Morgunblaðið - 08.01.2014, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.01.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Snjallsímasmáforritið Vine hefur náð miklum vinsældum, ekki síst hjá yngri aldurshópum, á því rétt tæpa ári sem það hefur verið til, þar á meðal á Íslandi eins og kom berlega í ljós í Smáralind á sunnu- daginn. Þar varð uppi fótur og fit þegar fjöldi ungmenna flykktist þangað til að berja augum tvær stjörnur Vine-samfélagsins. Einhver barnanna slösuðust og skemmdir urðu á bílum þegar ungmennin tróðust upp á þá til að nálgast stjörnurnar. Engar takmarkanir á efni Á Vine geta notendur sett inn og skoðað myndskeið en sex sekúndna hámarkslengd er á þeim. Ólíkt Snapchat, öðru smáforriti, eru myndskeiðin vistuð í forritinu og er hægt að skoða þau endurtekið. Hægt er að deila myndböndunum áfram á öðrum samskiptasíðum eins og Facebook og Twitter. Samskiptasíðan Twitter keypti fyrirtækið sem þróaði Vine í októ- ber árið 2012 og kom forritið út fyrir Apple-tæki 24. janúar í fyrra. Í júní varð forritið svo aðgengilegt fyrir Android-tæki. Hægt er að ná í það ókeypis í forritaverslunum Apple og Android. Notendurnir skipta nú tugum milljóna og var Vine meðal annars valið eitt af fimmtíu bestu Android- forritum síðasta árs í tímaritinu Time. Fljótlega eftir að forritið kom á markað var 17 ára aldurs- takmark sett á það að ósk Apple, meðal annars vegna þess að þá höfðu notendur byrjað að birta klámfengin myndskeið í því. Þegar notendaskilmálar forrits- ins eru skoðaðir kemur í ljós að allri ábyrgð á efninu sem birtist í því er vísað á notendurna. Ekki eru settar neinar takmarkanir á hvers kyns efni er leyfilegt að setja inn á það. Fyrirtækið áskilji sér rétt til að breyta eða taka út efni en því beri hins vegar engin skylda til þess. Notendur séu á eigin ábyrgð þegar kemur að efni sem hugsanlega stríði gegn vel- sæmi þeirra. Ræðir við ókunnuga Netstirnin tvö sem íslensku ung- mennin fjölmenntu að sjá á sunnu- daginn heita Jerome Jarre og Nash Grier. Óhætt er að segja að þeir séu stórstjörnur í Vine- samfélaginu en þar eiga þeir um fjórar milljónir fylgismanna hvor fyrir sig. Jarre er 23 ára gamall franskur fyrrverandi viðskiptafræðinemi sem uppgötvaði Vine-forritið þegar hann var að koma á fót eigin hug- búnaðarfyrirtæki í Toronto í Kan- ada. Á Youtube-síðu sinni líkir hann uppgötvun sinni á Vine við það þegar Picasso uppgötvaði pensilinn. Hann er þekktastur fyrir vand- ræðaleg myndskeið af samskiptum sínum við ókunnugt fólk, meðal annars í New York-borg. Fyrir utan Vine-reikninginn á Jarre fjöldann allan af fylgis- mönnum á Youtube, mynda- og myndskeiðaforritinu Instagram og Facebook. Skjótt upp á stjörnuhimin Grier er fimmtán ára Banda- ríkjamaður og því yngri en leyfi- legt er fyrir notendur forritins. Honum skaut skjótt upp á stjörnu- himin netsins en það tók aðeins þrjár vikur fyrir fylgismenn hans að fjölga úr nokkrum tugum í meira en 200.000 eftir að mennta- skólanemi í Arkansas deildi áfram fyrsta myndskeiðinu hans á Vine. Það sýndi fjögurra ára gamla yngri systur hans segja að lausnin á vandamálum Bandaríkjanna væri Jesús. Í viðtali við sjónvarpsþáttinn Good Morning America sagði Grier að hann hefði hug á að sjá fyrir sér með því að skemmta fólki á netinu. Stórstjörnur á netinu hjá þeim yngri  17 ára aldurstakmark er á myndskeiðaforritið Vine  Netstirnin úr Smáralindinni eiga milljónir fylgismanna Netstirni Mikill fjöldi ungmenna flykktist í Smáralind eftir að Jarre (t.h.) boðaði á twittersíðu sinni að þeir Grier (t.v.) yrðu þar á sunnudag. Uppákoman í Smáralind á sunnu- daginn ætti að vekja foreldra til umhugsunar um hvað börnin þeirra eru að gera á netinu og sýnir hversu auðvelt er að hafa áhrif á umhverfið í gegnum netið að sögn Hrefnu Sigurjónsdóttur, fram- kvæmdastjóra samtakanna Heim- ilis og skóla og SAFT. „Þarna eru einhverjar stjörnur á netinu sem enginn