Morgunblaðið - 11.02.2014, Qupperneq 20
20 UMRÆÐANBréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2014
Lýðræðið gerir
manni stundum erfitt
fyrir. Fyrst setti það
vanhæfan forsætis-
ráðherra yfir okkur í
fjögur ár vinstri
stjórnar landsins en
líka vanhæfan borg-
arstjóra í nær fjögur
ár óstjórnar borg-
arinnar. Samt er lýð-
ræðið farsælasta leið-
in til langframa og
ber að fylgja því til streitu, því að
ella er fljótt gripið til þvingaðs
jöfnuðar, sem er og verður sósíal-
ismi.
Skoðanir kvenna í kjöri
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík fyrir næstu borg-
arstjórnarkosningar færði þrjár
samstiga konur niður listann, þar
sem þær hundsuðu afgerandi
landsfundarsamþykkt um áfram-
haldandi tilveru Reykjavík-
urflugvallar og studdu skipulags-
breytingar í borginni sem hampað
er af ríkjandi borgar-óstjórn-
arflokkum, ólíkt körlunum sem
fylgdu stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Þær tillögur SamBesta í sam-
göngumálum ganga helst út á það
að stífla umferð og að fækka bíla-
stæðum. Eðlilega standa þeir þrír
fjórðu hlutar Reyk-
víkinga sem ferðast
um á bílum gegn slíku
og reyna að finna sér
fulltrúa við hæfi til
þess að fara með um-
boð þeirra við skil-
virka stjórn borg-
arinnar.
Færum karlana
niður?
En þá fer þessi lýð-
ræðislega niðurstaða
svo fyrir brjóstið á
sumum sjálfstæðiskonum, að jafn-
vel þeim finnst eðlilegt að færa
konur upp listann, þrátt fyrir
skoðanir þeirra og athæfi, gegn
jafnræðisreglu lýðræðisins sem
við stöndum fyrir. Niðurstaðan
væri því sú, að hvaða skoðun sem
kona hefði, jafnvel gegn þeim
flokki sem hún byði sig fram fyrir,
þá bæri að færa karlana niður fyr-
ir hana vegna kynferðis þeirra,
allt í nafni jöfnuðar. Það gefur
auga leið að svo magnaðan sósíal-
isma ber ekki að líða, enda gegn
stjórnarskránni og sannarlega
gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Vandræði framundan
En samt er kjósandinn skilinn
eftir í vandræðum. Munu ofan-
greindar konur brjóta odd af of-
læti sínu og fylgja lýðræðisn-
iðurstöðu flokks síns eða verður
jafnan kurr í þeim? Mun Halldór
Halldórsson, borgarstjóraefni
Sjálfstæðisflokksins, stinga furðu-
hugmyndum sínum um þverun
Skerjafjarðar (að hætti Kolgrafa-
fjarðar) undir stól þar sem ESB-
fylgni hans á líka að vera? Getur
hann sameinað hópinn? Allir aðrir
kostir eru arfaslakir, nema komi
upp úthverfaframboð sem ýtir
hagsmunum ríkjandi 101-latte-
hópsins almennilega til hliðar.
Framsókn mun varla koma til
bjargar í borginni eins og tókst í
landsmálunum og vinstri hópar
eru í sjóræningjaleik eða að gefa
fuglum úti á miðri Hofsvallagötu.
Langt er til vors. Vonum að það
verði ekki eins og vorið var í Prag
eða hið arabíska. Við biðjum bara
um almennilega borgarstjórn.
Sumar eru jafnari en aðrir
Eftir Ívar Pálsson » Lýðræðið er farsæl-
asta leiðin til lang-
frama og því ber að
fylgja til streitu, óháð
kynferði. Þvingaður
jöfnuður er og verður
sósíalismi.
Ívar Pálsson
Höfundur er viðskiptafræðingur með
eigið útflutningsfyrirtæki.
Skv. talningu Vegagerðarinnar fara
um 10.000 bílar (5.000 hvora átt) á
milli Reykjavíkur og Keflavíkur á
dag eða 3.650.000 bílar á ári og eyða
þeir eldsneyti fyrir ca. 5.000.000.000
á ári og flytja 14-15 milljónir manna
á ári. Þessar tölur gætu kannski
tvöfaldast á næstu 20-30 árum.
