Monitor - 09.01.2014, Qupperneq 16
@lord_volldemort7
Starkarður Elís Zölberg ætlaði að verða geimfari þegar hann var yngri. Þess í stað vinnur hann við að hræða
ungabörn í Norður-Kóreu sem Martraða Mikki, eitt helsta skrímsli kapítalismans. Kim elskar hann.
Hvað búa
margir í
Moskvu,
höfuðborg
Rússlands?
Rússland er stærsta land jarðar
að flatarmáli, það 9. fjölmenn-
asta en 143,4 milljónir manna
eru búsettar þar.
Í Moskvu búa 11,5 milljónir
manna, um 8% af íbúafjölda
Rússlands.
Stærð Moskvu er 2511 fkm
svo að fjöldi íbúa á hvern
ferkílómetra er um 4580 að
meðaltali. Flestir íbúa Moskvu
hafa rússnesku að móðurmáli.
Í Reykjavík búa um 120 þúsund
manns sem þýðir að Moskva
er um níutíu og sex sinnum
fjölmennari svo að Moskva
er þónokkuð þéttbýlli borg en
Reykjavík.
vísindavefurinn
5
áramótaheit
sem eru dæmd
til að mistakast
Af því að jákvæðni er ofmetin
1 Léttast um 10 kíló. Þú ætlarþér allt of mikið. Þér finnst
snakk, gos og allt sem hefst með
forskeytinu súkkulaði- alltof gott.
Það er dýrt að fara í ræktina, kalt
að hlaupa úti og þú átt enn eftir
að klára síðustu seríuna af Scan-
dal. Þú hefur of margar afsakanir,
miðaðu við svona 3 kíló og gefðu
þér fæv ef það tekst.
2Finna ástina. Ef ástin er kötturog jafnvel í fleirtölu þá er þetta
auðsótt mál. Annars ættirðu að
hugga þig við máltækið „Sjálfum
er höndin hollust“ og gleyma öllu
um rómantík. Þú ert alltof pikkí
til að finna einhvern/einhverja
sem hæfir þínum kröfum.
3 Spara pening. Það kemurpottþétt einhver ný græja á
árinu sem allir verða að eignast,
þú þar með talinn. Auk þess
þarftu að tolla í tískunni, fara
í bíó, borða sushi og skreppa
til Köben svo örlög buddunnar
þinnar eru þegar ráðin.
4 Eyða minni tíma á netinu.Þú þarft að skoða mbl.is í
það minnsta þrisvar á dag til að
vita hvað er á gangi í heiminum
auk þess sem tónlistarmyndbönd
og Twitter taka sinn tíma. Eftir að
hafa farið í gegnum venjubundna
rútínu muntu síðan festast
ítrekað í því að skoða myndir af
fyrrverandi á Facebook.
5 Taka þig á í vinnunni/skól-anum. Það er einfaldlega
ekki í eðli þínu að vakna fyrir
sólarupprás og því miður er hún
frekar seint á ferð þessa dagana
svo þú ert alltaf seinn. En það
sem á stærstan þátt í að klúðra
þessu áramótaheiti er klúður á
áramótaheiti 4 þar sem þú skiptir
athyglinni jafnt milli vinnunnar/
skólans og Facebook.
Vondir karlar
Nú er komið að leiðarlokum, en eftir rúmlegafjögurra mánaða starf á Monitor held ég íheimsreisu á morgun. Þegar þetta er lesið
verð ég meira að segja hættur að vinna og líklega
kominn í ölæði, gangandi berserksgang í hverfinu
mínu til þess að fagna starfslokum.
En nóg um það, aðstandendum mínum lístflestum gríðarlega vel á ferðina og þá hugsunað lyfta sér aðeins upp áður en strit háskólans
tekur við. Samt sem áður blunda víða áhyggjur hjá
gamla settinu og hafa aðvörunarorðin verið ófá.
Mesti óttinn beinist hins vegar ekki að því að við
ætlum að sörfa í stórum öldum, umgangast snáka
og hættulegar pöddur, gætum fengið matareitrun
eða því að við ætlum að keyra upp stóran hluta
Víetnams á vespum (foreldrar mínir frétta það
reyndar fyrst hér). Nei, allir eru dauðhræddir vegna
þess að á leið okkar til Bandaríkjanna stoppum við
í þrjá daga í Mexíkó og þar eru svo agalega vondir
karlar. Grínlaust.
Þetta fékk mig hins vegar til þess að hugsa(og það gerist ekki oft). Hvernig stendur á þvíað vondir karlar eru helsta áhyggjuefni svo
margra? (Með fullri virðingu fyrir vondum konum þá
fá kallarnir/kagglarnir bara mun meiri athygli). Það
er varla framleidd sú kvikmynd þar sem ekki er háð
barátta við vonda karlinn, eineltissegginn, banka-
ræningjann eða morðingjann. Fólk læsir heldur ekki
húsum sínum eða setur upp þjófavarnir til þess að
verjast vindinum og rigningunni, heldur til þess að
vondu karlarnir komist örugglega ekki inn.
