Morgunblaðið - 08.01.2014, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2014
Farsæll ferill Sigrúnar Guð-jónsdóttur, eða Rúnu,spannar rúm 60 ár og erþví af ýmsu að taka á yf-
irlitssýningunni „Dvalið hjá djúpu
vatni“ sem nú stendur yfir í Hafn-
arborg. Rúna hefur sýnt listsköpun
sína reglulega í gegnum árin, nú
síðast verk unnin á japanskan papp-
ír fyrir um tveimur árum. Verk
hennar hafa einnig sett svip á dag-
legt líf margra, bæði hér heima og
erlendis því Rúna er ekki síst þekkt
fyrir framlag sitt á vettvangi hönn-
unar. Á sýningunni má sjá úrval
myndverka, bæði einstakar myndir
á veggjum en einnig myndir sem
ratað hafa á leirmuni, í bækur og
bæklinga, auk þess sem sýndar eru
undirbúningsteikningar og ljós-
myndir vegna verka sem unnin
voru fyrir opinberar byggingar.
Margir kannast við veggdiska
sem Rúna hannaði til minningar um
landnám Íslands í tengslum við
þjóðhátíðina 1974 en diskarnir voru
gerðir í samstarfi við danska postu-
línsfyrirtækið Bing & Grøndahl.
Samstarf þeirra tók einnig til fal-
legs borðbúnaðar með myndum
sem sýna hafmeyjur og fiska,
mannsandlit og fugla, auk stærri
veggmynda þar sem goðsögulegt
myndefni hefur verið málað á flísar.
Rúna var þá enginn nýgræðingur á
sviði nytjalistar en hún stofnaði
leirmunagerðina Laugarnesleir
ásamt eiginmanni sínum, Gesti Þor-
grímssyni myndhöggvara, árið
1947. Samstarf þeirra hjóna gat af
sér marga fallega listmuni sem
Gestur mótaði og Rúna málaði – og
á sýningunni má glöggt sjá hvernig
Rúna vinnur úr áhrifum, m.a. frá
suður-amerískri og suður-evrópskri
leirmunagerð og úr samtímamál-
aralist, og þróar fljótlega eigin stíl.
Elstu leirmunirnir endurspegla
næmt auga fyrir geómetrísku
hljómfalli og fallegum litasamsetn-
ingum og bæði hrynjandin og litah-
armonían skila sér inn í þær líf-
rænu áherslur sem Rúna tileinkaði
sér. Myndmál Rúnu sýnir gjarnan
stílfærðar konur með ávalar og
mjúkar línur er svífa um myndflöt-
inn, í senn jarðbundnar og lauflétt-
ar, umvafðar ævintýralegum sjávar-
eða himinverum og náttúruformum.
Mynd eins og Gárur hafsins lýsir
vel spunakenndri hugkvæmni lista-
mannsins.
Sýningin er fallega og fagmann-
lega unnin. Meðfram veggjum hafa
verið útbúin lág borð eða stöplar í
dökkbrúnum lit sem skírskotar til
jarðarinnar og leirsins sem setur
svo sterkan svip á verk Rúnu.
Dökki liturinn rammar einnig fal-
lega inn leirmunina og „lyftir“ lita-
spili myndanna þar sem jarðar- og
djúpsjávarlitir eru áberandi. Borðin
mynda einnig eins konar tímalínu
sem leiðir áhorfandann í gegnum
þróunina á ferli Rúnu. Í miðjum sal
eru sýningarborð þar sem m.a. má
sjá sýnishorn af grafískri hönnun
listamannsins svo sem myndlýs-
ingum sem Rúna vann fyrir bækur
móður sinnar, Ragnheiðar Jóns-
dóttur, og sína eigin bók, Rauðir
fiskar (1972). Verkin í sýning-
arborðunum veita mikilvæga innsýn
í hugmyndavinnu og fáguð vinnu-
brögð Rúnu. Myndmálið sem ein-
kennir frjálsa listsköpun hennar
rennur áreynslulaust inn í hönn-
unar- og nytjasamhengið og ljær
því listrænan þokka, enda hvergi
slakað á kröfum. Mörkin milli listar
og hönnunar eru óljós í höfund-
arverki Rúnu, og skipta raunar litlu
máli. Listamenn þurfa að fram-
fleyta sér og auk þess nærir það
sköpunarandann að fást við fjöl-
breytt verkefni og áskoranir – og
andinn í verkum Rúnu er síungur
og ferskur eins og sést best á nýj-
ustu verkunum. Má þar nefna verk
eins og Söng þagnarinnar og Mjúk-
an faðm draumsins þar sem samspil
næmrar formskynjunar, teikningar
og efniskenndar nýtur sín og lokkar
áhorfandann á vit óræðra djúpa og
tóna.
