Morgunblaðið - 08.01.2014, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 08.01.2014, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 8. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Fann æskuvini á Facebook 2. Hönnunarvilla forstjóra í … 3. Örlagarík Kristjaníuheimsókn 4. Andlát: Gunnlaugur E. Briem »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tökur á næstu kvikmynd Baltasars Kormáks, Everest, hefjast í Nepal á mánudaginn. Baltasar mun þar leik- stýra Hollywoodstjörnunum Jake Gyllenhaal, Josh Brolin, Jason Clarke og John Hawkes sem fara með aðal- hlutverkin. Tökur í Dólómítafjöllum á Ítalíu hefjast um viku síðar og að þeim loknum verður haldið í hið margfræga kvikmyndaver Cinecittá í Róm þar sem margar af kvikmyndum Federicos Fellinis voru m.a. teknar upp. Þá verður Everest einnig tekin upp í kvikmyndaveri Pinewood í Buckingham á Englandi, því sama og kvikmyndirnar um njósnarann James Bond hafa verið teknar í. Handrit Everest er byggt á sann- sögulegum atburði, þegar átta fjall- göngumenn fórust í aftakaveðri á hæsta fjalli jarðar, Everest, 11. maí ár- ið 1996 en það er mannskæðasta slys sem orðið hefur á fjallinu. Morgunblaðið/Golli Tökur á Everest hefjast í næstu viku  Leikfélag Akureyrar undirbýr nú uppsetningu á Lísu í Undralandi og verður verkið frumsýnt í Samkomu- húsinu í október. Margrét Örnólfs- dóttir skrifar leikgerð út frá sögu Lewis Carroll og tónlist við verkið semur Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni. Margrét hefur hlotið verð- laun fyrir barnabækur sín- ar, m.a. Fjöruverðlaunin og Vorvindaviðurkenn- ingu IBBY á Íslandi, og Dr. Gunni hefur sent frá sér barnaplötur og stýrt spurningaþætt- inum Popppunkti á RÚV, svo fátt eitt sé nefnt. Lísa í Undralandi á fjalirnar hjá LA Á fimmtudag Austlæg átt, 3-10 m/s. Víða skýjað með köflum en skýjað og stöku él með suður- og austurströndinni. Frost yfirleitt 0 til 7 stig, kaldast í innsveitum. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dregur smám saman úr vindi og úrkomu. Norðaustan og austan 5-13 m/s síðdegis. Víða skýjað með köflum en lítilsháttar súld NA-til og á Ströndum. Hiti yfirleitt 0 til 7 stig. VEÐUR Knattspyrnulið Tindastóls á Sauðárkróki íhugar alvarlega að draga lið sitt úr keppni í 1. deild karla fyrir næsta sumar. Félagið sendi frá sér yfirlýs- ingu þess efnis um síðustu helgi og segir Ómar Bragi Stefánsson, formaður knattspyrnudeildar Tindastóls, við Morgun- blaðið að „menn séu í hjartanu búnir að taka þá ákvörðun“. »2-3 Í hjartanu búnir að taka ákvörðun Það kom líklega engum á óvart að Lele Hardy úr Haukum var kjörin besti leikmaðurinn í fyrri umferð Dominos-deildar kvenna í körfubolta. „Ég get ekki neitað því að tímabilið hefur verið mjög gott hjá mér. Ég reyni alltaf að bæta mig frá leik til leiks, set mér stór markmið og reyni að fylgja þeim eftir,“ segir Hardy sem skorar um 30 stig og tekur um 20 frá- köst að meðaltali í leik. »1 Set mér stór markmið og reyni að fylgja þeim Florida State vann Auburn Tigers um síðustu helgi í síðasta úrslita- leiknum í bandaríska há- skólaruðningnum þar sem keppt er eftir gömlu fyrirkomulagi. Gunnar Valgeirsson var á leiknum og skrifar um hann, stemninguna í „Rósaskálinni“ og breytingarnar á keppnisfyrirkomulaginu sem hann telur kærkomnar. »4 Florida vann síðasta titil fyrir breytingar ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Knútur