Morgunblaðið - 08.01.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
STUTT
Gunnlaugur Snær
Ólafsson gefur
kost á sér í 3. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Kópavogi, sem fer
fram 8. febrúar.
„Stærsta vel-
ferðarmálið í Kópavogi er skulda-
staða bæjarins en á fjórða milljarð
af skattfé okkar á ári hverju fer
beint í vasa fjármálastofnana í stað
þjónustu við bæjarbúa eða lækk-
unar skatta og gjalda. Það er for-
gangsatriði fyrir alla Kópavogsbúa
að unnið verði markvisst að því að
bæta skuldastöðu bæjarins. Einnig
er mikilvægt að tryggja að hver
króna sem við leggjum í okkar sam-
eiginlegu sjóði sé nýtt á sem bestan
máta,“ segir Gunnlaugur m.a. í til-
kynningu.
Framboð í 3. sæti
Stjórnmálaflokkarnir munu á næst-
unni velja frambjóðendur á lista
fyrir komandi sveitarstjórnakosn-
ingar. Morgunblaðið mun birta
fréttir af þeim sem gefa kost á sér.
Prófkjör árið 2014
Hjálmar Sveinsson,
varaborgarfulltrúi,
gefur kost á sér í 2.
til 3. sætið í flokks-
vali Samfylking-
arinnar í Reykja-
vík sem fer fram
7.-8. febrúar.
„Í dag býr meirihluti mannkyns í
borgum og bæjum. Nákvæmlega
þess vegna snýst ein mikilvægasta
lífskjarabarátta okkar tíma um
borgarumhverfið; að það sé hag-
kvæmt fyrir íbúana, heilsusamlegt,
öruggt, skjólsælt, aðlaðandi, fjöl-
breytt og að það hjálpi til við að
skapa meiri jöfnuð í samfélaginu.
Þetta er einmitt rauði þráðurinn í
nýju aðalskipulagi fyrir Reykjavík
sem ég hef tekið þátt í að móta und-
anfarin ár,“ segir m.a. í tilkynningu
frá Hjálmari.
Framboð í 2.-3. sæti
Helga Ingólfs-
dóttir, bæj-
arfulltrúi, gefur
kost á sér í 1.- 3.
sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði,
sem fer fram 1.
febrúar næstkomandi.
Auk þess að vera bæjarfulltrúi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn er hún
fulltrúi flokksins í fræðsluráði og
umhverfis- og framkvæmdaráði
Hafnarfjarðar. Hún var um tíma
formaður í fulltrúaráði flokksins í
Hafnarfirði og jafnframt varafor-
maður kjördæmisráðs Suðvest-
urkjördæmis.
Helga starfar sem sölumaður á
byggingamarkaði og situr í stjórn
VR.
Framboð í 1.-3. sæti
Ingi Tómasson
sækist eftir 2. sæti
í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Hafnarfirði 1.
febrúar.
Fram kemur í
tilkynningu að
Ingi sé lærður húsasmiður en hafi
starfað í slökkviliði Keflavíkur-
flugvallar 1978 til 2013. Samhliða
rak hann Fjarðarplast sf. Hann er
varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn í Hafnarfirði.
„Í bæjarmálunum eru það at-
vinnumál og fjármál sem ég legg
mesta áherslu á, með uppbyggingu
atvinnu í Hafnarfirði mun hagur
bæjarins vænkast og atvinna
aukast,“ segir Ingi í tilkynningunni.
Ingi er kvæntur Önnu Pálsdóttur
hárgreiðslumeistara og eiga þau
tvö börn.
Framboð í 2. sætið
Útlit er fyrir góða þátttöku á bridshá-
tíð, sem hefst á Hótel Natura í
Reykjavík 22. janúar nk.
Þegar hafa á annað hundrað er-
lendir spilarar skráð sig til leiks, flest-
ir frá Noregi, en einnig verða kepp-
endur frá mörgum öðrum
Evrópulöndum og Bandaríkjunum.
Meðal boðsgesta er Hjördís Ey-
þórsdóttir, sem er búsett í Bandaríkj-
unum en hún varð heimsmeistari
kvenna í brids ásamt bandaríska
landsliðinu á síðasta ári. Hjördís mun
spila við Þorlák Jónsson í tvímenn-
ingskeppni bridshátíðar.
Þá verður Zia Mahmood meðal
keppenda eins og oft áður og spilar að
þessu sinni við Bretann Andy Rob-
son. Mahmood varð heimsmeistari
með bandaríska landsliðinu árið 2009.
Morgunblaðið/Ómar
Sagnir Zia Mahmood segir á spilin sín á bridshátíð á síðasta ári.
Fjölmenn brids-
hátíð framundan
Zia Mahmood og Hjördís Eyþórs-
dóttir verða meðal þátttakenda