Morgunblaðið - 24.02.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.02.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Heimalestur Mikilvægi yndislesturs er mikið og heimalestur barna er eitt aðalatriðið í þjálfun lesskilnings. í Morgunblaðinu 6. desember sl. að hugsanlega værum við foreldrarnir sökudólgarnir í minnkandi lestri, héldum bókum alltof lítið að börnum. Það kom fram í máli Illuga Gunnars- sonar menntamálaráðherra að lykil- atriði í lestrarfærni barna og ung- linga væri æfingin heima, það sem fram færi á heimilinu væri svo mikil- vægt, „því þó heimanám hafi minnkað og skólanámið fari að mestu leyti fram í skólanum, er ekki verið að segja að það eigi ekki að lesa heima“. Ragnheiður Gestsdóttir ræddi einnig um mikilvægi fyrirmynda og þá sér- staklega karlfyrirmynda fyrir strák- ana sem væru í meiri vanda en stúlk- ur. „Reynslan sýnir hins vegar að karlar lesa minna en konur,“ og því til sönnunar nefndi Ragnheiður hversu erfitt hafi verið að finna mynd af karl- manni að lesa en að því þurfti hún að leita fyrir glærusýningu sem fylgdi erindi hennar í Norræna húsinu. „Ég fann hins vegar nóg af myndum af konum að lesa.“ Ragnheiður nefndi að glæða mætti áhugann með því að láta fyrirmyndir stíga fram og segja frá sinni uppáhaldsbók úr æsku. „Þetta getur verið hárgreiðslukonan, íþróttaþjálfarinn eða bæjarstjórinn.“ Hér væri ekki síður mikilvægt að lesa fyrir börn og með börnum og þannig aðstoða þau við að finna bókina sem er lykill að lestraráhuga. Styrkja þarf ýmsar stoðir Málþingið kom ekki síður inn á vandann heimafyrir, ekki væru allir í stakk búnir til þess að lesa fyrir börn sín né aðstoða við heimanám og ynd- islestur. Amal Tamimi, framkvæmda- stýra Jafnréttishúss, ræddi um vanda foreldra af erlendum uppruna sem fá ekki sama tækifæri til íslenskunáms og börnin þeirra og fjarlægðina sem skapast á milli þegar börnin fá ekki örvun á sínu móðurmáli. Þau verði hálftyngd á sínu eigin móðurmáli í stað þess að vera tvítyngd. Þá sagði Snævar Ívarsson hjá Lesblindufélag- inu frá reynslu sinni úr skólakerfinu af því að vera lesblindur og vakti máls á því að í niðurstöðum PISA væri of mikið horft á það sem miður færi. „Ég vil að það sé meira horft á það sem vel er gert.“ Þetta tengdi Snævar við eigin reynslu, en hann var framúrskarandi teiknari og smiður í grunnskóla en af því að hann glímdi við lesblindu og náði ekki tilætluðum bóklegum árangri átti hann ekki farsæla grunn- skólagöngu. Jóhann Geirdal, skóla- stjóri í Holtaskóla í Reykjanesbæ, sagði frá því hvernig skólinn hefur komið til móts við foreldra sem ekki geti þjálfað börnin sín heima, en þar er lögð áhersla á að börnin æfi sig heima, m.a. í lestri og að þau sjái og skynji að lestur skipti máli, meðal annars í fyrirmyndunum heimafyrir. Auk þess að bjóða upp á námskeið til að styrkja foreldra sem þjálfara var farið af stað með verkefnið Lestrar- ömmur, þar sem sjálfboðaliðar úr röðum eldri borgara, fyrst og fremst konur, komu inn í skólann og aðstoð- uðu þau börn sem þurftu aðstoð við lestur. Lestur Jóhann Geirdal, skólastjóri Holtaskóla, segir skólann leggja áherslu á þjálfun foreldra til að þjálfa börn sín. Þar komi lestrarömmur sterkt inn. