Morgunblaðið - 24.02.2014, Side 4

Morgunblaðið - 24.02.2014, Side 4
VIÐTAL Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Það er dapurlegt hvað það er mikið alvöruleysi í þessum skipulagsmálum hjá okkur Íslendingum. Þetta fer út og suður og eins og menn gleymi því hér á landi að skipulag er mjög flókið og mikið al- vörumál og kemur inn á mjög mörg svið mannlífsins,“ segir Gestur Ólafs- son, arkitekt og skipulagsfræðing- ur, en hann hefur m.a. áhyggjur af þróun skipulagsmála í Reykjavík. „Við þurfum að nota bestu tiltæka þekkingu til þess að ráða fram úr skipulagsmálunum og leita þekking- ar hjá fólki sem veit um hvað málið snýst, ef við gerum það ekki súpum við bara seyðið af því seinna.“ Fær pólitíkin að ráða of miklu? „Það er ekki bara pólitík sem er hluti af þessu heldur að það halda all- ir, jafnvel bara fólk sem kann að teikna, að þeir geti búið til skipulag sem er þokkalegt. Þá á ég ekki síst við kollega mína arkitekta og aðra sem geta búið til fallegar myndir. Arki- tektúr er líka allt annað en skipulags- fræði, hann fjallar fyrst og fremst um hús og byggingar en faglega unnið skipulag er miklu flóknara, það fjallar m.a. um æskilega og framkvæman- lega framtíðarþróun, hagfræði, fé- lagsfræði og verkfræði. Það eru ákveðin kerfi í borgum sem þurfa að virka eins og t.d samgöngu- og frá- veitukerfi. Það er grundvallaratriði að vita hvernig borg virkar og hvaða afleiðingar ákveðnar ákvarðanir hafa,“ segir Gestur. Ekki gerbreyta yfirbragði Hann er ekki sérstaklega hrifinn af þeim turnum sem á að fara að byggja bráðlega við Skúlagötuna. „Það er löngu vitað hvaða áhrif átján hæða turnar hafa á lágreista aðliggjandi byggð. Samt gerum við þetta og hvað á svo að gera fyrir fólkið sem á fast- eignir þarna allt í kring sem falla í verði út af þessu? Hver fermetri á fyrirhuguðum þéttingasvæðum borg- arinnar á svo að kosta á milli 400.000 kr. til 500.000 kr. Hverjir hafa efni á þessu? Það er ekki ungt fólk sem sár- vantar íbúðir sem fyrsta á þokkalegu verði. Þetta er það sem sveitarstjórn- ir eiga að taka á.“ Gestur segir yfirbragð byggðar- innar skipta miklu máli og það eigi ekki að víkja mjög mikið frá því yf- irbragði sem fyrir er. „Það eru marg- ir sem halda því fram að endurnýjun gamalla miðbæja með miklu stærri byggingum en voru þar fyrir sé af hinu vonda, vegna þess að við erum oft í dag að vinna með miklu stærri mannvirki en þar eru fyrir. Þess vegna er mjög góð stefna að fara var- lega í að troða þessum stóru eining- um inn í gömul hverfi. Það er betra að vera með þessar stóru einingar úti í kantinum í byggðinni heldur en að setja þær niður í gömul hverfi með öllu því sem þeim fylgir.“ Gestur gagnrýnir að nú eigi ekkert að byggja austan Elliðaáa, aðeins fyr- ir vestan þar sem mikið dýrara er að byggja. „Þetta getur hjálpað til að halda uppi fasteigna- og lóðaverði vestan Elliðaá en eykur varla fram- boð á ódýrum íbúðum. Maður hefði heldur búist við því af vinstrimönnum að þeir væru að leita að ódýrum lóð- um og ódýrum byggingamöguleikum fyrir fólk í staðinn fyrir að vera að halda þessu takmarkaða framboði.“ Stjórnlaus hótelþróun Þá finnst Gesti skipulag varðandi gistirými í borginni allt að því stjórn- laust, það megi nánast opna hótel hvar sem er sem bjóði upp á allskonar vandamál m.a. varðandi aðkomu stórra flutningabíla eða rúta sem teppa umferð um miðbæinn. „Það er ansi mikið alvörumál ef þú býrð í ró- legu íbúðarhverfi og það er allt í einu komið veitingahús eða hótel í næsta hús. Skipulag á ekki að vera til þess að hlutirnir gangi svona einhvern veginn áfram heldur að fólk hafi ákveðna vissu fyrir hvernig þess næsta umhverfi verður. Þeir sem eru að skipuleggja eiga að hugsa fyrst og fremst um almennan rétt fólks á við- komandi svæði, um hag íbúanna og skynsamlega stefnu til framtíðar.“ Morgunblaðið/Ómar Gamli og nýi tíminn Gestur segir að háir turnar í lágri byggð geti lækkað fasteignaverð húsanna sem voru þar fyrir. Dapurlegt alvöruleysi í skipulagsmálum  Fasteignir í kringum háa turna í miðbænum falla í verði Gestur Ólafsson 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is TENERIFE Skelltu þér í sólina til 4. eða 18. mars Frá kr. 152.900 m/allt innifalið B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Kr. 169.900 Netverð á mann frá kr. 169.900 á Villa Adeje Beach m.v. 2 fullorðna í stúdíó með allt innifalið. 4. mars í 14 nætur. Kr. 152.900 Netverð á mann frá kr. 152.900 á Adonis Isla Bonita m.v. 2 fullorðna í herbergi með allt innifalið. 