Hljóðlaus, mengunarlaus hraðlest
færi þessa leið (50 km) á 12-15 mín-
útum og gæti flutt 4-5 milljónir far-
þega á ári og myndi það létta veru-
lega á umferð bíla, stytta
umferðartíma og minnka slysa-
hættu verulega. Myndi slík fjárfest-
ing borga sig á tiltölulega skömm-
um tíma. Einnig myndi þessi
fjárfesting gera flutning á flugvelli
úr Vatnsmýri auðveldari og fýsi-
legri.
Myndi kostnaður farþega einnig
verða miklum mun minni en að fara
um á eigin bílum. Er vel að umræða
er komin í gang í þjóðfélaginu um
þetta þjóðþrifamál og verður fróð-
legt að fylgjast með frekari fram-
vindu þessa máls.
RAGNA GARÐARSDÓTTIR
húsfreyja.
REY-KEF hraðlest
Frá Rögnu Garðarsdóttur
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Sveit Miðvikudagsklúbbsins
vann aðalsveitakeppni Brids-
félags Hafnarfjarðar
Sveit Miðvikudagsklúbbsins
vann aðalsveitakeppni félagsins
með 145 stig. Í sveitinni spiluðu
Magnús Sverrisson, Halldór Þor-
valdsson, Guðlaugur Sveinsson,
Hermann Friðriksson og Hlynur
Angantýsson. Í 2. sæti var sveitin
Bland.com með 143,94 stig og í 3.
sæti var sveit Gabríels Gíslasonar
með 137,83 stig.
Öll úrslit og spil er að finna á
heimasíðu félagsins www.bridge.is/
bh.
Næsta keppni félagsins er fjög-
urra kvölda aðaltvímenningur.
Bridsfélag Hafnarfjarðar spilar á
mánudagskvöldum að Flatahrauni 3,
Hafnarfirði. Spilamennska byrjar kl.
19.
Bernódus og Ingvaldur
með forystu í Kópavogi
Nú er lokið tveimur kvöldum af
fjórum í aðaltvímenningi Bridsfélags
Kópavogs og eru Bernódus Kristins-
son og Ingvaldur Gústafsson efstir
en aðeins munar 1,6% á sex efstu
pörum. Helgi Bogason og Egill
Darri Brynjólfsson fengu besta
skorið sl. fimmtudag en heildarstaða
efstu para er þessi:
Bernódus – Ingvaldur 879,8
Birkir Jón Jónss. – Guðm. Baldursson 869,4
Sigurður Sigurjónss – Ragnar Björnss.
868,1
Hjördís Sigurjónsd. – Kristján Blöndal 865,5
Árni Björnsson – Heimir Tryggvason/ Guð-
laugur Nielsen 865,3
Helgi Bogason – Egill D. Brynjólfss. 858,7
Upphafsorðin hér að
framan eru úr texta
Ólínu Andrésdóttur
um Suðurnesjamenn
enda er ekki annað séð
en að fulltrúar sveitar-
félaga á Suðurnesjum
séu að reyna að beita
brögðum til að hefta
eðlilega samkeppni í
samgöngum, miðað við
skrif þeirra í Morg-
unblaðinu síðastliðinn laugardag.
Samkeppni er undirstaða atvinnu-
frelsis og nýsköpunar þar sem sá
sem býður fram bestu lausn á örugg-
an og hagkvæman hátt, nýtur af-
rakstursins. Þjónusta við sam-
göngur er ekki undanskilin þeirri
röksemdafærslu.
Stjórnvöld leggja hömlur á
ferðaþjónustu
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
gagnrýnt framkvæmd almennings-
samgangna hér á landi og þá sér í
lagi þann þátt sem snýr að hömlum á
reglubundnum flutningum með
ferðamenn og skort á örygg-
iskröfum í almenningssamgöngum.
