Morgunblaðið - 08.01.2014, Side 20
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Þótt íbúarnir í norðvestanverðum
Bandaríkjunum séu vanir vetrar-
hörkum þótti jafnvel kuldaþolnustu
harðjöxlunum á meðal þeirra nóg um
brunagaddinn sem var í stórum hluta
landsins í gær. Skólum var víða lokað
og fólki var ráðlagt að halda kyrru
fyrir innandyra vegna mestu kulda í
landinu í tvo áratugi. Fimbulfrostið
hafði áhrif á um helming íbúa lands-
ins og samgöngur fóru víða úr skorð-
um vegna vetrarveðursins.
Þúsundum flugferða var aflýst eða
frestað í Bandaríkjunum vegna veð-
ursins í gær, meðal annars á flug-
völlum New York-borgar og Boston.
Daginn áður var 4.300 flugferðum af-
lýst og 6.500 frestað í Bandaríkj-
unum, en röskunin var þá mest í Chi-
cago.
Óvenjukalt í suðurríkjunum
Kuldakastið náði jafnvel til suður-
ríkja þar sem veturnir eru yfirleitt
mildir. Varað var við því að frostið
gæti valdið bændum búsifjum í
suðurríkjunum, að sögn fréttaveit-
unnar AFP.
Bandaríska veðurstofan spáði því
að kuldakastið næði suður til Texas
og miðhluta Flórída.
Andrew Cuomo, ríkisstjóri New
York, sagði að þjóðvegum hefði verið
lokað á nokkrum stöðum vegna
vetrarveðursins. Spáð var 22 stiga
frosti í New York í gær, en daginn áð-
ur var hitinn 10 stig á Celsíus, þannig
að kólnunin nam 32 stigum á rúmum
sólarhring.
Allt að 53 stiga frost
Kuldinn mældist mestur í bænum
Comertown í Montana þar sem hann
var á við 53 stiga frost í logni þegar
tekið er tillit til vindkælingar.
Frostið var litlu minna í Norður-
Dakóta, Suður-Dakóta og Minnesota,
eða um -48 stig á Celsíus.
Fengu að kenna á
Nær 190 milljónir manna fundu fyrir kuldakastinu í
Bandaríkjunum Ætti að linna víðast hvar á morgun
Fimbulfrost Ís myndaðist
meðfram Michigan-vatni við
Chicago-borg vegna bruna-
gaddsins síðustu daga.
Stefnan áfall fyrir
konung Spánar
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Dómari á Spáni hefur stefnt yngri
dóttur Jóhanns Karls Spánarkon-
ungs til að bera vitni vegna gruns
um að hún sé viðriðin fjárdrátt og
peningaþvætti. Stefnan er mikið
áfall fyrir Jóhann Karl, sem naut
lengi mikilla vinsælda eftir að hann
varð konungur fyrir tæpum 39 ár-
um, en margir Spánverjar vilja nú
að hann segi af sér konungdómi.
Verði stefnunni ekki hnekkt er
þetta í fyrsta skipti sem ættingja
konungs er stefnt fyrir rétt vegna
ásakana um lögbrot.
Kristín prinsessa, sem er 48 ára,
er talin tengjast meintum lög-
brotum eiginmanns síns, Iñakis Ur-
dangarins, sem er sakaður um fjár-
drátt og peningaþvætti. Urdang-
arin, sem er fyrrverandi hand-
boltakappi, fékk titilinn hertoginn
af Parma eftir að hann kvæntist
prinsessunni.
Dómari á Majorka, José Castro,
hefur rannsakað ásakanirnar frá
árinu 2010. Hann stefndi prinsess-
unni þrátt fyrir andstöðu saksókn-
ara og hún á að koma fyrir dóm-
arann 8. mars til að bera vitni.
Rannsókn dómarans gæti síðan
leitt til formlegrar ákæru.
Hópur, sem nefnist Manos
Limpias (Hreinar hendur), höfðaði
mál gegn prinsessunni fyrir meint
skattsvik og peningaþvætti þótt
skattayfirvöld og saksóknarar hafi
sagt að ekki sé ástæða til ákæru.
Dómarinn er að rannsaka ásak-
anir um að Urdangarin og fyrrver-
andi viðskiptafélagi hans hafi dreg-
ið sér opinbert fé að andvirði sex
milljóna evra, rúmra 950 milljóna
króna, í tengslum við góðgerðar-
stofnun sem hann stjórnaði. Kristín
prinsessa var í stjórn stofnunar-
innar og þau hjónin áttu einnig
saman fyrirtækið Aizoon, sem þau
eru grunuð um að hafa notað til
peningaþvættis.
Dómarinn stefndi prinsessunni
til að bera vitni vegna málsins vor-
ið 2012 en stefnunni var hnekkt
eftir að saksóknari áfrýjaði henni.
Vilja að Filippus taki við
Jóhann Karl varð konungur eftir
að Francisco Franco einræðisherra
lést árið 1975. Enginn konungur
hafði þá ríkt á Spáni í 38 ár. Kon-
ungurinn naut lengi mikillar virð-
ingar fyrir að koma á lýðræði þrátt
Prinsessa grunuð um fjárdrátt
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014