Morgunblaðið - 08.01.2014, Page 21
Pólhvirfillinn,
hringrás vinda,
lokar kaldan loftmassa
af yfir pólnum
Mjög
sterkur
pól-
hvirfill
Mjög
sterkur
skot-
vindur
Vegna þess að loftið yfir pólnum
var lokað af í langan tíma varð
það óvenju kalt og þétt
Venjulegt veðurmunstur Það sem gerðist í vetur: fyrsta stig
Kann m.a. að tengjast loftslagsbreytingum:
Norðurskautssvæðið hlýnar
hraðar en hitabeltið
Ís- og snjóþekja
norðurhvels minnkar
Orsök þess að pólhvirfillinn veikist
Pólhvirfillinn
veiktist,
ýtti kalda
loftinu í suður
Skotvindurinn
í háloftunum
veiktist og
bugðaðist
meira
Hlýtt loft
færðist norður
Vegna þess að kalda loftið frá pólnum
var þétt og færðist suður á milli tveggja
hlýrra loftbelta komst það alla leiðina
til suðurhluta Bandaríkjanna
Í vetur: annað stig Í vetur: þriðja stig
Litlar bugður í skot-
vindinum í háloftunum
dreifa hluta af þessu
kalda lofti
Heimskauta-
loft
Orsakir kuldakastsins í Bandaríkjunum
Þegar minni munur er á hita og
loftþrýstingi á norðurskautssvæðinu
og hitabeltinu veikist
pólhvirfillinn
Kuldinn í þessum ríkjum var miklu
meiri en á suðurskautinu og í Írkútsk
í Síberíu þar sem frostið mældist 33
stig á Celsíus.
Veðurstofa Bandaríkjanna áætlaði
að um 187 milljónir manna myndu
finna fyrir kuldakastinu.
Öllum skólum var lokað í Chicago-
borg og Minnesota-ríki og skólastarf
raskaðist í fleiri ríkjum. Frostið var
svo mikið að jafnvel ísbjörnum í dýra-
garði í Chicago var ekki hleypt út
vegna kuldans, að sögn CNN.
Staðarblöð í norðvesturríkjunum
spöruðu ekki stóru orðin í gær þegar
þau lýstu vetrarhörkunum, þótt þau
eigi það til að gera grín að uppnáminu
sem verður stundum í borgum á borð
við Washington og New York, þegar
alvanaleg snjómugga er blásin út og
gerð að aftakastórhríð í fjölmiðl-
unum.
Talið er að fjórir menn hafi dáið af
völdum hjartaáfalls í Chicago þegar
þeir mokuðu snjó í fimbulfrostinu. Að
minnsta kosti tveir létu lífið af völd-
um ofkælingar og minnst tólf manns
létu lífið í bílslysum sem rakin voru til
vetrarveðursins.
Ríkisstjóri Illinois, Pat Quinn, lýsti
yfir neyðarástandi og kallaði út þjóð-
varðlið til að aðstoða við að bjarga
fólki úr bílum sem festust í snjósköfl-
um. Um 500 manns þurftu að híma
næturlangt í þremur lestum sem fest-
ust í norðurhluta Illinois.
Mikið frost var einnig í Kanada,
meðal annars í Ontario þar sem það
mældist 40 stig með vindkælingu.
brunagaddi
AFP
AFP
Dúðaðir New York-búar klæddu sig
vel gegn kuldanum.
Hlýnandi veðri spáð
» Veðurfræðingar spáðu því
að veðrið færi að hlýna víða í
Bandaríkjunum í dag.
» Talið er að kuldakastinu linni
víðast hvar á morgun og að
sums staðar verði jafnvel
óvenjumikill hiti miðað við árs-
tíma.
» Kuldakastið í Bandaríkj-
unum er einkum rakið til pól-
hvirfilsins svonefnda og þess
að mjög kaldur loftmassi yfir
norðurpólnum færðist óvenju
langt í suður.
fyrir andstöðu stuðningsmanna
Francos, einkum í hernum. Vin-
sældir konungsins hafa hins vegar
snarminnkað síðustu misseri, eink-
um vegna spillingarmálsins og mik-
ils uppnáms sem varð árið 2012
þegar skýrt var frá því að konung-
urinn hefði farið í rándýra fíla-
veiðiferð til Botsvana, á sama tíma
og land hans tókst á við miklar
efnahagsþrengingar.
Nýleg skoðanakönnun bendir til
þess að 41% Spánverja hafi mikið
álit á konungnum, níu prósentustig-
um færri en fyrir ári. Hlutfall
þeirra sem vilja að Jóhann Karl
segi af sér konungdómi og víki fyr-
ir Filippusi prins hækkaði um 17
prósentustig í um 62%. Um 66%
sögðust hafa mikið álit á prinsinum
og töldu að stuðningurinn við kon-
ungdæmið ykist tæki hann við af
föður sínum.
Jóhann Karl tók þó skýrt fram í
jólaávarpi sínu á aðfangadag að
hann hygðist ekki segja af sér.
EPA
Spillt? Kristín Spánarprinsessa með eiginmanni sínum, Iñaki Urdangarin.
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C
Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!
50%AFSLÁTTUR AFÖLLUM
VÖRUM Í BÚÐINNI