Morgunblaðið - 24.02.2014, Síða 9

Morgunblaðið - 24.02.2014, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014 Ta kt ik / 38 79 / no v 12 Pöntunarsími: 535 1300 Allt fyrir verslanir Draghálsi 4 - 110 Reykajvík Sími: 535 1300 - Fax: 535 1305 - verslun@verslun.isFjöldi samsetningarmöguleika Heildstæð ráðgjöf þegar um er að ræða hönnun á verslunarplássi. Verslunartækni býður alla hluti sem góð verslun þarf að hafa. Aðeins hágæða merki. Grænmetishillur Innkaupavagnar - ýmsar stærðir Kæli- og frystitæki Framstillingakælir - 5 stærðir. Einn vinsælasti kælirinn í dag. Kælir - 370 ltr. - +2/+12 - LED lýsing - Stærð 2015 x900 x 840 Lagervagn með körfu Kæli- og frystiklefar burðargeta 2,3 tonn Verslunarhillur Kassaborð Kjöt- og fiskborð Brettatjakkur Tilboðsskilti innkaupakörfur Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, lögg. verðbr.- og fasteignasali, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hrl. sigurdur@kontakt.is H a u ku r 1 .1 4 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is Heildverslun með vörur fyrir stórmarkaði (non-food). Ársvelta 100 mkr.• Góð EBITDA. Hentar vel sem viðbót hjá heildverslun með svipaðar vörur. Rógróið þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði sem annast m.a. steinslípun í• nýbyggingum. Góð verkefnastaða og ágætur hagnaður. Tilvalið tækifæri fyrir duglegan mann með verkstjórnarhæfileika að fara í eigin rekstur. Þrír starfsmenn auk eiganda. Auðveld kaup. Áratuga gömul og þekkt sérverslun, sú stærsta og þekktasta á sínu sviði.• Hentar vel fyrir hjón eða konur. Ársvelta 150 mkr. Ebitda 25 mkr. 65 herbergja hótel á mjög góðum stað í klukkutíma fjarlægð frá• Reykjavík. Góð áhvílandi lán. Stórt og rótgróið iðnfyrirtæki í málmiðnaði sem byggir bæði á sölu• innanlands og á útflutningi. Viðskiptavinir eru framleiðslufyrirtæki á sjávarfangi. Bæði er þar um að ræða mikilvæga samninga við fasta viðskiptavini um viðhald og varahluti sem og stök verkefni í vélalausnum. Fyrirtækið hefur mikla séstöðu og á auðvelt meða að hasla sér völl á fleiri mörkuðum erlendis. Framleiðslufyrirtæki í sérhæfðum matvælum. Vaxandi rekstur. Meðeigandi• kæmi til greina fyrir góðan framkvæmda- eða sölustjóra. Vel þekkt innflutningsfyrirtæki með fæðubótarefni.• Rótgróið glerfyrirtæki sem selur einnig aðrar vörur fyrir• byggingariðnaðinn. Fyrirtækið er með 70-80% markaðshlutdeild á sínu sérsviði. Velta hefur haldist stöðug frá hruni og mjög góður rekstrarhagnaður. Fyrirtækið er nú komið í mikinn vöxt og staðfestar pantanir til afgreiðslu á næstu mánuðum eru nú þegar orðnar meiri en allt síðastliðið ár. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Skákmeistarinn Hannes Hlífar Stef- ánsson bar sigur úr býtum á Stór- meistaramóti Vildarbarna Icelandair sem haldið var í gær. Hann fékk átta vinninga af níu möguleikum. Alls tíu stórmeistarar tóku þátt, þar af nokkrir sem ekki eru á hverjum degi við skákborðið. Þar má nefna Friðrik Ólafsson, Helga Áss Grétarsson, Jó- hann Hjartarson og Margeir Pét- ursson. Sterkasta mótið í mörg ár Mótið í gær er að sögn kunnugra sterkasta hraðskákmót sem haldið hefur verið á Íslandi í mörg ár. Úrslit urðu þau að Helgi Ólafsson náði 7,5 vinningum, Margeir Pét- ursson 6 og Jóhann Hjartarson 5. Skákmenn sem tóku þátt, aðrir en þeir sem fyrr eru nefndir, voru Lenka Ptacnikova, Jón L. Árnason, Þröstur Þórhallsson og Hjörvar Steinn Grétarsson. Það