undir fimmtán ára aldri kannast við en fyrir þeim eru þetta greinilega rosafrægir menn eins og sjá mátti þegar Smáralindin fylltist. Þetta er dæmi um mátt netsins og það hvar áhuga- svið þessa aldurshóps liggur,“ segir Hrefna. Eins og áður hefur komið fram virðast yngri netnotendur byrjaðir að flýja Facebook eftir að foreldrar þeirra og ömmur og afar hófu að nota síðuna. Hrefna segir krakkana fljóta að skipta á milli nýrra sam- skiptaforrita og síðna og að erfitt sé að halda í við þróunina. „Það kemur alltaf eitthvað nýtt, hvort sem það er Vine eða eitthvað annað, og verður vinsælt,“ segir hún. Kynni sér það vinsæla Hrefna bendir á að ekki sé allt efnið á Vine við hæfi barna. Sam- tökin leggi sífellt áherslu á það við foreldra að uppeldi sleppi ekki við tölvuskjáinn því netið sé orðinn svo ríkur þáttur af veruleika barnanna. „Þá þurfa foreldrar auðvitað að ræða þetta við þau, spá í hvað þau eru að gera og kannski velta fyrir sér hvað er vinsælt,“ segir hún. Hægt sé að fá netsíur og smá- forrit fyrir snjalltæki sem tak- marka það efni sem börn geta skoð- að á netinu og auðvelt sé að hafa samband við símafyrirtækin fyrir aðstoð með það. Veki foreldrana til umhugsunar  Krakkar fljótir að skipta á milli nýjunga í samskiptatækni Vine Hægt er að skoða myndskeiðin á Vine-forritinu eftir efnisflokkum. Skútuvogi 1h | 104 Reykjavík | Sími: 585 8900 | jarngler.is fylgihlutir fyrir hurðir Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Ég tel brýnt að loka þessu,“ segir Kolbeinn Árnason, framkvæmda- stjóri Landssambands íslenskra út- vegsmanna, um stöðuna í makríl- deilunni, en við- ræðufundur strandríkja um makríl verður í London í næstu viku og hefur ESB kynnt hann sem úrslitatilraun til að ná samning- um. Hann segist þó viðurkenna að miðað við hvernig mál hafi þróast síðustu vikur sé hann ekki lengur bjartsýnn á að samningar náist. Kolbeinn telur að strandríkin hafi einhverjar vikur til að ná samn- ingum, en útgerðir hér á landi og í hinum löndunum þurfi tíma til að skipuleggja vinnslu og veiðar ársins. Vandinn myndi aukast Kolbeinn bendir á að leyfilegur há- marksafli aukist á þessu ári úr 541 þúsund tonnum í um 900 þúsund tonn samkvæmt ráðgjöf Alþjóðahafrann- sóknaráðsins, ICES. Slík aukning hljóti að skapa skilyrði til samninga. „Ef ekki tekst að semja í þessu ástandi munu vandinn og erfiðleik- arnir við að ná samningum einfald- lega aukast,“ segir Kolbeinn. Í Noregi hafa komið fram kröfur um að leyft verði að veiða nokkur hundruð þúsund tonn umfram ráð- gjöf. Slíkt skaði ekki stofninn, sem verið hefur í örum vexti. Kolbeinn segist ekki hlynntur slíkum veiðum enda séu þær ekki í samræmi við ráð- gjöf fiskifræðinga. Ofveiði og offjárfesting Hann segist ekki fylgjandi slíkum sjónarmiðum og segir hættulegt að gefa eftir í slíkum grundvallaratrið- um. „Þó svo að ráðgjöfin í makrílnum kunni að byggjast á veikum grunni, og aðferðirnar séu til endurskoðunar, tel ég hana samt vera það besta sem við höfum til að styðjast við. Annað kallar á ofveiði og offjárfestingu,“ segir Kolbeinn. Hann tekur sem dæmi að ef samn- ingar nást ekki sé hætta á að veiðarn- ar fari í sama far og undanfarin ár. Ef Norðmenn og ESB kæmu sér saman um veiðar á 1.300 þúsund tonna heild- arkvóta og skömmtuðu sér 90% af honum, eins og þeir hafa gert, hefði það eflaust miklu meiri heildarveiði í för með sér. Íslendingar myndu trú- lega ákveða einhliða að veiða rúmlega 16% af heildaraflanum eins og und- anfarin ár og Færeyingar og aðrir myndu ákveða sína prósentu á sömu forsendum. Þetta gæti áður en nokk- ur vissi af þýtt heildarkvóta upp á um 1.800 þúsund tonn. Brýnt að ljúka makríldeilunni  Framkvæmdastjóri LÍÚ ekki lengur bjart- sýnn á lausn  Einhverjar vikur til stefnu Kolbeinn Árnason Morgunblaðið/Golli Makríll Kynning á matnum og málstaðnum á Ingólfstorgi síðasta sumar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.