Morgunblaðið - 24.02.2014, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir.
Mikið úrval, sjón er sögu ríkari!
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Dalvegi 10-14 • Kópavogi
Margar gerðir
af innihurðum
Viðskiptaráð hef-
ur ráðið til sín
Björn Brynjúlf
Björnsson hag-
fræðing.
Í tilkynningu
frá Viðskiptaráði
segir að meg-
inverkefni Björns
verði að hafa um-
sjón með málefna-
starfi ráðsins, taka þátt í stefnumót-
un, sinna samskiptum við stjórn og
félagsmenn og annast aðra daglega
starfsemi. Hefur Björn þegar hafið
störf.
Áður starfaði Björn sem ráðgjafi á
skrifstofu ráðgjafarfyrirtækisins
McKinsey & Company í Kaupmanna-
höfn. Þá starfaði hann hjá greining-
ardeild Credit Suisse í Lundúnum.
Björn útskrifaðist með BS-gráðu í
iðnaðarverkfræði frá HÍ og lauk
meistaragráðu í fjármálahagfræði frá
Oxford-háskóla. ai@mbl.is
Björn Brynj-
úlfur til Við-
skiptaráðs
Björn Brynjúlfur
Björnsson
Smáríkið Singapúr hefur lengi verið
þekkt fyrir mjög hóflega skattlagn-
ingu og lagaumhverfi sem laðar að
bæði auðmenn og fyrirtæki. Stjórn-
völdum var því vandi á höndum þegar
kom að því að fjármagna loforð um
aukin félagsleg útgjöld.
Á undanförnum árum hefur mátt
greina undiröldu óánægju í singa-
púrsku samfélagi, ekki síst vegna
ójöfnuðar. Tekjur á íbúa í Singapúr
eru með því hæsta sem þekkist og var
landið t.d. nr. 9 á nýlegum lista AGS
yfir tekjuhæstu þjóðir. Á sama lista
var Ísland í 19. sæti. Mælist ójöfn-
uður í Singapúr um leið einhver sá
mesti sem þekkist meðal þróaðra
hagkerfa heims, svo ljóst er að auðn-
um er mjög misskipt hjá þessari ríku
þjóð.
Aðgerðir stjórnvalda hjálpa von-
andi til við að draga úr óróa en eink-
um á að beina auknum fjármunum til
heilbrigðisþjónustu og menntunar,
s.s. með því að auka þátttöku ríkisins í
sjúkrakostnaði og veita fjölskyldum
sérstakan styrk ef þær þurfa að ann-
ast aldraðan fjölskyldumeðlim.
Tóbak og vín
CNBC segir að reiknað hafi verið
með að áætlun ríkisstjórnarinnar yrði
fjármögnuð með hækkuðum sköttum
á hátekjufók, en nú hafa ný fjárlög
verið birt og ljóst að þess í stað verða
skattar hækkaðir á ýmsa „lesti“. Mun
skattur á tóbak hækka um 10%,
skattar á áfengi hækka um 25% og
skattar á spilavíti hækka upp í 25-
30%. Taka hækkanirnar strax gildi.
Hið almenna atvinnulíf sleppur
ekki alveg við hækkanir því ákveðið
hefur verið að auka framlög vinnu-
veitenda í sjúkrasjóði starfsmanna.
Heilbrigðiskerfi Singapúr er fjár-
magnað með blöndu slíkra sjúkra-
sjóða, greiðslna úr ríkissjóði og svo
þjónustu- og komugjöldum sem sjúk-
lingar greiða sjálfir. Stjórnvöld ætla
að taka á sig hluta hækkunarinnar
fyrsta árið til að auðvelda fyrirtækj-
um að laga sig að nýjum viðmiðum.
Þetta hækkaða sjúkrasjóðsframlag,
sem í reynd jafngildir hærri fyrirtæk-
jasköttum, er ekki talið raska sam-
keppnishæfni Singapúr gagnvart
fjármála- og viðskiptamiðstöðinni
Hong Kong, sem stundað hefur sam-
bærilega lágskattastefnu.
ai@mbl.is
Singapúr hækkar skatta
EPA
Samkeppni Fjármálahverfið í
Singapúr. Lágir skattar gera borg-
ríkið að miðstöð viðskipta.
