Morgunblaðið - 08.01.2014, Síða 19

Morgunblaðið - 08.01.2014, Síða 19
VIÐTAL Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Bílaumboðið BL býður allt að 40% bílalán án vaxta og kostnaðar í 36 mánuði til kaupa á nýj- um bílum. Erna Gísladóttir, forstjóri fyrirtæk- isins, segir í samtali við Morgunblaðið að lánin séu seld áfram enda hafi BL ekki leyfi til að sinna lánastarfsemi. Hún vill ekki fara nánar í hvort selja þurfi lánin með miklum afslætti þar sem þau bera ekki vexti eða hver áhrifin verða á framlegð af bílasölu. En lætur þess getið að BL hafi ekki hækkað verð á bílum til að vega upp á móti góðum lánakjörum. Bílasala dróst óvænt saman Bílasala dróst óvænt saman um 8% á milli ára í fyrra. Erna segir að almenningur hafi lítið keypt af bílum á liðnu ári, líklega um 2.500- 2.800 bíla. „Það er ekki mikið,“ segir hún, og nefnir að samtals hafi um 7.200 bílar selst árið áður og að Bílgreinasambandið reikni með að það muni seljast um 8.500 bílar í ár. Ársreikn- ingur BL fyrir liðið ár liggur ekki fyrir en árið 2012 tapaði félagið 22 milljónum króna. Starfs- menn eru 140. Samkvæmt bókinni 300 stærstu nam velta fyrirtækisins 9,8 milljörðum króna. Samkvæmt þeim lista er BL næst-umsvifa- mesta bílaumboðið en Hekla velti tíu milljörð- um króna. BL er hins vegar með langflest bíla- umboðin eða átta talsins, þar á meðal Hyundai og BMW. – Af hverju réðust þið í þetta átak? „Við erum að leita leiða til að hreyfa við markaðnum,“ segir Erna, og nefnir að þetta þekkist í Bandaríkjunum og í Evrópu og hafi reynst vel. Íslendingar hafi komið auga á þetta fyrirkomulag í fríum erlendis og hafi spurst fyrir um hvort ekki sé hægt að bjóða upp á vaxtalaus bílalán hér á landi. „Við erum að svara þeirri eftirspurn,“ segir hún. Snýst ekki um markaðshlutdeild – Er stefnt að því að vinna hratt markaðs- hlutdeild með þessu átaki? „Nei, þetta snýst í raun ekki um markaðs- hlutdeild,“ segir hún og nefnir að verið sé að fjölga kostum á markaðnum og svara óskum neytenda. „Við finnum það jafnframt að marg- ir hafa brennt sig á því að taka bílalán,“ segir Erna og nefnir að erlend og vísitölutengd lán hafi hækkað mikið. Þetta útspil sé svar við því; viðskiptavinir viti að hverju þeir gangi frá upp- hafi til enda. Eftir 36 mánuði eigi lántakinn bíl- inn. „Áður fyrr tóku margir sjö ára bílalán sem tók langan tíma að greiða til baka,“ segir hún. – Er eitthvert ákveðið vörumerki sem mun njóta mest góðs af þessu? „Mér finnst líklegt að ódýrari bílar, þessir sem kosta þrjár til fimm milljónir, muni helst njóta góðs af þessu. Stór hluti kaupenda horfi til þeirra um þessar mundir.“ – Náið þið til yngra fólks með þessu útspili? Eins og ég skynja markaðinn eru það fyrst og fremst þeir sem eru eldri en 50 ára sem eru að festa kaup á nýjum bílum. Erna segist vona það. Þeir sem séu á aldr- inum 30-50 ára hafi verið aðþrengdir, en sé dæmið reiknað til enda, svo sem bensíneyðsla, viðgerðarkostnaður og fleira, gætu kaup á nýj- um bíl reynst hagstæð. BL selur vaxtalausu bílalánin Morgunblaðið/Kristinn Erlendis Erna Gísladóttir, forstjóri BL, segir að þetta fyrirkomulag hafi reynst vel erlendis.  Lánakjörin hreyfa vonandi við bílamarkaðnum, segir Erna Gísladóttir, forstjóri BL  Bílasala dróst óvænt saman á milli ára í fyrra  Með þessu fyrirkomulagi má vonandi ná til þeirra sem eru 30-50 ára Keypti BL í lok árs 2011 » BL er með umboð fyrir Land Rover, BMW, Hyundai, Renault, Nissan, Subaru, Isuzu og Dacia, » Erna Gísladóttir keypti B&L og Ingvar Helgason í lok árs 2011 af Íslandsbanka og sameinaði undir nafninu BL. Afi henn- ar stofnaði B&L árið 1954 og hún var for- stjóri þess er það var selt árið 2007. » Hún er einn hluthafa og stjórn- arformaður Sjóvár og á einnig sæti í stjórn Haga. » Bílasala dróst óvænt saman um 8% í fyrra og almenningur keypti fáa bíla. FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014 Takk hreinlæti ehf, Viðarhöfða 2, 110 Reykjavík - Sími 577 6500 - Fax 577 6505 Geymslubox Ýmsarstærðirog gerðir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.