Morgunblaðið - 11.02.2014, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.02.2014, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2014 Vandaðir og vottaðir ofnar Ofnlokasett í úrvali NJÓTTU ÞESS AÐ GERA BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA FINGERS 70x120 cm • Ryðfrítt stál JAVA 50x120 cm • Ryðfrítt stál COMB 50x120 cm • Ryðfrítt stál Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem gæði ráða ríkjum á góðu verði. Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þeir sem þekkja þig í einu samhengi eiga eftir að fá hugljómun þegar þeir fá að njóta þíns líflega persónuleika til fullnustu. Einhver er að misnota vald sitt og þér líkar það ekki. 20. apríl - 20. maí  Naut Viðfangsefni í einkalífi þínu tekur á sig mynd. Fyrst heppnin er með þér er ekki úr vegi að beina athyglinni að persónu sem þú ert hugfangin/n af og sjá hvað gerist. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert búin/n að hjakka svo lengi í sama farinu að leiðindin læðast að þér. Það gæti knúið þig til þess að taka áhættu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Taktu enga meiriháttar ákvörðun án þess að hugsa hana vandlega. Oft hangir maður eins og hundur á roði á fánýtum hlut- um. Slepptu takinu og þú andar léttar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert einstaklega ráðagóð/ur hvort heldur er á sviði tækni eða annarra mála. Þess vegna er oft til þín leitað. Kannski áttu bara að sleppa hendinni af einhverju að þessu sinni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert umkringd/ur fólki sem hefur ákveðnar skoðanir á málum og þykist vita betur en aðrir. Nánustu sambönd þín eru hlý- leg og gefandi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Sambönd sem hefjast í dag verða ástríðufull og eftirminnileg. Líkaminn býr yfir sinni eigin greind, sem er djúp, ævagömul og með jafnvel meira innsæi en hugurinn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er gott að fá að ráða, þó að maður ráði bara yfir sjálfum sér. Farðu vel með það vald sem þú hefur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vísindamenn segja að það að sjá fyrir sér sé gagnleg aðferð til þess að læra að gera eitthvað nýtt. Reyndu að komast að því hvað það er sem þú vilt í raun og veru. 22. des. - 19. janúar Steingeit Varastu að rugla hlutunum saman. Ekki láta smámál á þig fá, þér líður betur inn- an sólarhrings. Um þessar mundir nálgast þú öll þín sambönd af ákafa. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Notfærðu þér þann hæfileika þinn að vera fundvís á missmíðir. Fólk sem hugsar vel til þín hefur góð áhrif á skap þitt og léttir þér lífið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nú þegar einum kafla er lokið í lífi þínu hefst nýr og þú ert óörugg/ur hið innra. Reyndu að fá þér ferskt loft til þess að fyr- irbyggja ergelsi eða hættu á smáóhöppum. Listamaðurinn Curver Thorodd-sen er með tiltektargjörning í Ketilhúsinu í Gilinu á Akureyri. Davíð Hjálmar Haraldsson veltir sýningunni fyrir sér: „Felst hún í því að allan daginn flokkar allsber lista- maður alls konar skjöl og bækur. Ég sé fyrir mér að sama vinnutilhögun yrði tekin upp á bókasöfnum: Eflaust mætti ýmsar gerðir, afbrigði og frávik sjá, þegar bústnir bókaverðir berir hlypu til og frá.