G. Hauksson fór á sitt fyrsta stórmót í handbolta fyrir fjórum ár- um þegar Evrópumót landsliða fór fram í Austurríki. Hann ætlar ekki að láta sig vanta á Evrópumótið sem hefst í Danmörku 12. janúar og segir mikla stemningu einkenna íslenska áhorfendur sem sækja slík mót. Knútur hefur fulla trú á landsliðinu þrátt fyrir að væntingar séu í lág- marki. Hann segir að þeir sem sæki landsleiki á stórmótum séu á öllum aldri. Bæði fólk sem þekkt er úr handboltaheiminum og fólk sem finnst gaman að sækja slíkar keppn- ir. „Það hefur alltaf verið gríðarleg stemning í kringum íslenska hópinn. Það eina sem hefur vantað er að ei- lítið fleiri hafi verið á staðnum,“ seg- ir Knútur. Leiðbeinandi athugasemdir Hann var formaður HSÍ í fjögur ár og hætti í apríl á síðasta ári. Þeir sem þekkja Knút vita að hann hefur aldrei legið á skoðunum sínum þegar hann sækir handboltaleiki. Við- urkennir Knútur að hann eigi það til að senda dómurum „leiðbeinandi at- hugasemdir,“ eins og hann orðar það kíminn. „Maður fékk reglulega áminningar um að láta dómarana vera, en það var oft erfitt þegar dótt- ir manns var í liðinu að spila mik- ilvægan leik í úrslitum, “ segir Knút- ur sem er mikill Framari. Dóttir hans, landsliðskonan Karen Knúts- dóttir, hefur leikið með farsælu handknattleiksliði félagsins und- anfarin ár en leikur nú með Sön- derjyskE í Danmörku. „Ég tek föðurhlutverkið fram yfir öll önn- ur. Sennilega tók það mig heilt ár að venjast hlutverki formanns á leikjum og læra að sitja á mér,“ segir Knútur. Í formannstíð sinni lá hann ekki á skoðunum sínum þar sem hann sat uppi í stúku á landsleikjum. „Ég hoppaði upp úr stólnum og var líflegur. Fyrir vikið fékk ég oft auga frá formönnum ann- arra sambanda og forseta alþjóða- sambandsins,“ segir Knútur og hlær. Eitt sinn hljóp honum svo mik- ið kapp í kinn að hann tognaði í þind- inni. „Ég gat ekki kyngt og lækn- irinn sagði mér að hann hefði aldrei séð svona áður,“ segir Knútur og hlær. Hann getur nú tjáð tilfinningar sínar óhindrað og stefnir að því að fara tvívegis til Danmerkur meðan á HM stendur en það hefst 12. janúar og fer riðill íslenska liðsins fram í Álaborg. „Ég hef fulla trú á liðinu og það hefur oft hentað okkur þegar væntingar eru litlar,“ segir Knútur. Alltaf gríðarleg stemning  Knútur G. Hauksson ætlar á EM í Danmörku Morgunblaðið/Golli Ísland Hópferð verður á leik íslenska handknattleikslandsliðsins á Evrópumótið í Danmörku. Íslenska liðið leikur í Álaborg og hefur leik 12. janúar. Fyrrverandi formaður HSÍ ætlar að fara tvívegis á mótið meðan á því stendur. Icelandair og HSÍ munu bjóða upp á hópferð á Evrópumótið í Dan- mörku. Flogið verður til Álaborgar sunnudaginn 12. janúar og sam- dægurs leika Íslendingar við Norðmenn klukkan 16. Ekki er leik- ið á mánudegi en á þriðjudag spila Íslendingar við Ungverja klukkan 18. Um kvöldið er svo flogið heim. Hægt er að nálg- ast miða hjá ferðaskrifstofunni Úrvali-Útsýn. Einar Þorvarð- arson, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að bókanir hafi farið vel af stað. „Við teljum að þetta séu þeir tveir leikir sem þurfa hvað helst að vinnast til að komast í milliriðil. Við erum með leiguvél sem er ekki búið að fylla en höfum vænt- ingar til þess að ná að gera það,“ segir Einar en vélin tekur um 180 farþega. Hópferð til Danmerkur BÚIÐ AÐ LEIGJA 180 SÆTA FLUGVÉL Knútur G. Hauksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.