Morgunblaðið - 08.01.2014, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur
staðfest skipan Janet Yellen í emb-
ætti bankastjóra Seðlabanka Banda-
ríkjanna en hún mun taka við starf-
inu af Ben Bernanke þann fyrsta
febrúar næstkomandi.
56 öldungadeildarþingmenn
greiddu atkvæði með tilnefningunni
en 26 voru á móti. Í frétt Financial
Times segir að margir þingmenn,
sem höfðu hótað að greiða ekki at-
kvæði með ráðningunni, hafi verið
fjarri góðu gamni vegna frestunar á
flugi en veðrið er afar slæmt í norð-
austurhluta Bandaríkjanna um þess-
ar mundir.
Nokkrir þingmenn Repúblikana-
flokksins, sem lagst hafa gegn
skuldabréfakaupum Seðlabanka
Bandaríkjanna, voru andvígir ráðn-
ingunni, þrátt fyrir að bankinn ætli
að draga úr kaupunum nú í janúar-
mánuði. Bankinn hefur um nokkurt
skeið keypt skuldabréf fyrir 85 millj-
arða Bandaríkjadala á mánuði í við-
leitni sinni til að örva bandaríska
hagkerfið en það var ein af loka-
ákvörðunum Bernankes að draga úr
kaupunum um tíu milljarða í hverj-
um mánuði. Yellen bíður nú það verk
að ákveða hvenær bankinn muni
endanlega hætta stuðningi sínum.
Öldungadeildarþingmaðurinn
Chuch Grassley greiddi ekki at-
kvæði með ráðningunni en hann hef-
ur lengi gagnrýnt örvunaraðgerðir
Seðlabankans. Segir hann að enn sé
óljóst hver næstu skref bankans
verða og hvort honum takist yfirhöf-
uð að draga úr skuldabréfakaupun-
um. „Hlutabréfamarkaðurinn er orð-
inn háður peningamálastefnu
Seðlabankans,“ sagði Grassley við
fjölmiðla, en hann lagðist einnig
gegn ráðningu Bernankes á sínum
tíma.
Yellen, sem er 67 ára, verður
fyrsta konan til að stýra bankanum,
einni áhrifamestu fjármálastofnun
heims. Hún þekkir vel til innan
bankans enda hefur hún starfað sem
einn helsti ráðgjafi Bernankes og
setið í ýmsum nefndum bankans. Þá
var hún yfirmaður bankans í San
Francisco á árunum 2004 til 2010.
Yellen tekur við um
næstu mánaðamót
Verður fyrsta konan til að stýra Seðlabanka Bandaríkjanna
AFP
Yellen Ekki er talið líklegt að Yellen hverfi frá stefnu Bernankes enda hefur hún verið einn helsti ráðgjafi hans.
Nýr seðlabankastjóri
» Öldungadeild Bandaríkja-
þings staðfesti á mánudag
skipan Janet Yellen í embætti
bankastjóra Seðlabanka
Bandaríkjanna.
» 56 öldungadeildarþingmenn
greiddu atkvæði með tilnefn-
ingunni en 26 voru á móti.
» Hún tekur við starfinu þann
fyrsta febrúar næstkomandi.
● VÍB, eignastýringarþjónusta Íslands-
banka, hefur undirritað samstarfs-
samning við BlackRock, stærsta eigna-
stýringaraðila heims. Með samstarfinu
eykst enn frekar fjölbreytni vöru- og
þjónustuframboðs VÍB á sviði eigna-
stýringarþjónustu á erlendum mörk-
uðum, að því er segir í tilkynningu.
Vegna fjármagnshafta gefst einungis
viðskiptavinum sem eiga erlendar eign-
ir eða hafa heimild til endurfjárfestingar
í erlendum verðbréfum kostur á að fjár-
festa í vörum BlackRock.
BlackRock er stærsta eigna-
stýringarfyrirtæki heims með um
3.800 milljarða Bandaríkjadala í stýr-
ingu og starfsemi í 30 löndum.
Í samstarf við banda-
rískan fjármálarisa
● Fjármálafyrirtækið Virðing hf. lauk í gær fjármögnun sam-
lagshlutafélagsins Veðskuldar II sem fjárfestir í veð-
skuldabréfum með veði í atvinnuhúsnæði. Fjárfestingageta
félagsins er 9,4 milljarðar eftir fjármögnunina og verður fé-
lagið í vörslu og rekstri Rekstrarfélags Virðingar. Hluthafar
Veðskuldar II eru 15 lífeyrissjóðir. Virðing stýrir einnig Veð-
skuldabréfasjóðnum Virðingu sem nú er fullfjárfestur og á
eignir upp á tæplega 12 milljarða króna.
„Það er mjög ánægjulegt að hafa klárað fjármögnun Veð-
skuldar II sem gefur hluthöfum og viðskiptavinum Virðingar
aukin tækifæri á fjárfestingum í veðskuldabréfum. Þau hafa
á síðustu árum sannað sig sem góður fjárfestingakostur auk
þess sem fjármögnun með útgáfu veðskuldabréfa er bæði hagkvæmur og góður
kostur fyrir eigendur atvinnuhúsnæðis til að tryggja sér góða langtíma-
fjármögnun,“ segir Valdimar Svavarsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá
Virðingu.
Valdimar
Svavarsson
Virðing lýkur 9,4 milljarða fjármögnun Veðskuldar
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+01-1/
+1.-2+
3+-+45
+.-.+/
+4-.35
+34-4/
+-+1.4
+44-43
+,4-0.
++5-+3
+01-,
+1.-52
3+-32.
+.-.50
+4-.4.
+3.-+
+-+++0
+4.-3,
+,.-/3
3+1-2,.+
++5-/
+01-05
+1.-0,
3+-2
+.-03/
+4-02
+3.-/5
+-++,+
+4.-4.
+,.-.5
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 29 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Laugarásvegi 1 • 104 Reykjavík
Sími: 553 1620 • laugaas.is
LAUGA-ÁS
SPECIAL
Steiktur fiskur gratín
m.a. á matseðli
Árin segja sitt