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014 Hópur írskra og íslenska skáta kom til landsins í liðinni viku til að taka þátt í Vetraráskorun skáta – eða Vetraráskorun Crean, eins og hún er einnig kölluð. Verkefnið er kennt við írska pólfarann Tom Crean, sem meðal annars tók þátt í heimskauts- ferðum Scotts fyrir um einni öld. Þetta er í þriðja sinn sem þetta samstarfsverkefni íslenskra skáta, írskra skáta og Landsbjargar fer fram hérlendis. Alls tóku 43 krakkar á aldrinum 14-16 ára þátt að þessu sinni, auk fararstjóra, leiðsögu- manna og hjálparliðs. Írsku skátarnir komu til landsins á sunnudagskvöld og dvöldu hér með íslensku skátunum í viku. Sameinaður hópurinn dvaldi á Úlf- ljótsvatni en á fimmtudag var haldið á Hellisheiði þar sem gist var í snjó- húsum og fjallaskálum. Á dagskrá vikunnar var meðal annars rötun við erfiðar aðstæður, fyrsta hjálp á fjöllum, snjóhúsagerð, dvöl í hellum, tjaldbúðir á fjöllum og bátsferð. Auk alls þessa fengu þátttakendur heim- sókn frá Leifi Erni Svavarssyni Eve- restfara og heimsókn frá fulltrúum Hundasleðafélags Íslands. Þessi vika er hápunktur Vetrar- áskorunarinnar en hóparnir hafa æft hver í sínu landi og byggt sig upp fyrir þessa samverustund. Ís- lenski hópurinn var á helg- arnámskeiði í lok nóvember í úti- ferðamennsku og um miðjan janúar fór hann í gönguferð á Hellisheiði og gisti í tjöldum. Færri komust að en vildu Auk ferðanna hafa þátttakendur unnið verkefni á sviði vetrarferða- mennsku, sjálfskoðunar, markmiðs- setningar og samfélagsvinnu. Gerð- ar eru miklar kröfur um verkefnaskil, þátttöku og áhuga. Markmið Vetraráskorunarinnar er að gera þátttakendur færa um að bjarga sér í vetrarferðum á fjöllum. Þeir læra undirstöðuatriði fjalla- ferða og vetrarferðamennsku. Með- al annars er kennd skyndihjálp á fjöllum, rötun og kortalestur, GPS, næringarfræði ferðamannsins, góðir siðir í skálum og ferðareglur í hóp- ferðum og veðurfræði á fjöllum. Tuttugu manns á aldrinum 14-16 ára voru í íslenska hópnum og segir Guðmundur Finnbogason, verkefnis- stjóri Vetraráskorunarinnar, að færri hafi komist að en vildu. Um- sækjendur þurftu töluvert að hafa fyrir að komast í hópinn með um- sóknum og síðan auðvitað að sanna sig þegar á hólminn var komið. Hressandi vetraráskorun hjá skátunum Vindur Það gustaði um skátana þegar þeir tókust á við vindinn í vikunni. Hundasleðar, snjóhúsagerð, dvöl í hellum og fleira flott Skátar Þeir læra m.a. að takast á við veturinn og að klæða sig eftir veðri. Hið sígilda ljóð Þórarins Eldjárn „Bók í hönd“ prýðir bókamerki sem Lions dreifir til allra 10 ára barna í 10 ára lestrarátaki sínu. Á leikskólanum Tjarnarseli í Reykjanesbæ er lestrarverkefni með þetta sama ljóð í forgrunni. Í ljóðinu má skynja hversu mikil upplifun og ævintýri það er að taka bók í hönd: Bók í hönd og þér halda engin bönd. Bók í hönd og þú berst niður á strönd. Bók í hönd og þú breytist í önd. Bók í hönd og beint út í lönd. Upplifun og ævintýri BÓK Í HÖND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.