Morgunblaðið - 24.02.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bæjarlind 4, Kópavogur S: 554 6800
Njarðarnesi 9, Akureyri S: 466 3600 www.vidd.is
Öðruvísi flísar
Blíðskaparveðrið í höfuðborginni í gær rak
marga út úr húsum sínum til að njóta kærkomins
sólskins. Þessi fjölskylda stillti sér fremur létt-
klædd upp á ísnum á Reykjavíkurtjörn til að láta
taka mynd af sér. Berir fætur í sandölum leiða
hugann sannarlega að vorinu sem brátt kemur.
Bros í vetrarsól
Morgunblaðið/Ómar
Fjölskyldumyndataka úti á ísnum
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Í breytingartillögu um lög um stjórn
fiskveiða og lög um veiðigjöld, sem
send hefur verið hagsmunaaðilum til
umsóknar, er gert ráð fyrir því að al-
mennt og sérstakt veiðigjald falli nið-
ur að öllu leyti eða hluta á einstökum
tegundum. Þá er einnig lagt til að
Byggðastofnun hafi til ráðstöfunar
8,54 prósent af heildaraflahlutdeild í
úthafsrækju og rækju á miðum við
Snæfellsnes til að styðja byggðarlög í
alvarlegum og bráðum vanda vegna
samdráttar í sjávarútvegi.
„Byggðastofnun situr á ákveðnum
heimildum sem hafa komist til henn-
ar vegna gjaldþrota. Hér er verið að
liðka fyrir því að stofnunin geti átt
þessar heimildir og deilt þeim út í
byggðalegum tilgangi,“ segir Jón
Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins og formaður atvinnuvega-
nefndar Alþingis.
Einnig er lögð til sérstök veiði-
skylda á úthafsrækju og er með því
verið að leitast við að koma í veg fyrir
að útgerðir sitji á aflaheimildunum
án þess að nýta þær. „Með þessu von-
umst við til þess að aflaheimildirnar
leiti til þeirra sem eru í vinnslu og
vilja og geta nýtt þær,“ segir Jón.
Betri nýting auðlindarinnar
Almennt og sérstakt veiðigjald
verður afnumið á þorsk og meðafla
hans í rússneskri og norskri lögsögu,
á úthafskarfa í Síldarsmugunni, á
Dhornbanka-rækju, úthafsrækju og
rækju á miðum við Snæfellsnes og á
sæbjúgum, vegna fiskveiðiársins
2013/2014. Þá fellur helmingur veiði-
gjalds af kolmunna niður á sama
tíma. „Útgerðir sjá ekki hag í því að
veiða sumar tegundir því bæði getur
verið dýrt að sækja á mið eins og
Smuguna og Barentshafið og verð-
mæti í öðrum tegundum standa ekki
undir veiðigjaldinu sem leggst ofan á
allan annan kostnað útgerða,“ segir
Jón og bendir á að Íslendingar verði
af nærri því 3 þúsund tonnum af
þorski vegna samninga við Rússland
þar sem það borgi sig ekki að sækja
hann með veiðigjaldinu. „Til að halda
veiðireynslu okkar bæði í Smugunni
og Barentshafi verður veiðigjaldið af-
numið tímabundið þar.“ Jens Garðar
Helgason, markaðsstjóri Eskju á
Eskifirði, vonast til þess að veiði-
gjaldið verði einnig lagt niður að fullu
á kolmunna en ekki bara lækkað um
helming. „Að frádregnum olíu- og
launakostnaði sitja eftir þrjár til
fimm milljónir eftir níu daga kolmun-
natúr en þá á eftir að greiða átta til
níu milljóna króna veiðigjald. Ég hef
ekki séð frumvarpið en mér finnst
skjóta skökku við að ganga ekki alla
leið með kolmunnann eins og hinar
tegundirnar,“ segir Jens.
Veiðigjaldið dregur úr veiðum
Stefnt að betri nýtingu sjávarauðlinda með tímabundnu afnámi veiðigjalds á einstaka tegundir
Byggðastofnun fær heimild úthlutunar rækjukvóta sem gekk til hennar við gjaldþrot fyrirtækja
Jón
Gunnarsson
Jens Garðar
Helgason
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Sonurinn er líkur mér og ég sæki
margt til móður minnar. Eftir það
fara einkenni og ættarsvipur að
þynnast út,“ segir Ragnar Þór
Baldursson sem býr í Garðinum
suður með sjó. Langamma Ragn-
ars, Guðrún Guðmundsdóttir sem
býr á Álftanesi, varð 85 ára á
laugardaginn og af því tilefni var
fimm ættliðum hóað saman í
myndatöku. Saman voru komin
Ragnar og óskírður sonur þeirra
Erlu Óskar Ingibjörnsdóttur,
Ragnheiður Ragnarsdóttir amma
hans, þá Shirley Anna Felton sem
er amma hins nýbakaða föður og
loks Guðrún sem er langa-
langamma drengsins unga.
Guðrún og maður hennar, langa-
langafinn Reynir Guðbjörnsson,
búa á Álftanesi. „Þau hafa átt far-
sælt líf og afkomendurnir eru alls
23,“ segir Ragnar. Hann bætir við
að sonurinn dafni vel og almennt
þyki sér föðurhlutverkið spennandi.
sbs@mbl.is
Ættarsvipurinn þynnist út
Fimm ættliðir
hittust Þriggja
vikna og 85 ára
Fimmfalt Frá vinstri talið; Ragnar Þór Baldursson með soninn, þá Ragn-
heiður Ragnarsdóttir, Shirley Anna Felton og Guðrún Guðmundsdóttir.
Maðurinn sem var fluttur alvarlega
slasaður á gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi eftir bílslys á
Sæbraut aðfaranótt sunnudags er á
batavegi. Samkvæmt upplýsingum
frá lækni á gjörgæsludeild er mað-
urinn úr lífshættu. Hann verður þó
áfram undir eftirliti á deildinni.
Maðurinn, sem er á fertugsaldri,
ók bifreið sinni eftir Sæbraut í
Reykjavík þegar hann missti
skyndilega stjórn á henni skammt
frá Snorrabraut með þeim afleið-
ingum að hún skall á kyrrstæðri
gröfu sem var við veginn. Slysið
varð á þriðja tímanum í fyrrinótt.
Farþegi í bílnum, kona á þrítugs-
aldri, slasaðist einnig en meiðsl
hennar voru ekki jafnalvarleg.
Lögreglan segir að maðurinn sé
grunaður um ölvun við akstur.
Lögreglan Grunur leikur á ölvun við akstur.
Úr lífshættu eftir
árekstur á Sæbraut
á sunnudagsnótt
Íslenskar útgerðir hafa stundað
veiðar á kolmunna um alllangt
árabil. Stærstur hluti aflans er
veiddur í færeyskri lögsögu sem
þýðir að sóknarkostnaður er
mjög mikill. Kolmunnaaflinn
hefur verið frá 150 til 250 þús-
und tonn en var einungis 5.882
tonn árið 2012 og 63.056 tonn
árið 2013. Útgefið magn í ár er
150 þúsund tonn.
Langt að
sækja aflann
KOLMUNNAVEIÐAR