Hækkuðu álögur á „lesti“ frekar en að skattleggja auðmenn enn frekar
Framlög vinnuveitenda í sjúkrasjóði starfsmanna koma til með að hækka
Hugbúnaðarrisinn Microsoft
hyggst lækka verðið á Windows
8.1 stýrikerfinu um 70%. Lækk-
unin nær til framleiðenda ódýrra
borð- og spjaldtölva og er þessu
útspili ætlað að halda í skefjum
keppinautum á borð við Google,
sem reynt hefur að olnboga sig inn
á tölvumarkaðinn með ódýru
Chromebook-fartölvunni.
Fréttastofa Bloomberg hefur
eftir heimildarmönnum að fyrir
tölvur sem kosta minna en 250
bandaríkjadali muni Microsoft
rukka 15 dali fyrir stýrikerfið.
Venjulegt verð er 50 dalir á hverja
tölvu en talið er að stærstu al-
þjóðlegu framleiðendur borgi um
30 dali á hverja tölvu eftir að búið
er að draga frá greiðslur frá
Microsoft á borð við auglýs-
ingastyrki.
Færri vilja einkatölvu
Harðnandi samkeppni frá Apple
og Google varð til þess að tekjur
Microsoft drógust saman á síðasta
fjórðungi. Með verðbreytingunni
er talið að Microsoft veiti fram-
leiðendum sterkan hvata til að
leggja aukna áherslu á framleiðslu
ódýrra einkatölva, þá ekki síst
spjaldtölva, og styrkja stöðu
Microsoft á þeim markaði.
Á síðasta ári drógust pantanir á
nýjum einkatölvum saman um 10%
á heimsvísu. Er samdrátturinn tal-
inn stafa af því að fleiri neytendur
velja að nota spjaldtölvur og
snjallsíma í stað hefðbundinna
borð- og fartölva. ai@mbl.is
Microsoft
lækkar
verðið
Finna fyrir vin-
sældum spjaldtölva
og snjallsíma
AFP
Tölvur Tekjur Microsoft drógust sam-
an í fyrra og keppinautar á borð við
Google og Apple draga hvergi af sér.
Stjórnvöldum í Mexíkó þykir ekki
ganga nógu hratt að nútímavæða
sjónvarpsmarkaðinn þar í landi. Til
að bæta þar úr stendur til að gefa
tekjulágum heimilum splunkunýtt
háskerpusjónvarp.
Hefst gjafmildin í héraðinu Ta-
maulipas í norðausturhluta lands-
ins þar sem á að útdeila 120.000
sjónvarpstækjum. Samskipta- og
samgönguráðuneytið tilkynnti
þetta undir lok síðustu viku, að því
er frétt Bloomberg greinir frá.
Sjónvörpin koma frá framleið-
endunum Foxconn Technology
Group og Diamond Electronics.
Þau eiga að vera ákaflega háþróuð,
fara sparlega með rafmagn og vera
með öllum innstungum og raufum
til að tengjast netinu. Úthlutun
sjónvarpstækjanna mun taka mið af
skrám félagsmálaráðuneytisins.
Markmiðið með þessum rausn-
arskap ríkisins er þó ekki að gera
heimamönnum kleift að horfa á
„telenovelas“ í meiri myndgæðum,
heldur er ætlunin að rýma til í loft-
bylgjurófinu. Með stafrænum sjón-
varpsútsendingum má hætta loft-
nets-útsendingum með gamla
laginu og þar með losna bylgju-
lengdir sem ríkið getur selt sam-
skiptafyrirtækjum sem vilja bjóða
t.d. upp á þráðlaust net. ai@mbl.is
AFP
Háskerpa Par virðir fyrir sér útsýnið frá turni í miðborg Mexíkóborgar. Því fyrr sem hætta má hefðbundnum sjón-
varpsútsendingum með loftneti, því fyrr má úthluta tíðnisviðinu til betri nota s.s. fyrir þráðlaust net.
Mexíkó gefur íbúum háskerpu-
sjónvörp til að losa bandvíddir
Gefur orðinu „ríkissjónvarp“ nýja merkingu 120.000 tæki í fyrstu atrennu