Nú dettur mér ekki í hug að gera lítið úr þeirristaðreynd að vondu karlarnir eru á hverjustrái og vissulega rík ástæða til þess að
verjast þeim, en maður hlýtur hins vegar að spyrja
sig hvers vegna sú staðreynd er raunveruleiki.
Við búum á plánetu þar sem koma stundumeldgos, jarðskjálftar, flóðbylgjur og alls konarvesen sem við þurfum að græja. Þrátt fyrir öll
þessi vandamál sem við þurfum að kljást við er fullt
af óþolandi gæjum sem nenna að vera vondir og
lemja fólk og limlesta þannig að við þurfum að eyða
fullt af tíma og pening í að skamma þá og læsa þá
inni. Þeir eru svolítið eins og óþekki krakkinn sem
truflar kennarann alltaf í tímum þannig að enginn
fær að fara fyrr í frímínútur. Fólk hlýtur að spyrja sig
hvernig þessir karlar nenna að vera svona vondir og
óþolandi. Geta þeir ekki allavega farið bara saman
á einhverja eyju og verið allir vondir þar? Eflaust
myndu margar ríkisstjórnir leggja pening í kaup á
slíkri eyju.
Ég held að rótin á þessum vanda liggi töluvertdýpra. Allt frá unga aldri eru börn alin uppvið það að það sé til eitthvað „gott“ og „vont“.
Sumir klikkaðir foreldrar segja krökkunum meira að
segja frá djöflinum. Satani. Kölska. Ef enginn ælist
upp við þá pælingu að almennt væri hægt eða í boði
að vera „vondur“ myndi þá nokkur maður feta þá
braut?
Ég held að lausn málsins sé mjög einföld.Hugmyndin um vonda karlinn er einfaldlegaaldrei kynnt til leiks. Í kvikmyndum framtíðar-
innar eru allir góðir, grilla saman sykurpúða og segja
„mér er annt um þig“ í staðinn fyrir að lúskra hver á
öðrum í tvo tíma. Í staðinn fyrir „guð“ og „djöfulinn“
er bara einn gúddí gæi sem er ferskur við alla og
heitir venjulegu nafni, t.d. Magnús. Eða Ingi.
Hvort tillögur mínar komi til meðað leysa vondukarlamál heimsinseða ekki verður að koma í ljós.
Mér fannst allavega nauðsynlegt að skrifa
skrýtinn pistil til þess að staðfesta þá
staðreynd að ég er skrýtinn og skrifa
minna verður ekki saknað. Ég vona líka
að vondu karlarnir í Mexíkó lesi pistilinn
og hugsi sinn gang, hætti jafnvel bara að
vera vondir.
Þá sleppa mamma og pabbiallavega við að hafa áhyggj-ur. Þau sleppa kannski
líka við að borga lausnargjald.
-Cambio y fuera.
16 Monitor fimmtudagur 9. janúar 2014
eintóM Þvæla
í belg & biðu
ljóðaflóð
Hvað ertu?
Hvað ertu í heimi milljóna manna?
Mörgþúsund eru vitrari þér,
í heimi er hver þarf sig að sanna,
skyldi nokkur muna eftir mér?
Hvað verður um spor þín í tímans
sandi?
Synd að þau líklega út muni mást,
hver mun fyrir heiður þinn bregða
brandi,
berjast fyrir orðspor þitt og þjást?
Hver verður þín
arfleið er kynslóðir
hverfa?
Köld er vöggugjöf
dauðans og hörð,
niðjarnir veraldar
eignir erfa,
andinn og sálin
grafin í jörð.
Því maður hver
mun dag einn
deyja,
dvelja í sinni
gröf og þegja.
Pétur Marteinn
Tómasson
Hvað kemur manni meira í janúargírinn heldur en
hinn myrki herra? Sá sem má ekki nefna býður upp
á allskonar óviðeigandi brandara og athugasemdir á
Twitter-síðu sinni sem vert er að fylgjast með.
eltu Þennan Sá Sem ekki má nefna
Hersir aron
ólafsson
Lorde
tennis Court
Don’t you think that it’s boring how
people talk
Making smart with their words again,
well I’m bored
Because I’m doing this for the thrill
of it, killin’ it
Never not chasing a million things I
want
And I am only as young as the
minute is full of it
Getting pumped up from the little
bright things I bought
But I know they’ll never own me
(Yeah)
---------------------
Ekki þú heldur að það er leiðinlegt
hvernig fólk talar
Gerð klár með orðum sínum aftur, og
ég er leiður
Þar sem ég er að gera þetta fyrir
unaður hennar, Killin ‘það
Aldrei ekki elta milljón hluti sem ég
vil
Og ég er bara eins og ungur eins og
mínútu er full af því
Fá dælt upp úr litlu björtu sem ég
keypti
En ég veit að þeir aldrei eiga mig
(Já)
Takk Google Translate
ísl-enskur texti