18. mars í 10 nætur. Síðustu sætin til Tenerife í mars Frábært sértilboð í sólina Ekki kemur til þess fyrsta kastið að draga þurfi úr framleiðslu í járn- blendiverksmiðju Elkem á Grundar- tanga, þrátt fyrir að starfsmenn þar sem aðild eiga að Verkalýðsfélagi Akraness séu farnir í yfirvinnubann. „Auðvitað getur komið til þess að við þurfum eitthvað að hægja ferðina en svo verður ekki fyrsta kastið,“ segir Einar Þorsteinsson, forstjóri Elkem á Íslandi. Yfirvinnubann starfsmanna Elkem tók gildi á hádegi í gær. Aðgerðirnar koma í framhaldi af því að Verkalýðs- félag Akraness felldi á dögunum ný- gerðan kjarasamning á almenna markaðnum eins og fleiri félög gerðu. Samningar í milli nokkurra þeirra og SA náðust í sl. viku á grundvelli inn- anhústillögu Ríkissáttasemjara. Ak- urnesingar gengu hins vegar ekki að henni. Rösklega 130 manns sem aðild eiga að VLA starfa hjá Elkem á Grund- artanga.Vilhjálmur Birgisson, for- maður Verkalýðsfélags Akraness, telur að yfirvinnubannið muni fljótt segja til sín. „Þetta veltur á því hvernig veikindi og annað slíkt sem mætt er með yfirvinnu þróast. Því mun fljótt á bannið reyna,“ segir Vil- hjálmur. Um hugsanlega lausn deild- unnar segir Vilhjálmur að málið sé hjá Ríkissáttasemjara og gerir hann ráð fyrir því að samningsaðilar verði boðaðir að borðinu síðar í vikunni. Samningsréttur tekinn af Vilhjálmur segir að meðal sinna manna hjá Elkem sé einhugur í þessu máli. Afstaða starfsmanna Norðuráls sé svipuð, en kjarasamningar þeirra eru lausir í lok þessa árs. Deiluefnið segir hann í grunninn vera að sér- samningar gildi um stóriðjuna. „ASÍ og SA gerðu samræmda launastefnu sem kvað á um að allir skyldu taka sömu launahækkunum óháð getu hverrar greinar fyrir sig og með því er verið að taka samningsrétt af þess- um aðilum,“ segir formaður VLA. sbs@mbl.is Telja að fljótt muni á yfirvinnubannið reyna Morgunblaðið/Sigurður Bogi Grundartangi Verkamenn í járn- blendinu eru í kjaraaðgerðum.  Framleiðsla Elkem er óbreytt Guðni Einarsson gudni@mbl.is Líflegar umræður urðu um gjald- töku á ferðamannastöðum á mál- þingi Landssamtaka landeigenda á Íslandi. Málþingið var haldið í kjöl- far aðalfundar landssamtakanna 20. febrúar sl. á Hótel Sögu. Góð mæt- ing var á fundinn og eins málþingið. „Við erum ekkert á móti náttúru- passa,“ sagði Örn Bergsson frá Hofi í Öræfum, formaður Landssamtaka landeigenda. „Við höfum bent á aðra leið. Hún er sú að strax verði farið í að innheimta gjald á þessum stóru fjölsóttu ferðamannastöðum. Svo væri hugsanlegt að taka eitt- hvert komugjald til landsins eða hækka flugvallaskatt, fara einfalda leið til að fjármagna minni staði. Við útilokum ekki eitt eða neitt í þessu.“ Fulltrúar landssamtakanna fóru á fund Ragnheiðar Elínar Árnadótt- ur, ráðherra ferðamála, og gerðu henni grein fyrir því að ýmsir fjöl- sóttir ferðamannastaðir væru í einkaeigu. Ríkið gæti ekki selt að- gang að einkalöndum í gegnum náttúrupassa nema með sam- komulagi við viðkomandi eigendur. Í framhaldi af því fengu lands- samtökin að tilnefna fulltrúa í sam- ráðshóp um gjaldtöku af ferða- mönnum. Endurskoðun þjóðlendulaga Landssamtök landeigenda á Ís- landi eru nú að hefja sitt áttunda starfsár. Örn sagði það verða helsta baráttumál samtakanna á þessu ári að fá endur- skoðunar- ákvæði tekið inn í þjóð- lendulögin. Ákvæðið heim- ilaði endur- upptöku mála ef ný gögn kæmu fram sem sönnuðu eignarrétt á landi sem dæmt hefði verið sem þjóðlenda. Örn sagði í ræðu sinni á aðalfund- inum að kröfugerð fjármálaráð- herra í Mýra- og Borgarfjarðar- sýslu ylli miklum vonbrigðum. Hún gengi lengra en kröfugerð ríkisins í Skagafirði og í Húnavatnssýslum. „Farið er langt inn á eignarlönd jarða þrátt fyrir að heimildir um eignarrétt megi rekja um margra alda skeið og úrlausnir dómstóla um eignarrétt að engu hafðar,“ sagði Örn. Landssamtökin munu fylgjast grannt með vinnu við nýju náttúru- verndarlögin, að sögn Arnar. Sem kunnugt er hefur gildistöku þeirra verið frestað til 1. júlí á næsta ári. Í millitíðinni á að fara fram vinna við endurskoðun laganna og bindur Örn miklar vonir við hana. Landssam- tökin mótmæltu lagasetningunni harðlega á sínum tíma, líkt og mörg önnur félagasamtök. „Frumvarpið var sérsmíðað fyrir þann hóp manna sem telur sig hafa einkarétt á skoðunum á náttúruvernd á Ís- landi,“ sagði Örn á aðalfundinum. Hafa þarf samráð við landeigendur  Ríkið geti ekki selt aðgang að einkalandi í gegnum náttúrupassa Morgunblaðið/Kristinn Geysir í Haukadal Laðar sannarlega að margan ferðamanninn. Örn Bergsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.