voru Hjörvar Steinn stór- meistari og Icelandair Cargo sem stóðu fyrir mótinu. Stefnt var að því – eins og tókst – að safna 500 þúsund krónum á mótinu til Vildarbarna, sjóðs Icelandair sem vinnur að því að fötluð börn og fjölskyldur þeirra komist til útlanda í sumarleyfi. Hjörvar Steinn segir að með móts- haldinu og peningasöfnun jafnhliða því hafi hann öðrum þræði verið að þakka fyrir sig. Sem barn þurfti hann sjálfur oft að mæta í styrktarþjálfun. Hitti þar oft brosandi og glaða krakka sem glímdu við mikla erf- iðleika en sáu samt björtu hliðarnar. Gott að geta gefið til baka „Bros krakkanna fengu mig til að gleyma öllum þeim vandamálum sem ég þurfti sjálfur að glíma við. Ég átt- aði mig á því hve lítilvæg þau voru í samanburði. Að geta gefið til baka til krakka sem glíma við erfiða sjúk- dóma er draumur að rætast,“ segir Hjörvar Steinn og bætir við að það sé engin tilviljun að hann kaus að leggja Vildarbörnum lið. „Skákin hefur gefið mér ótrúlega mikið í gegnum árin en eitt af því er að fá að ferðast til framandi staða og kynnast fólki frá öllum hornum heimsins. Það hefur verið gríðarlega þroskandi fyrir mig og því tel ég að allir ættu að fá að ferðast.“ Morgunblaðið/Ómar Riddarar Skákmennirnir sem tóku þátt í mótinu voru einbeittir, enda stefndu allir til sigurs. Frá vinstri, Jón L. Árnason, Helgi Ólafsson, Friðrik Ólafsson og Margeir Pétursson sem lítið hefur teflt opinberlega síðari árin. Góður sigur Hannesar  Tíu meistarar á sterkasta hraðskákmóti síðari ára  Hannes Hlífar og Helgi  Takk, sagði Hjörvar Steinn Morgunblaðið/Ómar Tafl „Skákin hefur gefið mér ótrú- lega mikið,“ segir Hjörvar Steinn. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skóla- og frístundaráði Reykjavík- urborgar hafa lagt fram tillögu um að niðurstöður reykvískra grunnskóla í PISA-könnuninni ár- ið 2012 verði gerðar opinberar. Afgreiðslu tillögunnar var frestað. Í henni segir að sundurgreindar upplýsingar um árangur hvers skóla í einstökum greinum verði sendar viðkomandi skólastjórn- endum, skólaráði og stjórn for- eldrafélaga til þess að hvetja til upplýstrar umræðu um kennslu- hætti og námsárangur. Slíkar upp- lýsingar hafi þegar verið unnar af tölfræði- og rannsóknarþjónustu skóla- og frístundasviðs. „Ég tel að það sé hægt að draga mikinn lærdóm af þessum nið- urstöðum um frammistöðu ein- stakra skóla og líka jafnvel ein- stakra bekkja og nemenda. Ég held að allir geti grætt á því. Það getur verið fróðlegt fyrir skóla- stjórnendur að sjá hvernig mis- munandi kennarar standa sig og bæði þá og foreldrana að sjá hvernig þeirra skóli stendur sig,“ segir Kjartan Magnússon, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Ekki sé hægt að draga altækar niðurstöður af könnuninni en Kjartan segir að opinberun henn- ar geti hjálpað í heildarsamheng- inu. Engin rök á móti „Svo er það þannig að við erum að reka eitt dýrasta grunn- skólakerfi í heimi. Það kerfi greiða skattgreiðendur. Okkur finnst bara sjálfsagt að þeir sem hafa börnin í skólunum og borga námið þeirra í gegnum skatta sína fái aðgang að öllum upplýsingum um krakkana sína ef það er ekki einhver sérstök rök sem mæla gegn því. Ég sé ekki að nein sér- stök rök mæli gegn því að for- eldrar fái þessar upplýsingar um börnin sín,“ segir Kjartan. Niðurstöður PISA verði opinberar  Hjálpi skólastjórum og foreldrum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.