Monitor - 09.01.2014, Blaðsíða 20
20 Monitor fimmtudagur 9. janúar 2014
Nú á tímum, þar sem veraldarvefurinn er
stöðugt að verða stærri partur af lífi fólks,
hafa ýmsar stefnumótasíður og samfé-
lagsmiðlar tekið við af gömlu góðu
einkamálaauglýsingum dagblað-
anna þegar kemur að makaleit á
Internetinu.
Ástin á tímum
internetsins
Monitor hafði samband við ungan mann sem kynntist kærustunni sinni í gegnum einfalt „grín-poke“
á Facebook, en þau hafa nú verið saman í þrjú ár og ástin blómstrar sem aldrei fyrr.
Hvernig kynntist þú núverandi ástkonu?
Ég var í jólafríi, opnaði tölvuna mína og fór
á Facebook. Þar voru nokkur notafications og
sá ég að ég var með Poke og Friend Request frá
sömu dömunni. Ég er nú ekki vanur að skoða
svona random poke, því ég hafði aldrei áður séð
þessa stelpu. En ég semsagt sé profile-myndina
og hugsa með mér hvað hún sé nú falleg og
prófa að senda á hana línu til þess að gá hvort
við þekktumst eða hvort ég væri um svokallað
Face-rape að ræða.Við byrjum að spjalla og þá
kemur í ljós að hún sé nýkomin úr sambandi
og að vinkona hennar, sem ég þekkti þá til, hafi
farið í óleyfi inn á Facebook-ið hennar og fundið
nokkra stráka til að senda Friend Request og
Poke-a svona í einhverju djóki. En við byrjum
semsagt að tala saman upp úr því og eigum
sameiginleg áhugamál og fleira. Tveim dögum
seinna fæ ég skilaboð í símann minn að hún og
umrædd vinkona séu á leið í bæinn til að gera
eitthvað og var að athuga hvort ég væri til í að
koma og hitta þær. Ég hringi í besta vin minn
og við förum fjögur saman í keilu og ísbíltúr.
Upp úr þessu kvöldi byrjuðum við að hittast og
höfum verið saman í þrjú ár.
Finnst ykkur skrýtið að segja frá því að þið
hafið kynnst „í gegnum Facebook“?
Stundum í byrjun fannst mér það, en mér
finnst það eigilega bara fyndið í dag vegna þess
að við höfðum aldrei áður séð hvort annað og
svo erum við ennþá saman í dag.
Hefurðu einhverntímann notað miðla tengda
facebook eins og Taggalicious/Compare
Hotness o.s.frv.?
Ekki í þeim eina tilgangi til að finna mér
einhverjar stelpur. En ég notaði á sínum tíma
Compare Hotness eins og flestir aðrir jafnaldrar
mínir, mestmegnis í gríni samt.
Hvað finnst þér um síður eins og Einkamál.
is? Heldurðu að ungt fólk sé almennt mikið á
slíkum síðum?
Ég held að ungt fólk leiti ekki mikið þangað
til að leita að ást lífsins, heldur frekar fyrir
fólk sem er að leita sér að ákveðinni tegund
af ástarsambandi eða þá eldra fólk sem er
einmana og vantar félaga á sama róli og þau í
lífinu. Aldrei hef ég hinsvegar heyrt af fólki á
tvítugsaldri sem er í sambandi og segir “já, við
kynntumst bara á einkamal.is”.
Fyndist þér furðulegt ef vinur þinn væri að
kynnast fólki á einkamál.is? En fullorðinn
ættingi?
Ég held ég myndi vera mjög hissa á því
allaveganna. Minna ef það væri kannski eldri
frændi sem væri nýbúinn að missa konuna
og vantaði einhvern til að eyða með sér tíma
eða eitthvað álíka. Því eldra fólk á erfiðara
með að fara bara á Facebook og finna einhvern
“random” sem þau geta kynnst. Þetta er ákveð-
inn gluggi fyrir fólk til að leita að sameigilegum
eiginleikum.
Hvernig finnst þér „deitmenningin“ vera á
Íslandi miðað við útlönd? Er einhver deit-
menning hérlendis?
Ég meina, nú veit ég ekki alveg hvernig þetta
er á Íslandi almennt. Það er að segja hvort
strákar séu að bjóða stelpum út að borða
á fyrsta deit en ég fór allaveganna fyrst á
umrætt deit og tveim dögum seinna bauð ég
henni út að borða og í bíó. Ég veit að margir
af félögum mínum fara oftast bara heim með
stelpum af djamminu, en kannski finnst þeim
nóg að fara á “deit” á Pizza Royal klukkan 4 á
laugardagskvöldi meðan beðið er eftir taxanum.
Í útlöndum held ég að það fari rosalega eftir
aldri og landi sem fólkið býr í. Norðurlöndin eru
svipuð og Ísland í þessum málum en Banda-
ríkin kannski aðeins formlegri vegna þess hve
trúaðir margir eru þar og að sofa saman eftir
fyrsta stefnumót er ekki algengt þar.
Hvort er ástin meira eins og banani eða
gúrka?
Ég myndi segja að ástin sé eins og margir
bananar í röð, raðað þannig að bananinn sé
fyrst eins og broskall og síðan eins og fýlukall.
Semsagt í einskonar bylgju. Því ástin er alltaf