Morgunblaðið/Einar Falur
Listakonan „Myndmálið sem einkennir frjálsa listsköpun hennar rennur áreynslulaust inn í hönnunar- og nytja-
samhengið og ljær því listrænan þokka, enda hvergi slakað á kröfum,“ segir um myndheim Rúnu.
Sjávardjúp og jarðartónar
Hafnarborg – Menningar- og
listamiðstöð Hafnarfjarðar
Dvalið hjá djúpu vatni – yfirlitssýning
á verkum Rúnu – Sigrúnar Guðjóns-
dóttur
bbbbn
Til 26. janúar 2014. Opið kl. 12-17 alla
daga, fimmtud. til kl. 21. Lokað á þriðju-
dögum. Aðgangur ókeypis. Sýning-
arnefnd: Brynhildur Pálsdóttir, Ólöf K.
Sigurðardóttir, Þorbjörg Br. Gunn-
arsdóttir.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Veggmyndir Eitt þeirra myndverka á sýningunni sem Rúna málaði á leirflísar.
Hin kunni kvikmyndaframleiðandi
Saul Zaentz, sem vann Ósk-
arsverðlaun fyrir kvikmyndirnar
Gaukshreiðrið, Amadeus og Enska
sjúklinginn, er látinn, 92 ára að
aldri.
Zaentz starfaði til fimmtugs sem
tónlistarútgefandi og framleiðandi,
meðal annars með Dave Brubeck
og Creedence Clearwater Revival,
en náði afar eftirtektarverðum ár-
angri þegar hann tók að framleiða
kvikmyndir. Kostaði hann sumar
þeirra sjálfur. Þá þótti hann ein-
staklega framsýnn þegar kom að
því að tryggja sér rétt að sögum
sem hann taldi henta vel fyrir
hvíta tjaldið. Þar má nefna
Hringadróttinssögu og Hobbitann
sem hafa reynst gríðarlega arð-
bærar og átti Zaentz iðulega í
glímu fyrir dómstólum, um arðinn
af verkefnum sínum, og þótti fast-
ur fyrir.
Meðal annarra kvikmynda hans
eru Óbærilegur léttleiki tilver-
unnar og Moskítóströndin.
Samstarfsmenn Óskarsverðlauna-
hafarnir Saul Zaentz og Milos Foreman.
Framleiðandinn
Zaentz látinn
Árið 1880 var breskur fornleifa-
fræðingur við veiðar í Noregi og
tók einnig þátt í fornleifauppgreftri
við víkingagrafir í Lilleberge.
Nokkrum árum síðar keypti British
Museum af honum gripi sem þar
komu í ljós, meðal annars tvær næl-
ur, glerperlur og einskonar bakka
úr hvalbeini. Þá fylgdi í kaupunum,
samkvæmt dagblaðinu The Obser-
ver, óræður „klumpur“ úr lífrænu
efni, sem talið var að hafi mögulega
verið viðarskrín.
Þessi klumpur sat í geymslu Brit-
ish Museum í meira en öld en þegar
röntgenmynd var tekin af honum
kom í ljós að þar í var sex cm breið
gullnæla, fágæt keltnesk smíð, og
verður hún fyrst sýnd almenningi í
mars næstkomandi.
Fágæti Skartið var smíðað fyrir um þús-
und árum og falið í víkingagröf í Noregi.
Gullnæla leyndist
í klumpinum
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Hreinsandi fyrir
meltinguna
www.annarosa.is
Tinktúran Fjallagrös og fíflarót þykir
hreinsandi fyrir meltinguna og mjög góð
gegn uppþembu, vindverkjum og
ristilkrampa.
Ég er 64 ára og ákvað að prófa tinktúruna Fjallagrös
og fíflarót frá Önnu Rósu. Nú er ég búinn með þrjár
flöskur og finn að virknin er mjög góð. Ég finn mikinn
mun á maganum og hef líka miklu meiri orku en áður.
Ég mæli hiklaust með þessari tinktúru því hún virkar
mjög vel!
– Guðjón Einarsson