SAF gagnrýndu í þessu samhengi
samning Vegagerðarinnar við Sam-
tök sveitarfélaga á Suðurnesjum þar
sem sérstaklega var bent á ólögmæti
vegna einkaleyfis á akstri frá Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar til Reykjavík-
ur og öfugt, en sú leið hefur verið
rekin á samkeppnisgrundvelli þar
sem viðskiptavinum stendur til boða
góð og örugg þjónusta í tengslum við
allt flug til og frá land-
inu. SSS telja ranglega
í grein sinni að almenn-
ingssamgöngur á land-
inu öllu séu í uppnámi
enda ómögulegt að sjá
hvað því veldur.
Eðlilegt að sam-
keppni njóti sín
Í Evrópureglugerð
um almennings-
samgöngur kemur
skýrt fram að leiðir
sem reknar eru á sam-
keppnisgrundvelli fái að njóta sín án
aðkomu stjórnvalda. Evrópulönd
hafa verið að fara þessa leið og eru
þess dæmi að bæði almennings-
samgöngur og reglubundinn flutn-
ingur með ferðamenn aki á sömu
leiðum í fullkominni samkeppni. Það
er grundvallarmisskilningur hjá
fulltrúum SSS að almennings-
samgöngur séu útilokaðar frá eðli-
legri samkeppni.
Hlutverk FLE
Flugstöð Leifs Eiríkssonar er að
öllu leyti rekin af notendagjöldum
sem til koma vegna þeirrar þjónustu
sem flugstöðin býður upp á, hvort
sem um er að ræða flug eða aðra
þjónustu. FLE skilgreinir þá þjón-
ustu sem boðið skal upp á og býður
samkeppnisaðilum að sinna þeirri
þjónustu innan flugstöðvarinnar.
Það er ekkert sem mælir gegn því að
almenningssamgöngur á vegum SSS
geti verið þáttur af þeirri þjónustu
sem boðið er upp á í tengslum við
FLE þannig að þeir sem svo kjósa
geti tekið strætó frá flugstöðinni
sem tengist kerfi almennings-
samgangna. Þeir sem vilja kjósa
aðra möguleika með aukinni og
hraðari þjónustu eiga að geta haft
val um það.
Almenningssamgöngur
í þágu almennings
Það er sjálfsögð krafa skattgreið-
enda að eiga aðgang að kerfi al-
menningssamgangna og eðlilegt að
slíkt sé styrkt af stjórnvöldum þar
sem þess er þörf. Almennings-
samgöngur eru þjónusta sem al-
menningur borgar fargjald fyrir til
að ferðast innan þéttbýlis eða milli
þéttbýlisstaða. Þessi þjónusta er til
þess fallin að almenningur geti sótt
vinnu, skóla, læknisþjónustu o.fl.
sem snýr að almannaheill. Það er
eðlilegt að með afnámi sérleyfa, sem
gerðist með breytingu á lögum
haustið 2011, hafi farþegum með
strætó fjölgað en það geta SSS ekki
þakkað sér eins og fulltrúar þeirra
gera í grein sinni. Hins vegar er
hægt að benda á að allir allir íbúar
Reykjanesbæjar fá frítt í strætó á
sínu svæði og skólaferðir til Reykja-
víkur eru mikið niðurgreiddar, en
slíkt á ekki við um íbúa höfuðborg-
arsvæðisins.
Í texta Ólínu um Suðurnesjamenn
kemur fram að Unnur bauð þeim
faðm sinn svo ferleg og há, en nú
þarf Unnur og landsmenn allir að
standa í lappirnar gegn brögðum
þeirra Suðurnesjamanna og efla
þannig hag allra sem stuðla vilja að
frjálsri samkeppni.
Kunnu þeir að beita hana
brögðum sínum þá –
Samkeppni eflir allra hag
Eftir Gunnar Val
Sveinsson » Það er sjálfsögð
krafa skattgreið-
enda að eiga aðgang að
kerfi almennings-
samgangna og eðlilegt
að slíkt sé styrkt af
stjórnvöldum þar sem
þess er þörf.
Gunnar Valur Sveinsson
Höfundur er verkefnastjóri hjá Sam-
tökum ferðaþjónustunnar.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
ÍSLENSK
HÖNNUN
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
ÁLAFOSS
Álafossvegur 23, Mosfellsbær
Opið: Mánud. - Föstud. 09:00 - 18:00
Laugard. 09:00 - 16:00
www.alafoss.is