Monitor - 09.01.2014, Blaðsíða 9
9fimmtudagur 9. janúar 2014 Monitor
í nýtt ár
Ofneysla á sykri, vöntun á
D-vítamíni og klamydía eru
algeng vandamál á Íslandi og
hafa áhrif á heilsu margra.
Að minnka sykurneyslu, taka
inn D-vítamín og nota smokk
er eitthvað sem allir geta
tileinkað sér og þannig stuðlað
að bættri heilsu og lífsgæðum.
Hvað varðar samskiptamiðlana þá þarf fólk að
vera meðvitað um hvað er við hæfi - passa hvaða
fréttir er verið að læka, deila og dreifa til svokallaðra
Facebook-„vina“ sinna, varast sleggjudóma og
yfirlýsingagleði í commentum. Klisjan „Netið gleymir
aldrei” er bara svo ofboðslega sönn og allt hefur
þetta áhrif á það hvernig fólk upplifir þig og þína
persónu á netinu. Án þess þó að reyna of mikið að
skapa sér einhverja ákveðna ímynd, oft og tíðum
óraunverulega, í gegnum grímu Facebook þá tel ég
einlægni vera mikilvægasta. En þetta er vandmeðfar-
ið því enginn þolir of-hreinskilna-fólkið sem í einu
og öllu lifir lífi sínu aðeins of opinskátt á Facebook og
leyfir okkur hinum að taka þátt í öllu drama og gleði
sem þar gerist, þar sem virði sjálfsins virðist vera
metið út frá lækum og commentum á jafn grunn-
hyggnum vettvangi eins og samfélagsmiðlarnir geta
verið.
Atvinnuveitendur eru m.a. farnir að skoða Face-
book-síður umsækjenda til að átta sig betur á hvaða
mann þeir hafa að geyma, kennarar sömuleiðis
skoða nemendur sína og því skal varast stórhættu-
legt landsprengjusvæði samfélagsmiðla.Verið einlæg
en meðvituð og aldrei gleyma að aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
Hreyfing á að vera hluti af
lífsstílnum! Það þýðir ekki
bara að hugsa um það að
fara í ræktina, þú verður
að koma þér af stað því
það er byrjunin. Taktu eitt
skref í einu og byrjaðu
rólega, það þýðir ekki
að keyra á stuð á fullum
krafti og gefast síðan upp
að lokum. Þú nærð ekki
árangri á einum degi,
þetta tekur allt sinn tíma
og þolinmæði er það sem
gildir.
Hafðu hreyfingu sem
hluta af þínum degi,
lágmark 30 mínútur á dag
kemur skapinu í lag. Sjálf-
stjórnun er oft vandamál,
ég ráðlegg þér því að hafa
samband við íþróttafræð-
ing eða einkaþjálfara og
fá aðstoð til að byrja. Fyrir
alla er gott að hafa áætlun
til að fara eftir og vita hvað eigi að gera á hverri æfingu til að viðhalda áhuganum og ná meiri
afköstum.
Að hafa æfingafélaga getur verið mjög gott og jákvætt. Að fara saman á æfingu og hvetja hvern
annan áfram er nauðsynlegt.
Hafðu fjölbreytnina í fyrirrúmi. Ekki vera alltaf í sama gamla farinu, breyttu til og gerðu
eitthvað annað, sérstaklega ef þú ert komin með leiða á því sem þú ert að gera. Það getur oft
verið gott að breyta til og prófa eitthvað alveg nýtt. Í dag er ótrúlega margt í boði og því um að
gera að finna eitthvað við sitt hæfi. Að fara í ræktina og stunda hreyfingu á að vera skemmtilegt
og þú átt að hlakka til að mæta á æfingu.
Orð sem eiga alltaf að fylgja hreyfingu: Skemmtun – vellíðan – fjölbreytni – gleði – bætt heilsa
– heilbrigður lífsstíll.
Það eru margir þættir sem þarf að hugsa um
til að stuðla að vellíðan og ekki bara hægt að
hugsa um eitt atriði. Þau helstu eru sennilega
þau sem við heyrum oftast, að borða hollt,
hreyfa sig reglulega og sofa vel.
Það sem gleymist oft er að það skiptir líka
máli að mynda tengsl og rækta tengsl við þá
sem okkur líður vel með og þá getur verið
gott að hitta vini og ættingja reglulega. Einnig
er mjög gott að stunda áhugamálin sín eða
finna sér skemmtileg áhugamál og vera
jákvæður og opinn fyrir að prófa eitthvað nýtt
öðru hvoru. Það þarf ekki að vera flókið, t.d.
að fara í göngutúr í nýju umhverfi, skrá sig á
námskeið, gerast sjálfboðaliði eða prófa nýja
íþrótt.
Ef maður býður vinum sínum með er þetta
líka allt atriði sem hægt er að nýta til að rækta
sambandið við fólkið í kringum sig og geta
einnig hitt nýtt fólk og myndað ný tengsl.
Steinunn Þyri ÞórarinSdóttir
Sálfræðingur og forstöðumaður unglingasmiðjanna Stígs og Traðar.
ragna BaldvinSdóttir
Íþróttafræðingur hjá Háfit
Jón gunnar geirdal
Landsstjóri Yslands
KriStín María
tóMaSdóttir
Læknir