Monitor - 09.01.2014, Blaðsíða 6
6 Monitor fimmtudagur 9. janúar 2014 stíllinn
Framhald
AÐAL-trEnDin
2013
Dragtirnar →
Eins og svo margt annað þá er
dragtar-trendið eitthvað sem
ætlar að halda áfram á nýju ári og
verður eflaust meira áberandi með
tímanum. Það verða ekki einungis
skrifstofukonurnar sem klæðast
drögtum heldur hin almenna
kona. Stíllinn skorar á stúlkur
landsins til að finna sér fallega
dragt sem er flott í sniðinu en ekki
myndi skemma fyrir að hún væri
munstruð, til dæmis köflótt.
← BomBer-
jakkarnir
Þessir svokölluðu bomb-
erjakkar hafa verið mjög
vinsælir á liðna árinu,
það mætti segja að þeir
séu „unisex“ en einnig
hafa þeir verið til meira
aðsniðnir fyrir dömurnar.
Jakkarnir eru frekar
hversdagslegir og eru
flottir yfir hettupeysu til
dæmis.
Hlunkaskórnir og stígvélin ↑
Skótískan í ár hefur verið frekar vígaleg, mjög grófir og hlunkalegir skór hafa verið
einkennandi. Stígvélin voru líka að stimpla sig inn í lok árs og þá sérstaklega upphá stígvél
en það eru ekki allir sem þora í þau. Uppháu stígvélin minna einstaklega mikið á stígvélin
sem Julia Roberts klæddist í Pretty Woman og það vita allir hvað það þýðir. Þess vegna
þarf að vara sig í hverju maður klæðist við slík stígvél. Annars er Stíllinn einstaklega
ánægður með skótískuna í ár.
gegnsætt og kreisí ↑
Það er eitthvað svo kynþokkafullt og fínlegt við gegnsæju efnin sem hafa verið vinsæl síðustu ár, málið snýst um að gera þetta rétt.
Ef þú átt fallegan og þekjandi brjóstarhaldara sem sýnir ekki of mikið þá getur þú komist upp með það að vera í gegnsærri flík yfir.
Það eru bara módelin sem mega vera berbrjósta undir gegnsærri flík.
Hvítt ↓
Hvítt frá toppi til táar var áberandi á
sýningarpöllunum síðastliðið haust og
þykir Stílnum þetta einstaklega fallegt og
smekklegt trend. Því miður var það ekki
eins áberandi hérlendis en við getum bætt
úr því á nýju ári, hvítt er alltaf klassískt.
ljósu enDarnir ↓
Ljósu endarnir héldu áfram að vera heitt
trend þetta árið en það fer þeim sem eru
með liðað hár langbest. Líklegt er þó að
trendið muni ekki vera jafn áberandi á
nýju ári og heillitur muni taka alfarið við.
En þetta fer þó þessum dömum sem eru
á meðfylgjandi myndum einstaklega vel.
rúllu-
kraginn ↑
Rúllukraginn er ekki fyrir alla
en Stíllinn er voða skotinn í
honum. Það er eitthvað svo
haust/vetrarlegt við hann
og á réttu manneskjunni er
hann fullkominn við hátt pils,
fallega kápu og hæla. Þykkar
og miklar rúllukragapeysur
eru líka guðdómlegar og
fullkomnar á Íslandinu.
rönDótt
Röndótt er
alltaf inn að mati
Stílsins en mikið
var um röndóttar
línur hjá helstu
hönnuðunum og
þá voru dressin
yfirleitt röndótt frá
toppi til táar. Erfitt
er fyrir hvern sem
er að „púlla“ slíkt
dress en það má
þó reyna. Annars
er alltaf gott
að hafa regluna
„less is more“ í
huga þegar um
röndótt er að ræða,
röndótt skyrta eða
röndóttur bolur
er alltaf töff undir
látlausum jakka.
←