“ Grétar Snær Hjartarson sendi Vísnahorninu skemmtilega kveðju að vanda: „Var að lesa Vísnahornið og þar var fjallað um vísur Rögn- valdar Rögnvaldssonar. Fram kom að í kveðskap Rögn- valds væri hláturinn aldrei langt undan. Tilfærð var vísa sem Rögn- valdur samdi eftir að hann hafði fengið hjartaáfall og fluttur nær dauða en lífi á sjúkrahús. Eftir að tekist hafði að lífga hann við orti hann skemmtilega vísu. Þetta minnti mig á vin minn Lárus Þórð- arson, góðan hagyrðing. Hann varð fyrir svipaðri lífsreynslu, fékk kransæðastíflu og var ansi hætt kominn. Um þetta hafði hann þessi orð þegar hann rankaði við sér. Ég eitthvað af meðvitund missti er mót gengu örlagaþyrnar, svo ég klappaði upp á hjá Kristi, en karl setti stól fyrir dyrnar. Allt fór þetta vel og Lárus varð allur miklu hressari, en var gert skylt að hætta að reykja vindlana sína. Hann samdi af þessu tilefni vísu og kallaði „Bjartsýni“. Nú er ég í virku vindlastraffi svo væntanlega gróa hjartasárin, en ég má drekka koníak og kaffi og kvíði engu næstu hundrað árin. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af tiltektargjörningi, nekt og Rögnvaldi Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „PANTAÐU HVAÐ SEM ÞÚ VILT, UNDIR 2.500 KRÓNUM.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hjartað er við það að springa úr hamingju. Á ekki vasaklút Vinsamlegast hjálpið EN FULLKOMINN DAGUR. FINNST ÞÉR ÞAÐ EKKI, HRÓLFUR? HELDUR BETUR! LANGAR ÞIG AÐ ELDA Í KVÖLD ... ... EÐA EIGUM VIÐ AÐ FARA ÚT AÐ BORÐA? ÉG ÞARF NÚ EKKI EINU SINNI AÐ HUGSA MIG UM ÁÐUR EN ÉG SVARA! ÞÚ ERT EKKI FUGLABAÐ. SKO! LITLIR SÓLSTÓLAR!Víkverji og aðrir stuðningsmennenska knattspyrnuliðsins Ars- enal eiga um sárt að binda eftir síð- ustu helgi. Eftir ljómandi gott gengi í vetur komu „skytturnar“ harka- lega niður á jörðina á Anfield Road í Liverpool. Víkverji man hreinlega ekki eftir því að hans menn hafi ver- ið eins grátt leiknir og fyrstu tutt- ugu mínútur leiksins og byrjaði hann þó að fylgja Arsenal að málum á áttunda áratug síðustu aldar. Það var eins og ellefu djassballerínur hefðu verið sendar út á völlinn í stað þrautþjálfaðra sparkenda, með fullri virðingu fyrir þeirri góðu stétt. Enda þótt Víkverja hafi verið þvert um geð að fara út á meðal fólks það sem eftir lifði laugardags- ins varð ekki hjá því komist, hann átti eftir að kaupa í matinn. Víkverji reyndi að vonum að hugsa um allt annað en téðan kappleik en var ekki fyrr kominn inn í kjörbúðina en hann mætti konu í Liverpool-treyju. Ekki nóg með það, hún var líka í Liverpool-jakka, í Liverpool- gallabuxum, Liverpool-sokkum og, haldið ykkur nú fast, Liverpool- inniskóm. Þetta er ekki grín. Til allrar ógæfu þekkir Víkverji þessa konu og varð fyrir vikið að heilsa henni og skiptast á fáeinum orðum. Af einhverjum ástæðum hafði hún mun meira yndi af því augnabliki en hann. Svo undarlega vill til að Liverpool og Arsenal mætast aftur um næstu helgi, nú í bikarnum. Víkverji áttar sig ekki á því hvort það er gott eða slæmt. x x x En alltaf kemur nýr dagur, meiraað segja eftir þennan svarta laugardag, og þá náði Víkverji hroll- inum heldur betur úr sér. Þökk sé fræknum sigri Aftureldingar á ÍBV í átta-liða úrslitum bikarsins í hand- bolta eftir tvíframlengdan leik. Enda þótt Víkverji sé ekki Mosfell- ingur hefur hann sterkar taugar til Aftureldingar og þessi frábæra frammistaða gat ekki komið á betri tíma. Víkverji var hreinlega að fara á límingunum á pöllunum. Hver sagði svo að fótbolti væri upphaf og endir alls í þessum heimi? víkverji@mbl.is Víkverji Guð vonarinnar fylli yður öll fögnuði og friði í trúnni svo að þér séuð auðug að voninni í krafti heilags anda. (Rómverjabréfið 15:13)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.