Morgunblaðið - 24.02.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.02.2014, Blaðsíða 23
fjarðar virtist framtíðin björt og áhyggjulaus. Fljótlega var von á erf- ingja og námið var tekið fastari tök- um. En lífið er margslungið og óút- reiknanlegt. Unnustinn lendir í slysi og deyr í kjölfarið. Ég stend ein uppi komin átta mánuði á leið en vegna frábærs stuðnings og elsku frá bæði eigin fjölskyldu og tengdafjölskyldu tókst einhvern veginn að yfirstíga sorgina og halda áfram með lífið. Fer einstæð móðir með litla 5 ára stelpu í áframhaldandi söngnám til London. En örlögin gripu aftur í taumana og við stoppum ekki lengi þar. Fer heim til þess að vera hjá föður mínum sem barðist við krabbamein sem honum tókst ekki að sigrast á. „Ég fer í Tónlistarskólann í Reykjavík og verð svo lánsöm að fá Rut Magnússon sem kennara. Á sama tíma kom yndislegur maður inn í líf okkar mæðgnanna. Ástin var mætt í annað sinn.“ Kennir og syngur víða „Ég kenni við Söngskólann Domus vox þar sem Margrét Pálma- dóttir er skólastjóri en hún var ein- mitt líka í Öldutúnsskólakórnum. Ég hef verið í kjarnakór Íslensku óp- erunnar síðan hann var stofnaður fyrir nokkrum árum og hleyp þess á milli í forfallakennslu í grunnskóla. Lengst af hef ég starfað innan kirkjunnar, sungið við allar athafnir þar og var lengi í Bústaðakirkju og Lágafellskirkju. Svo hef ég sungið mikið einsöng í Domus vox og tekið þátt í fjöldamörgum óperum. Nú er ég á fullu að syngja í óp- erunni Ragnheiði eftir Gunnar Þórð- arson, en frumsýning á henni verður 1. mars í Hörpunni. Í dag er ég hamingjusöm þriggja barna móðir með eiginmann við hlið mér og á einn stjúpson sem er búinn að gera mig að tvöfaldri ömmu. Dótt- ir mín litla er komin í framhaldsnám í söng til Vínar. Ég á öflugan vinkvennahóp sem hefur fylgt mér frá því í grunnskóla og er algjörlega ómissandi þáttur í mínu lífi. Lífið er yndislegt og ég nýt þess að vera með fjölskyldunni og syngja.“ Fjölskylda Eiginmaður Hönnu Bjarkar er Ólafur Valgeir Guðjónsson, f. 19.1. 1958, grunnskólakennari. Foreldrar hans eru Guðjón Ingólfsson, f. 14.9. 1912, d. 22.10. 1993, verkamaður og fiskmatsmaður í Hafnarfirði, og Að- alheiður Frímannsdóttir, f. 6.1. 1923, d. 30.4 2008, verkakona í Hafnarfirði. Fyrri maki Hönnu Bjarkar var Birg- ir Grétarsson. Börn Hönnu Bjarkar eru Björg Birgisdóttir, f. 30.11. 1987, hún er í söngnámi í Vín, Austurríki; Guðjón Heiðar Ólafsson, f. 27.5. 1997, nemi; Bergur Ingi Ólafsson, f. 9.3. 2000, grunnskólanemi. Stjúpsonur Hönnu Bjarkar er Andri Már Ólafsson, f. 4.4. 1981, tölvunarfræðingur hjá Creditinfo, maki hans er Birna Friðfinnsdóttir. Barnabörn Hönnu eru Katrín Inga og Friðfinnur. Bróðir Hönnu Bjarkar er Sig- urður Páll Guðjónsson, f. 14.4. 1962. Foreldrar Hönnu Bjarkar eru Guðjón Ingi Sigurðsson, f. 8.2. 1941, d. 3.7. 1994. leikari, leikstjóri og sýn- ingarstjóri í Þjóðleikhúsinu, og Jóna Sigrún Harðardóttir, f. 18.10. 1943, skrifstofumaður, bús. í Hafnarfirði. Úr frændgarði Hönnu Bjarkar Guðjónsdóttur Hanna Björk Guðjónsdóttir Þórey Kristjana Kristjánsdóttir Fjeldsted húsfreyja og vinnukona í Hrútafirði Guðmundur Gísli Ísleifsson bóndi og vinnumaður í Hrútafirði Jóhanna Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Hörður Sigfússon járnsmiður og bifvélavirki í Reykjavík Jóna Sigrún Harðardóttir skrifstofumaður í Hafnarfirði Jóna Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sigfús Ágúst Guðnason bóndi í Reykjavík Veronika Borgarsdóttir húsfreyja í Þverdal Guðni Ísleifsson bóndi í Þverdal í Aðalvík Karólína Pálína S. Guðnadóttir skólastjórafrú í Garðabæ Sigurður Jóhann Guðjónsson stýrimaður á Ísafirði Guðjón Ingi Sigurðsson sýningarstjóri í Þjóðleikhúsinu Ingibjörg Eiríksdóttir húsfreyja á Ísafirði Guðjón Sigurðsson skósmiður og verkstjóri á Ísafirði Il trovatore Mæðgurnar í nunnukór. ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014 Sveinbjörn Egilsson, rektor ogskáld, fæddist 24.2. 