í lausagöngu fjölgi. Það kæmi mér ekki á óvart að við yrðum fljótlega með hæsta hlutfall framleiðslunnar frá búum með mjaltaþjónum og náum foryst- unni aftur af Svíum,“ segir Snorri. Fötur og handmjólkun Í skýrslunni kemur fram að hér eru enn allar grunngerðir aðferða við mjaltir sem þekktar eru í heim- inum. Nefnt er eitt dæmi um hand- mjólkun og mjaltaþjónunum fjölgar sífellt. Í sjö fjósum eru enn fötu- mjaltakerfi þar sem mjólkin er bor- in í lokuðum fötum í mjólkurhús og hellt í mjólkurtank. Mjaltaþjónar eru komnir í 108 fjós og Snorri telur víst að þeim muni fjölga mjög á næstu árum. Þetta eru stærstu búin með 65 kýr að meðaltali, meira en helmingi stærri en búin sem nota rörmjalta- kerfi. Lausagöngufjós með mjalta- þjónum eru einnig með hæstu með- alnytina. Þau hafa að meðaltali liðlega 430 kg mjólkur meira eftir hverja kú en lausagöngufjós án mjaltaþjóns. Snorri segir að betri afurðir skýrist ekki aðeins með því að mjaltaþjónninn mjólki kýrnar oftar. „Þetta segir okkur einnig hvað bændur eru orðnir góðir við að nýta sér upplýsingar úr tölvukerf- unum. Þeir láta mjólka á réttum tíma og fóðra kýrnar í samræmi við það,“ segir Snorri. Framleiðslan flyst í lausagöngufjósin Morgunblaðið/Eggert Fjós Búist er við stökki í stækkun búa á næstu árum vegna góðra aðstæðna á mjólkurmarkaðnum. Stærri hluti kúastofnsins verði í lausagöngufjósum. Fjósgerðir og mjaltatækni Básafjós: 2003 2013 Meðalnyt, kg Meðalbú, árskýr Fötukerfi 24 7 10 Rörmjaltakerfi 614 323 5.301 27 Mjaltabás 114 62 5.494 38 Lausagöngufjós: 2003 2013 Meðalnyt, kg Meðalbú, árskýr Án mjaltaþjóns 107 139 5.582 46 Með mjaltaþjóni 11 108 6. 013 65 Annað 3 1 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014 Kostnaður við göngubrýrnar tvær sem reistar voru sl. sumar við Ell- iðaárvog í Reykjavík verður 264 milljónir þegar lokið verður við ýms- an frágang í sumar. Áætlun í september gerði ráð fyr- ir að kostnaður yrði 250 milljónir. Framkvæmdakostnaður var 228 milljónir og hönnunar- og eftirlits- kostnaður 36 milljónir, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Inni í þessari fjárhæð er áætlaður kostnaður við sáningu grasfræja og gróðursetningu á trjám við brýrnar sem og við að baða steypuna upp úr efni sem hrindir frá sér vatni. Í vor verður einnig málað yfir samskeyti þar sem einingar voru soðnar saman, en ekki viðraði fyrir slíka vinnu í vetur, segir í svari borg- arinnar. Borgarsjóður og Vegagerðin skipta með sér kostnaði við fram- kvæmdirnar. runarp@mbl.is Samgöngubót Kostnaður við göngu- og hjólastíga er innifalinn í verðinu. Göngubrýrnar kostuðu 264 milljónir  Fór 14 milljónir fram úr áætlun Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303 101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is Hádegistilboð Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070 Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is ÁLHJÓLA PALLAR OG -VEGGJA PALLAR Sorpkvarnir í eldhúsvaska

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.