Morgunblaðið - 08.01.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Tækifæri í útgáfu eða ferðalögum og
menntun eru á hverju strái um þessar mund-
ir. Gefðu þér tíma til að tala við fólkið í kring-
um þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert svo önnum kafin/n við að sjá
heildarmyndina að þú gleymir kjarnanum
sem þó skiptir mestu máli. Um ástina gegnir
öðru máli.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert ekki á réttu róli með hlutina.
Almenn samskipti þín við annað fólk verða
ánægjulegri en þau hafa verið ef þú sýnir
þolinmæði.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ættir að nota daginn til að velta
fyrir þér sambandi þínu við eigur þínar. Búðu
þig undir að laðast sterklega að einhverjum
sem er alger andstæða þín.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú svo upptekin/n við að setja annan
fótinn framfyrir hinn, að þú ert eiginlega bú-
in/n að búa til nýjan dans. Láttu sem ekkert
sé því þú munt uppskera laun erfiðis þíns
fyrr en þig grunar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er margt sem byrgir sýn og því er
nauðsynlegt að gefa sér góðan tíma til þess
að kanna allar aðstæður. Athugaðu vandlega
þinn gang áður en þú festir fé þitt í ein-
hverju.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er þess virði að kynda undir ástinni
í lífi sínu, er það ekki? Þú þarft ekki einu
sinni að reyna, ef út í það er farið. Lífið verð-
ur betra um leið og það verður einfaldara.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Til að vera eins góð/ur og þú
getur verið, þarftu að íhuga nokkrar breyt-
ingar. Taktu við gjöfum með bros á vör.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú kemur miklu í verk á næst-
unni ef þú gætir þess að draga þig í hlé.
Vandaðu því vel mál þitt svo að ekki þurfi að
koma upp misskilningur að ástæðulausu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samræður um daginn og veginn
geta gengið úr hófi. Farðu varlega og gáðu
að þér í dag, þér hættir dálítið við klaufaskap
í dag. Kaup á fallegum hlutum gleðja þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gamlir vinir koma til sögunnar og
það verður þér til mikillar ánægju að rifja
upp gömul kynni og stofna til nýrra. Sköp-
unargáfa þín er öflug um þessar mundir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekki létt að bera sig eftir því
sem maður þráir ef maður veit ekki hvað
maður vill. Leitaðu þér því skjóls svo ekkert
geti angrað þig á meðan.
Nýársræða forseta Íslands varðmörgum yrkisefni á Leirn-
um. Ármann Þorgrímsson orti:
Í barnæsku missti ég bændatrúna
blessun í henni enga fann.
Hvort var Óli að hvetja núna
kapítalista eða öreigann?
Ólafur Stefánsson greip boltann
á lofti:
Öllum gerir Óli skil,
einlægt landi að þjóna.
Stundum fer hann beggja bil,
blessar líka dóna.
Þá var röðin komin að Ágústi
Marinóssyni að láta í sér heyra:
Bessastaðabóndinn sagði
björg er næga hér að fá.
Út af þönkum þessum lagði
þjóðleg gildi minntist á.
Þess var ekki langt að bíða að
efasemdarmenn létu til sín heyra.
Þegar Guðmundur Hálfdánarson
sagnfræðingur hafði tjáð sig í há-
degisfréttum orti Hjálmar Frey-
steinsson:
Þeir sem telja að Ólafur ýki
eru með tuð:
Að hér sé ekkert himnaríki
og hann ekki guð.
Nú þótti karlinum á Laugaveg-
inum nóg komið af svo góðu og
sagði:
Ræðan hún var rafmögnuð
og raddblærinn mér fannst hann slík-
ur
að heyrði og sæi sjálfan Guð
svo var karlinn goðum líkur.
Eftir að karlinn hafði sagt þetta
beit hann sig í vörina til blóðs og
varð vandræðalegur, en tók sig á
og sagði:
Ólafur Ragnar enn þá gagnast karl-
inn!
Á sig hljóp á þingi þó.
Þótti Davíð komið nóg!
Svo kvaddi hann og sönglaði
þar sem hann rölti upp Skóla-
vörðustíginn.
Lengi manninn má, minn svanni,
reyna.
Kyndugt margt og kyn-legt er
sem kerling veltir fyrir sér!
