Monitor - 09.01.2014, Blaðsíða 22

Monitor - 09.01.2014, Blaðsíða 22
Hollywoodmyndin The Secret Life ofWalter Mitty ætti ekki að hafa farið framhjá neinum Íslendingi, umfjöllun um myndina hefur verið gríðarlega mikil enda er hún að mestu leyti tekin upp á Íslandi og leika nokkrir Íslendingar ágætis rullu í henni. Ben Stiller ætti að vera flestum kunnur eftir fjöldamargar stórmyndir en hann leikstýrir einmitt sjálfum sér í þessari mynd líkt og hann gerði í Tropic Thunder og Zoolander. Myndin fjallar umWalter Mitty sem lifir frekar látlausu lífi en kryddar það með fjörugu ímyndunarafli. Hann virðist ekki hafa gert neitt í gegnum tíðina og vinnur bara sína vinnu, við myndvinnslu fyrir tímaritið Life. Þegar ein mynd týnist og starfWalters og vina hans er í hættu horfist hann í augu við lífið og leggur upp í svakalega leit sem dregur hann um víðan völl, þar á meðal Íslands. Ben Stiller er frábær í hlutverki hins sérkennilegaWalters Mitty og fer hreinlega á kostum. Kirst- enWiig er aftur á móti frekar flöt og tókst ekki að heilla sem Cheryl, stelpan semWalter er ástfanginn af í laumi. Shirley MacLaine var virkilega góð sem móðirWalters og Sean Penn eitursvalur sem hin dularfulli Sean O’Connell. Ólafur Darri og Gunnar Helgason voru líka skemmtilegir í sínum hlutverkum, þá sérstaklega Ólafur Darri. Ben Stiller hélt samt þessari mynd uppi, bæði með leik sínum og úr leikstjórastóln- um. Þetta var einstaklega góð og skemmtileg mynd, fyndin, falleg og spennandi, allt í einu. Eflaust gefur það myndinni aukið vægi fyrir okkur Íslendinga að sjá fallega landið okkar á stóra skjánum svona augljóslega og svo eru nokkrir brandarar inná milli sérstaklega fyrir okkur. Þið sem haldið að búið sé að upphefja The Secret Life ofWalt- er Mitty á Íslandi vegna tengsla við landið eruð á villigötum. Hún á allt það hrós sem hún hefur fengið fyllilega skilið. Tel ég að enginn Íslending- ur eigi að láta hana framhjá sér fara. Draumar verða að veruleika! kvikmynd The secreT life ogwalTer miTTy ívar orri monitor.is KíKtu í heimsóKn Eitursnjall atvinnusvindlari neyðist til að hjálpa alríkislögreglunni við rann- sókn spillingarmáls sem snertir bæði mafíuna og háttsetta embættismenn bandarískrar stjórnsýslu. American Hustle er nýjasta mynd leikstjórans Davids O. Russell sem á m.a. að baki verðlaunamyndirnar Silver Linings Playbook, The Fighter og Three Kings. Christian Bale leikur hér blekkinga- meistarann Irving Rosenfeld sem ásamt aðstoðarkonu sinni og ástkonu, Sidney Prosser (Amy Adams), hefur lengi leikið lausum hala röngum megin við laganna strik. Það kemur hins vegar í bakið á honum þegar alríkislögreglumaður að nafni Richie DiMaso neyðir þau Sidney til að aðstoða sig við að spenna gildru fyrir mafíuna í Jersey í því skyni að koma upp um alvarlegt spillingarmál. Inn í aðgerðina blandast síðan stjórn- málamaðurinn Carmine Polito (Jeremy Renner), sem veit ekki í hverju hann er lentur, og eiginkona Irvings, Rosalyn (Jennifer Lawrence), sem er búin að fá nóg af framhjáhaldi eiginmannsins og hyggst grípa til sinna ráða. skjámenning Frumsýning helgarinnar american hustle They’re *in* the computer? Hansel -Zoolander 22 monitor fimmtudagur 9. janúar 2014 aðalhlutverk: Christian Bale, Bradley Cooper, Jennifer Lawrence, Amy Adams, Jeremy Renner, Robert De Niro og Louis C.K. Leikstjórn: David O. Russell Sýningarstaðir: Samb- íóin Álfabakka, Egilshöll, Kringlunni, Keflavík, Akureyri, Ísafjarðarbíó, Selfossbíó og Bíóhöllin Akranesi aldurstakmark: 12 ára viLtu vinna miða? facebook.com/monitorbladid Nú styttist í PlayStation 4-tölvuna frá Sony, en hún lendir hér á landi í lok janúar. Á sama tíma dettur inn hellingur af leikjum og þeirra á meðal er skotleik- urinn Killzone: Shadow Fall frá Sony. Leikurinn gerist 30 árum eftir Killzone 3, en heimur Killzone hefur á þeim tíma breyst mikið. Leikmenn fara í hlutverk Lucasar Kellan og er það hans hlutverk að setja tappann í atburðarás sem gæti eytt heimahögum hans. Killzone: Shadow Fall er fyrstu persónu skotleikur og mjög klassískur sem slíkur. Leikmenn vaða um fjölbreytt svæði með ýmis vopn við höndina og þurfa að ganga frá heilu herjunum af Helghast-illmennum, en þeir eru óvinir leiksins og minna óneitanlega töluvert á nasista Hitlers. Til að hjálpa leikmönnum í gegnum torfur óvina er lítið fljúgandi vélmenni sem leikmenn geta gefið skipanir, en þær eru meðal annars að ráðast á óvini, mynda skjöld, senda frá sér rafstraum til að aftengja allskyns varnir og búa til reipi sem leikmenn geta notað til að komast á milli staða. Flest borð leiksins eru dæmigerð fyrir fyrstu per- sónu skotleiki þar sem lítið er um val, en inná milli koma borð þar sem leikmenn þurfa að fara um opin svæði og ráða hvernig þeir ráðast í verkin. Þetta er skemmtileg tilbreyting sem gerir mikið fyrir leikinn. Stýringin í leiknum er mjög góð og spilar þar nýi Dual Shock 4 stýripinninn mikið inní, en hann er einstaklega þægilegur og gerir spilun skotleikja mun auðveldari. Fyrir utan söguþráð leiksins sem spannar í kringum 8 tíma í spilun, inniheldur leikurinn fullkomna netspilun sem virkar mjög vel og gerir heilmikið fyrir leikinn. Grafíkin er einstök í leiknum og sýn- ir hann svo um munar hversu öflug tölva PlayStation 4 er þegar kemur að grafík, en leikurinn keyrir í fullri háskerpu án þess að hósta. Ég hefði viljað sjá aðeins meiri fjölbreytni og nýjungar í þessum nýjasta Killzone-leik, en hann sýnir svo um munar hversu öflugan vélbúnað PlayStation 4 tölvan hefur undir húddinu og verður spennandi að sjá næstu leiki sem koma út á vélina. Tegund: Skotleikur Pegi merking: 18+ Útgefandi: Sony Computer dómar: 7 af 10 – Gamespot 8 af 10 – IGN.com 7 af 10 – Eurogamer.net killzone: shadow fall ÓLafur þÓr jÓeLSSon Tölvule ikur Framtíðar nasistar

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.