1791 íInnri-Njarðvík í Gull- bringusýslu. Foreldrar hans voru Egill Sveinbjarnarson, bóndi og hreppstjóri í Innri-Njarðvík, og k.h. Guðrún Oddsdóttir. Egill var ekki af miklum ættum en var þó efnaður og sendi son sinn í fóstur til Magnúsar Stephensen konferensráðs. Svein- björn gekk aldrei í Latínuskólann en lærði hjá Magnúsi og ýmsum öðrum og varð stúdent úr heimaskóla Árna Helgasonar árið 1810. Sveinbjörn komst ekki í háskóla strax vegna ófriðar, en hóf 1814 guð- fræðinám við Hafnarháskóla, sem hann lauk árið 1819. Við komu sína aftur til Íslands fékk hann kennara- stöðu við Bessastaðaskóla, en þegar skólinn flutti til Reykjavíkur var hann gerður rektor. Hann var því fyrsti rektor Lærða skólans í Reykjavík. Aðalkennslugrein hans var forngríska. Hann var árið 1843 sæmdur doktorsnafnbót í guðfræði af háskólanum í Breslau, en sú borg er nú í Póllandi og heitir Wroclaw. Hann var einn af stofnendum Forn- fræðafélagsins og aðalstarfsmaður þess. Sveinbjörn orti bæði á íslensku og latínu en þekktastur er hann fyrir þýðingar sínar á Ódysseifs- og Ilíons- kviðu. Hann þýddi ritið Menón eftir Platón, vann að Biblíuþýðingum og þýddi líka Íslendingasögurnar á lat- ínu. Sveinbjörn var viðriðinn pereatið svokallaða sem var framlag Íslend- inga til byltingasögu 19. aldarinnar í Evrópu. Forsagan var sú að hann vildi þröngva skólapiltum til að ganga í bindindisfélag skólans. Þeir gengu þó flestir fljótlega úr félaginu. Svein- björn var ósáttur við það og flutti þeim harða skammarræðu í byrjun árs 1850. Skólapiltar brugðust við með því að heimsækja rektor og hrópa pereat, sem þýðir niður með hann! Hann lét ári síðar af störfum. Sveinbjörn var giftur Helgu Grön- dal, dóttur Benedikts Gröndals yfir- réttardómara. Meðal barna þeirra var Benedikt Gröndal skáld. Sveinbjörn lést 17.8. 1852. Merkir Íslendingar Sveinbjörn Egilsson 90 ára Karl Jónatansson 85 ára Elísabet Finnsdóttir Guðmundur Magnússon Óskar Guðmannsson 80 ára Einar Emil Finnbogason Eva Jóhannsdóttir Guðbjörg Birna Ólafsdóttir Hilmar Snær Hálfdánsson Ragnar H. Þorsteinsson 75 ára Hulda Guðmundsdóttir Una Anna Guðlaugsdóttir 70 ára Jóna Herdís Hallbjörns- dóttir Loftur Bjarnason Sigurjón Jónsson 60 ára Helgi Pálmason Kristján Friðriksson Marek Maciej Ugorenko Rafn Sigþórsson Sigurður Svavarsson 50 ára Arnbjörn Helgi Sævarsson Camilla Kristjánsdóttir Guðfinna S. Kristjáns- dóttir Guðmundur B. Hauksson Guðrún Pálína Sveinsd. Kröyer Hrafnhildur L. Stein- arsdóttir Ingibjörg Gunnarsdóttir Magnús Árnason Njörður Helgason Sigrún María Ingimund- ardóttir Steven James Dolan 40 ára Alicja Ewa Przygoda Dýrfinna V Kristjánsdóttir Halldór Þórisson Helena Supee Jaimon Hörður Þráinsson Lilja Dröfn Sæmunds- dóttir Mai Thi Bui Robert Stanislaw Makowski Sylwia Mucha Tryggvi Einarsson Ægir Örn Guðmundsson 30 ára Bryndís Rán Birgisdóttir Daníel Rúnarsson Krystyna Mackiewicz Ninh Van Nguyen Otri Smárason Quang Van Nguyen Sigurjón Jónsson Stella Davíðsdóttir Svavar Stefánsson Þorsteinn Guðnason Til hamingju með daginn 30 ára Hrólfur býr í Mos- fellsbæ, fæddur þar og uppalinn, og er bifvéla- virkjameistari. Maki: Freydís Péturs- dóttir, f. 1989, sjúkraliði. Börn: Hrafnhildur Dagný, f. 2011, og Svandís Eva, f. 2012. Foreldrar: Halla Reynis- dóttir, f. 1955, vinnur hjá Íslandspósti, og Árni Hrólfsson, f. 1954, húsa- smíðameistari, bús. í Reykjaseli í Flóa. Hrólfur Árnason 30 ára Vignir býr á Litlu- flöt í Rangárþingi ytra. Hann vinnur við ýmiss konar jarðvinnu. Maki Elín Dögg Arnars- dóttir, f. 1983, vinnur í efnalaug. Börn: Sigurbjörg Helga, f. 2004, Daníel Óskar, f. 2006, og Freyja Dögg, f. 2011. Foreldrar: Þorsteinn Ingvarsson, f. 1959, og Hanna Einarsdóttir, f. 1960, vinna í efnalaug. Vignir Freyr Þorsteinsson 30 ára Signý er Reykvík- ingur, stærðfræðingur að mennt og vinnur hjá Arion banka. Maki: Leon Már Haf- steinsson, f. 1983, vinnur hjá Vífilfelli. Börn: Natalía Rán, f. 2005, og Emilía Brá, f. 2010. Foreldrar: Ólafur Njáll Sigurðsson, f. 1958, fjár- málastjóri hjá Sjóvá, og Birna Hildur Bergsdóttir, f. 1959, sérkennslustjóri. Signý Ólafsdóttir Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón                                    

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.