Og án þess að þagna fór hann
með gamla gátu:
Gettu hvað ég gerði mér til gamans
vinna –
bjó ég til fyrir blíðan svanna
böggul á milli rekkvoðanna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Frá Bessastöðum
upp á Skólavörðuholt
Í klípu
„NIÐURSKURÐARHNÍFURINN HLÍFIR
ENGUM, EKKI EINU SINNI ÞEIM SEM
MÆTA MEÐ ÖXI TIL YFIRMANNSINS.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„86 ÁR? HVAÐ SLEPPUR MAÐUR SNEMMA
EF MAÐUR HEGÐAR SÉR VEL?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þú og ég.
ÞÁ LEGGJUM
VIÐ Í HANN TIL
NORMANDÍ!
BREIÐIÐ ÚR
SEGLINU!
VIÐ ÞURFUM
SENNILEGA AÐ FARA
AÐ BREIÐA OFTAR
ÚR SEGLINU!
HNETUSMJÖRS-
MÚFFURNAR MÍNAR!
MIÐMORGUNS-EFTIR-
MORGUNMATAR-FYRIR-
LÚRS-NASLIÐ MITT!
Knattspyrnusnillingurinn Eusebiohefur verið syrgður víða um
heim undanfarna daga. Eusebio da
Silva Ferreira lést úr hjartaslagi á
sunnudag, 71 árs að aldri. Hann
fæddist í Mósambík, sem þá var
portúgölsk nýlenda (fyrir vikið tald-
ist hann portúgalskur leikmaður).
Þar vakti hann athygli fyrir snilli sína
og brátt beindust augu portúgalskra
liða að honum. Benfica hneppti
hnossið. Því var haldið fram að Ben-
fica hefði rænt honum og haft hann í
haldi þar til hann skrifaði undir
samning, en því neitaði hann í viðtali
2008. Antonio Salazar, leiðtogi Portú-
gals, lýsti Eusebio „þjóðargersemi“
til þess að hann gæti ekki farið til er-
lendra liða. Eusebio fékk viðurnefnin
svarti pardusinn og svarta perlan.
Hann var snöggur á velli og skotviss
og skoraði 733 mörk í 745 leikjum.
Með Benfica vann hann ellefu meist-
aratitla og fimm bikarmeistaratitla.
Einu sinni fékk hann gullboltann fyr-
ir að vera besti leikmaður í Evrópu
og tvisvar gullskóinn fyrir að vera
markahæstur í álfunni.
x x x
Dýrðarstund Eusebios var áheimsmeistaramótinu í Eng-
landi 1966 þar sem hann bar af öðr-
um sem askur af þyrni. Eusebio
skoraði níu mörk á mótinu. Portúgal-
ar slógu út Brasilíu, en í næsta leik
lentu þeir undir, 3-0, á móti Norður-
Kóreu. Eusebio tók leikinn í sínar
hendur, skoraði fjögur mörk og
Portúgalar unnu, 5-4. Í undan-
úrslitum léku Portúgalar gegn gest-
gjöfunum, Englendingum, og var
leikurinn færður frá Liverpool, þar
sem hann átti að fara fram, á Wem-
bley, svo fleiri kæmust að. Þar tókst
Nobby Stiles að halda Eusebio niðri
og mark portúgölsku skyttunnar úr
víti dugði ekki til. Portúgal tapaði
2-1. Sigur í leik um þriðja sætið gegn
Rússlandi þar sem Eusebio skoraði
eitt mark gerði lítið til að draga úr
vonbrigðunum. „Ég var besti leik-
maður í heimi, einn helsti marka-
skorari í heimi og Evrópu,“ sagði
hann í viðtali 2011 um vonbrigðin á
Englandi. „Ég gerði allt nema að
verða heimsmeistari.“ Víkverji verð-
ur að viðurkenna að hann öfundar þá
sem sáu Eusebio leika með Benfica
gegn Val 1968. víkverji@mbl.is
Víkverji
Og hann mun senda út englana og
safna sínum útvöldu úr áttunum
fjórum, frá skautum jarðar til
himinskauta. (Mk 13, 27.)
0 kr. útborgun
Langtímaleiga
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram
allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða.
Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun,
tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert
vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu
Kynntu þér málið í síma 591-4000
Á
R
N
A
S
Y
N
IR